Fréttablaðið - 09.11.2005, Side 69
9. nóvember 2005 MIÐVIKUDAGUR24
timamot@frettabladid.is
Sími 460 1760
johann@isi.is
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Þegar andlát ber að
Síðastliðin 15 ár höfum við feðgar
aðstoðað við undirbúning útfara.
Alhliða útfararþjónusta
Símar: 567 9110,
893 8638 og 897 3020
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
Sigríður Jónsdóttir
frá Stóruvöllum, Bárðardal,
síðast til heimilis að Ási í Hveragerði lést miðvikudag-
inn 2. nóvember 2005. Jarðsungið verður frá Hvera-
gerðiskirkju laugardaginn 12. nóvember 2005, kl. 13.00.
Birgir Pálsson Sigurbjörg Ólafsdóttir
Geirþrúður Pálsdóttir
Sveinn Pálsson Sigrún Arndal
Jón Páll Haraldsson Björk Ragnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
ANDLÁT
Einar Jóhannesson bóndi, Jarð-
langsstöðum í Borgarbyggð, lést á
Sjúkrahúsi Akraness fimmtudag-
inn 3. nóvember.
Vígsteinn Vernharðsson andaðist
fimmtudaginn 3. nóvember.
Kristinn Júlíusson, bóndi á Leirá,
lést á Sjúkrahúsi Akraness föstu-
daginn 4. nóvember.
Þórdís Dida Hofdahl andaðist á
Sct. Maria Hospice í Vejle föstu-
daginn 4. nóvember.
Finnborg Guðmunda Sigmunds-
dóttir andaðist á heimili sínu í
Green River, Wyoming, laugardag-
inn 5. nóvember.
Hannes Björgvinsson frá Skriðu-
stekk, Ásvegi 23, Breiðdalsvík,
andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu
í Neskaupstað laugardaginn 5.
nóvember.
Karl P. Maack, Grandavegi 47,
áður Skipholti 50, Reykjavík, and-
aðist laugardaginn 5. nóvember.
Lilja Skúladóttir frá Urðarteigi,
lést á heimili sínu, Ásgarði, Djúpa-
vogi, laugardaginn 5. nóvember.
Sólveig Björndís Guðmunds-
dóttir, Kirkjuvegi 5, Keflavík, lést
á Landspítalanum við Hringbraut
sunnudaginn 6. nóvember.
Þorfinnur Bjarnason, fyrrverandi
sveitarstjóri á Skagaströnd, lést
á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ
sunnudaginn 6. nóvember.
Guðríður Jóelsdóttir, fótaað-
gerðarfræðingur, Laufskógum 19,
Hveragerði, lést á Sjúkrahúsi Suð-
urlands mánudaginn 7. nóvember.
JARÐARFARIR
13.00 Erlingur Yngvi Sveinsson,
Duevej 40, Kaupmanna-
höfn, verður jarðsunginn frá
Fríkirkjunni í Hafnarfirði.
MERKISATBURÐIR
1794 Skúli Magnússon landfógeti
andast í Viðey.
1930 Austurbæjarskólinn í
Reykjavík er fyrstur húsa
tengdur hitaveitu úr þvotta-
laugunum í Laugardal.
1932 Gúttóslagurinn verður
þegar bæjarstjórinn í
Reykjavík fjallar um lækkun
launa í atvinnubótavinnu.
1953 Kambódía hlýtur sjálfstæði
frá Frökkum.
1986 Tveimur hvalbátum er sökkt
við Ægisgarð í Reykjavíkur-
höfn.
1995 Tvö þúsund króna seðill
með mynd af Jóhannesi
Kjarval er settur í umferð.
CHARLES DE GAULLE (1890-1970)
LÉST ÞENNAN DAG.
„Hvernig getur nokkur
stjórnað landi sem fram-
leiðir 246 mismunandi
tegundir af osti?“
Charles de Gaulle var forseti Frakka
frá 1958 til 1969.
Á þessum degi árið 1989 tilkynnti Günther Scha-
bowski, fulltrúi í framkvæmdastjórn austur-þýska
kommúnistaflokksins, að hömlur á ferðafrelsi til
Vestur-Þýskalands hefðu verið afnumdar. Þar með
opnuðust flóðgáttir á milli Austur og Vesturs en í
raun höfðu Austur-Þjóðverjar síðustu vikurnar þar á
undan flykkst yfir landamærin til Tékkóslóvakíu og
Ungverjalands þaðan sem þeir að lokum komust
til Austurríkis. Almenningur hafði haft uppi mikil
mótmæli enda stjórnmálaástand ótryggt. Erich
Honecker hafði til dæmis látið af leiðtogaembætti
Kommúnistaflokksins í mánuðinum áður og um
svipað leyti heimsótti Mikahil Gorbatsjoff landið
og hvatti leiðtoga þess til umbóta enda hafði hann
innleitt slökunarstefnu sína, Perestrojku, í Sovétríkj-
unum.
Mikill fjöldi Austur-Þjóðverja þusti gegnum opin
hliðin yfir til Vesturs þar sem nágrannar þeirra tóku
fagnandi á móti þeim. Múgur og margmenni klifraði
upp á múrinn og hóf að höggva skörð í hinn 45 kíló-
metra langa múr.
Fall múrsins táknaði endalok kalda stríðsins og
endalok heimskerfis sem hafði verið í gildi frá lokum
síðari heimsstyrjaldar.
ÞETTA GERÐIST > 9. NÓVEMBER 1989
Berlínarmúrinn fellur
Á BERLÍNARMÚRNUM
„Ég ætla að fara í hundagöngu í Laug-
ardalnum og eyða síðan kvöldinu með
fjölskyldunni,“ segir Steingrímur
Ólafsson blaðafulltrúi forsætisráðu-
neytisins sem er fertugur í dag. Nýr
meðlimur bættist í fjölskyldu Stein-
gríms nýverið en það er fimm mánaða
gamall Bichon frise hvolpur. „Ég stóðst
ekki augnaráðið,“ segir Steingrímur
um valið á hundinum.
Ekki þýðir að spyrja Steingrím
um komandi veisluhöld því hann hélt
stórveislu fyrir rúmri viku. „Ég bauð
í, Ég er ennþá 39 ára, veislu,“ segir
hann kíminn en fjöldi fólks gladdist
með honum á góðri stund og fékk
hann margt góðra gjafa. „Þarna voru
bækur, veiðigræjur, skíðagræjur og
hjól,“ segir Steingrímur glaður en af
þessu má ráða að hann sé mikið fyrir
útivist.
Steingrími er einn afmælisdagur
minnisstæðari en aðrir. „Árið 1989
féll Berlínarmúrinn og það er besta
afmælisgjöfin sem ég hef fengið,“
segir Steingrímur sem staddur var
erlendis á þessum tíma þó ekki hafi
hann verið í Þýskalandi.
Steingrímur sem var lengi blaða- og
fréttamaður, hóf störf í forsætisráðu-
neytinu fyrir ári og miðlar þar upplýs-
ingum milli fjölmiðla og forsætisráðu-
neytisins. „Þetta er afar skemmtilegt
starf,“ segir Steingrímur sem telur að
heiðarleiki skipti mestu máli í starfi
sínu.
Þrátt fyrir að Steingrímur hafi
haldið veislu til að fagna því að vera
ekki enn orðinn fertugur segir hann
yndislegt að vera kominn á þennan
aldur. „Maður er ekkert eldri en
manni líður og ef þetta er tilfinningin
að vera fertugur þá er það bara góð til-
finning,“ segir Steingrímur sem ekki
er að eltast við rjúpur þessa dagana
enda stundar hann einungis stang-
veiði. Til að vera sem mest úti við fer
hann í göngur með hundinn, fer út að
hlaupa og hjóla. „Það er sjaldan betra
að hjóla en í góðum snjó,“ segir Stein-
grímur galvaskur en hann hjólar þó
ekki í vinnuna á morgnana. „Það fer
svo illa með jakkafötin,“ segir hann og
hlær. ■
STEINGRÍMUR ÓLAFSSON, BLAÐAFULLTRÚI FORSÆTISRÁÐUNEYTISINS, ER FERTUGUR
Fall múrsins besta gjöfin
SÆLL MEÐ AÐ VERA ORÐINN FERTUGUR Steingrímur er mikið fyrir útivist og segir sjaldan betra að hjóla en í góðum snjó. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Bille August
kvikmyndaleikstjóri er
57 ára.
Egill Helgason
sjónvarpsmaður er
46 ára.
Valgerður Rúnarsdótt-
ir dansari er 27 ára.
AFMÆLI
Kvenfélagið Eining kom
færandi hendi í Lauga-
landsskóla í síðustu viku. Þá
afhenti Guðfinna Þorvalds-
dóttir, formaður kvenfélags-
ins, skólanum fjörutíu þús-
und krónur sem ætluð voru
börnum í fyrsta til þriðja
bekk. Gjöfin góða á örugg-
lega eftir að koma sér vel
í starfi yngstu grunnskóla-
barnanna í Laugalandsskóla
í Holtum.
Góð gjöf
UNG OG GLÖÐ Yngstu börn Lauga-
landsskóla voru að vonum ánægð
með gjöf kvenfélagsins Einingar.
FÆDDUST ÞENNAN DAG
1818 Ivan Turgenev
rithöfundur
1841 Játvarður VII
Englandskonungur
1897 Ronald G.W.
Norrish breskur
efnafræðingur og
nóbelsverðlaunahafi
1934 Carl Sagan
stjörnufræðingur
Heiðarskóli í Leirársveit er
fjörutíu ára í dag. Skólinn
stendur við Leirá í Borgar-
firði, um miðja vegu milli
kaupstaðanna Akraness og
Borgarness og sækja þar
um 110 nemendur skólann.
Tímamótanna verður
minnst laugardaginn næst-
komandi, 12. nóvember.
Klukkan tólf verður skólinn
opnaður íbúum svæðisins,
fyrrverandi og núverandi
nemendum og starfsfólki,
svo og velunnurum skól-
ans. Hægt verður að skoða
vinnu nemenda og myndir
úr skólastarfi en nemendur
verða við leik og störf í skól-
anum fram til klukkan 15.00
þegar hátíðardagskrá hefst
í Heiðarborg. Kaffiveiting-
ar verða í boði að lokinni
dagskrá. ■
Heiðarskóli 40 ára
VETRARLEGT Í LEIRÁRSVEIT Heiðarskóli stendur við Leirá í Borgarfirði.
www.steinsmidjan.is