Fréttablaðið - 09.11.2005, Qupperneq 55
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 MARKAÐURINN18
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
Guðni B. Guðnason hefur borið
hitann og þungan af uppbygg-
ing Anza sem sérhæfir sig í hýs-
ingu tölvukerfa og geymslu
gagna. Sóknarfæri eru í að
þjónusta erlend fyrirtæki frá Ís-
landi náist meira öryggi í fjar-
skiptum milli Íslands og um-
heimsins. Vaxandi þörf er fyrir
geymslu gagna fyrir einstakl-
inga, enda minningar nútíma-
fólks geymdar í tölvum. Hafliði
Helgason ræddi við Guðna um
kosti og möguleika í starfsemi
fyrirtækisins.
Þeim fyrirtækjum fjölgar stöðugt sem sjá sér
hag í að láta aðra um rekstur tölvukerfa
sinna. Anza sinnir slíkri útvistun tölvkerfa og
Guðni B. Guðnason, forstjóri Anza, segir sí-
fellt fleiri fyrirtæki átta sig á kosti hýsingar
tölvukerfa hjá sérhæfðum fyrirtækjum.
Upphaflega stofnaði Guðni fyrirtækið Álit
árið 1997. Hann sá þá um tölvukerfi Álvers-
ins í Straumsvík og nafnið orðaleikur úr ál og
it sem er skammstöfun fyrir upplýsinga-
tækni. „Fyrirtækið var stofnað utan um
hugmyndinga um útvistun sem
var þá ekki þekkt hér á
landi. Ég kynnti þáver-
andi forstjóra fyrirtækis-
ins, Christian Roth, þessar
hugmyndir mínar. Hann vildi
að ég segði upp fyrst og stofnaði fyrir-
tækið og síðar yrði tekin ákvörðun um hvort
álverið myndi eiga viðskipti við það,“ segir
Guðni. Hann segir að hann hafi ekki fengið
neina tryggingu fyrir viðskiptum í veganesti,
en samningar við Álverið í Straumsvík tókust
og vel gekk að afla nýrra viðskiptavina. „Árið
2001 var fyrirtækið komið með fimmtíu
starfsmenn og búið að byggja upp hýsingar-
aðstöðu í Ármúlanum.“ Fyrirtækið sameinað-
ist á þessum tíma tveimur internetþjónustu-
fyrirtækjum og netveitunni torg.is.
GETA TREYST RÁÐGJÖFINNI
„Við höfum frá upphafi lagt áherslu á þrennt.
Rekstrarþjónustuna, þar sem við erum eins
og tölvudeild fyrirtækis. Ráðgjöf þar sem
það hefur verið styrkur okkar að vera ekki
með umboð fyrir nein merki. Það gerir það að
verkum að fyrirtækin hafa treyst okkur bet-
ur fyrir ráðgjöfinni, en ef við hefðum verið
söluaðilar fyrir einhvern ákveðinn búnað.
Annað sem við gerðum var að við buðum
fasta og fyrirsjáanlega samninga um rekstur
tölvukerfa. Það var nýjung í þessum bransa.
Ábyrgðin er þá okkar og ávinningurinn
einnig af því að geta hagrætt.“
Guðni segir ekki hafa verið einfalt að
sannfæra fyrirtæki um að fara með tölvu-
kerfin út úr húsi. „Þegar við byrjuðum voru
menn með vélarnar á borðinu hjá sér og
heyrðu í disknum og viftunni. Það var stórt
skref þegar serverar fóru að færast í önnur
herbergi, það að fara með vélarnar út úr húsi.
Sérstaklega vegna þess að fjarskiptakostnað-
urinn var mjög hár sem var mesta hindrunin
í upphafi.“
Flutningsgeta og kostnaður vegna fjar-
skipta hefur gjörbreyst á undanförnum
árum. „Það hefur þýtt að útvistun er komin á
nýtt skrið. Það hefur sjaldan verið eins líflegt
og á þessu ári. Það hafa komið um tuttugu
tækifæri inn á borð hjá okkur á þessu ári og
af því erum við búin að landa samningum í
um sextíu prósent tilvika. Það er að verða
vakning hjá fyrirtækjum sem eru farin að
gera sér grein fyrir því að tölvuafl er eins og
raforka. Menn vilja bara stinga í samband og
fá það sem þeir þurfa.“
ÖRYGGI AF HÆSTU GÆÐUM
Guðni segir hýsingu tölvukerfa hafa
ýmsa kosti í för með sér. „Við
erum með vottun sam-
kvæmt ákveðnu öryggis-
kerfi. Það þýðir að aðbún-
aður, eftirlit, slökkvikerfi
og varaafl er eins og best
verður á kosið. Oft hafa fyrirtæki ekki
bolmagn eða þekkingu til þess að halda úti al-
vöru umhverfi sem virkar og er í lagi.“
Hugmyndir hafa verið uppi um að setja
upp tölvuver hér á landi og þjónusta erlend
fyrirtæki. „Næsta skref fyrir okkur er að
taka við rekstri á kerfum sem aðilar utan Ís-
lands eru að nota. Sú þróun er í gangi og mik-
ill vöxtur í því. Það sem er að gerast núna er
að búnaður er að verða þannig að hægt er að
samnýta hann með mörgum kerfum. Það þýð-
ir að orkunotkun á hvern
fermetra hefur tífaldast á
tveimur, þremur árum.“
Guðni segir að því fylgi að
hitamyndun aukist og þörf á
kælingu þar með. „Núna
erum við að sigla inn í tíma
þar sem við getum sagt að
orka sé farin að skipta meg-
in máli í vali á því hvar slík
tölvuver eru staðsett.“
HINDRUN Í GAGNAFLUTN-
INGUM
Guðni segir að hindrun þess-
arar þróunar séu fyrst og
fremst að fjarskiptin til og
frá landinu séu ekki nógu
stöðug, þrátt fyrir tilkomu
Farice-sæstrengsins. „Það
eru fjöldamörg dæmi um það
að sambandið hafi rofnað og það er ekki hægt
að bjóða fyrirtækjum upp á það sem ætla að
fara selja slíka þjónustu héðan. Við erum þeg-
ar að reka kerfi héðan, en til þess að fara út í
stóra markaðssetningu þarf að fara í þessi
mál.“ Raforkan skiptir miklu. „Annað er stað-
setning landsins. Hér eru ekki hryðjuverk og
það ásamt orkunni gerir okkur að góðum
kosti.“ Guðni segir að unnið sé að því að auka
flutningsöryggið til og frá landinu. „Ég held
að við verðum ekki í góðri stöðu fyrr en við
erum komin með annan kapal sambærilegan
við Farice sem ræður við að taka við umferð
ef hinn bilar.“ Hann segir fjarskiptakostnað-
inn milli landa einnig standa í veginum. „Ef
menn vilja gera alvöru úr þessu, þá væri það
mjög sterkur leikur að ná stóru fyrirtæki í
hýsingu hér á landi sem þýddi að þyrfti að
byggja stórt hús sem væri hagkvæmt. Til
þess þarf að niðurgreiða fjarskiptasamband-
ið um tíma til þess koma á fót alvöru um-
hverfi fyrir þessa starfsemi. Um leið og við
erum búin að koma okkur fyrir mætti fara að
borga fullt verð aftur.“ Strengurinn er bara
einn og ekki samkeppni í gagnaflutningum til
og frá landinu.
VARÐVEISLA MINNINGANNA
Síminn er stærsti eigandi Anza. Guðni segir
eignarhaldið hjálpa til, einkum nú þegar
möguleiki sé á stærri erlendum verkefnum.
Þá sé einkavæðing fyrirtækisins jákvæð fyr-
ir möguleika Anza til þess að eflast og sækja
fram í alþjóðlegri samkeppni.
Stafræn gögn skipa alltaf stærri sess í líf
okkar. Fjölskyldualbúmið er í heimilistölv-
unni. „Það sem verður heitasta atriðið á
næsta ári er gagnaafritun.
Við erum að hleypa af stokk-
unum þjónustu fyrir litla að-
ila og einstaklinga. Við töl-
um um kynslóð hinna týndu
gagna. Það er að verða gríð-
arleg þörf fyrir einhverja
sem afrita alls kyns gögn
fólks og geyma þau með ör-
uggum hætti og á formi sem
er aðgengilegt hverju sinni.“
Anza er í hraðri uppbygg-
ingu. Guðni segist þrátt fyr-
ir það gefa sér tíma til tóm-
stunda. „Fyrirtækið er orðið
vel skipulagt og ég hef meiri
tíma nú en oft áður. Ég hef
mörg áhugamál. Ég spila
golf á sumrin og er í hesta-
mennsku á veturna.“ Hann
segist einnig stunda fótbolta
og badminton og var á árum áður keppnis-
maður í sundi. „Svo hef ég gaman af mat og
ferðalögum. Ég er líka aðeins að fikra mig
áfram í hundarækt.“ Eiginkona Guðna, Ásta
Björnsdóttir, rekur ballettskóla sem kenndur
er við móður hennar Sigríði Ármann. Guðni
segir gefandi að reka svoleiðis starfsemi.
Hann segist ekki hafa farið varhluta af ball-
ettuppeldi hjá eiginkonu og tengdamóður.
„Þú getur rétt ímyndað þér um hvað er rætt í
jólaboðunum,“ segir Guðni og brosir.
Hádegisverður fyrir tvo
á Gallerý Fiski
Steiktar jurtakryddaðar gellur
Drykkir
Vatn
Alls 3.180 krónur
▲
H Á D E G I S V E R Ð U R I N N
Með Guðna B.
Guðnasyni
forstjóra Anza
Virðisrýrnunar-
próf stjórnenda
Aurasálin fagnar þeirri tímabæru
ákvörðun Fjármálaeftirlitsins að
setja stjórnendur fjármálafyrir-
tækja í próf. Aurasálina hefur
nefnilega lengi grunað að yfir
fjármálafyrirtækjunum ríktu
menn sem skorti þekkingu á
mörgum sviðum. Þessir stjórn-
endur væru að auki alltof hátt
launaðir. Það er tími til kominn
að láta þessa hálaunamenn sýna
og sanna almenningi og stjórn-
völdum að þeir séu rauverulega
starfi sínu vaxnir.
Það er margt sem styður þá trú
Aurasálarinnar að mikið skorti á
þekkingu stjórnenda fjármála-
fyrirtækja. Fyrir það fyrsta
virðast þeir standa í þeirri trú
að hlutverk þeirra sé að há-
marka arð hluthafa sinna. Þetta
er misskilningur. Hlutverk
þeirra er ekki að hámarka arð
hluthafa sinna. Sú gengdarlausa
verðmætaaukning sem hluthafar
bankanna hafa fengið stríðir
gegn því sem Aurasálin vill kalla
hóflegan arð til hluthafa.
Nú kynnu margir að halda að
þessi skoðun Aurasálarinnar
væri nýtilkomin og sprottin af
því að Aurasálin seldi bréf sín í
ríkisbönkunum fyrir löngu síð-
an. Svo er alls ekki. Aurasálin
hefur margoft lýst þeirri skoðun
sinni að koma verði böndum á
ofsagróða bæði fyrirtækja og
einstaklinga, auk þess sem stilla
verði launum stjórnenda í hóf.
Boðað próf Fjármálaeftirlitsins
fellur vel að þeirri heildarhug-
mynd Aurasálarinnar að koma
verði böndum á vöxt og hagnað í
fyrirtækjum og þeirra launa
sem slíkum vexti fylgir. Prófið
getur einmitt þjónað því hlut-
verki að menn fái sanngjörn
laun fyrir hæfileika sína og
framlag til samfélagsins.
Þannig myndi hæsta einkunn á
prófi gefa sem svarar þreföldum
mánaðarlaunum lægstu launa og
launin svo lækka eftir niður-
stöðu prófsins þar til falleinkunn
er náð. Eins konar virðisrýrnun-
arpróf stjórnenda. Fall þýðir
náttúrlega að fyrirtæki ber að
reka viðkomandi starfsmann.
Einu á þó að gilda hvort hluthaf-
ar vilja hafa viðkomandi áfram í
vinnu, því Aurasálinni þykir
augljóst að hagsmunir hluthafa
og almennings fara ekki saman,
þar sem hluthafar hugsa einung-
is um eigin hag.
Næsta mál er auðvitað að semja
prófið og er Aurasálin tilbúin að
ljá sínar vinnufúsu hendur til
þess. Prófið þarf að vera erfitt.
Það er ljóst. Í fyrsta lagi þarf
það að vera um reglur sem fyr-
irtækin starfa eftir. Þær eru
augljólega of fáar nú um stundir
og nauðsynlegt að fjölga þeim
verulega til þess að prófið verði
erfitt. Auk þess þarf að vera
liður í prófinu sem lýtur að
þekkingu stjóranna á kjörum og
veruleika almennings. Þar getur
Aurasálin orðið að góðu liði.
A U R A S Á L I N
Guðni B. Guðnason
Starf: Forstjóri Anza
Fæðingardagur: 30. september 1961
Maki: Ásta Björnsdóttir
MIKLIR MÖGULEIKAR Anza rekur nú þegar tölvuhýsingu fyrir erlend fyrirtæki. Guðni B. Guðnason segir að auka þurfi
öryggi gagnaflutninga til og frá landinu ef hægt eigi að vera að fara í markaðsókn með slíka þjónustu erlendis. Geymsla
gagna fyrir einstaklinga svo sem myndaalbúms fjölskyldunnar er einnig á döfinni.
Útvistunin
aftur í sókn
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/S
te
fá
n
18-19 Markadur-lesin 8.11.2005 15:35 Page 2