Fréttablaðið - 09.11.2005, Qupperneq 73
9. nóvember 2005 MIÐVIKUDAGUR28
menning@frettabladid.is
!
������������
��������� ��������
����������������������������������������
������������������ ���������������������������
������������ ����������
���������������������������������� ����������������������������
���������������������������������������������������������������
��������������� ������������������������������������
������������� ����������������������������������������������
��������������������� �������������������������������������
���� ������� ������������ �������������� �����������
��������������������������������������������������������
����������������������������������������
���������������������� �������������������������
���������������������
���������������� � ���������������� � �� �����������
����������������������������������������������
������������� ��������������� �����������
Kl. 15.15
Jon Milner stundakennari í
dönsku heldur fyrirlestur um
þjóðernisvitund og hvern-
ig henni er laumað inn í
hversdagslegu orðfæri okkar.
Fyrirlesturinn er fluttur á
vegum stofnunar Vigdísar
Finnbogadóttur í Lögbergi
stofu 102.
> Ekki missa af ...
... Unglist, listahátíð unga fólks-
ins, sem nú stendur sem hæst
með fjölbreytilegum viðburðum.
... tónleikum Ágústs Ólafsson-
ar baritónsöngvara í Salnum í
Kópavogi á fimmtudagskvöldið
þar sem hann syngur ásamt jap-
anska píanóleikaranum Izumi
Kawakatsu.
... söngleiknum Kabarett
sem nú er sýndur í Íslensku
óperunni. Sýningum fer óðum
að fækka.
Á háskólatónleikum í
Norræna húsinu í dag flytja
Elísabet Waage og Hannes
Guðrúnarson verk fyrir
hörpu og gítar.
„Þessi tvö hljóðfæri eru mjög lík.
Við erum bæði að plokka strengi
og hljómurinn er svipaður,“ segir
Elísabet Waage hörpuleikari. Hún
kemur fram á háskólatónleikum í
Norræna húsinu í hádeginu í dag
ásamt Hannesi Guðrúnarsyni
gítarleikara.
„Að óreyndu hefði ég kannski
ekki haldið að þessi samsetn-
ing hljóðfæra væri jafngóð og
komið hefur á daginn,“ segir hún.
„Annars er ég alltaf að stríða
Hannesi. Ég er með miklu flei-
ri strengi en hann,“ segir Elísa-
bet, sem hefur yfir 47 strengjum
að ráða í hörpunni meðan gítar-
leikarinn þarf að láta sér lynda
aðeins sex strengi.
Á tónleikunum ætla þau að leika
tvö verk eftir íslenska höfunda.
„Annars vegar er það fallegt lítið
lag eftir Áskel Másson sem heitir
Kansóna og svo verk eftir Þorkel
Sigurbjörnsson sem er uphaflega
skrifað fyrir gítar og sembal en
hentar ákaflega vel fyrir hörpu.
Þorkell hjálpaði okkur aðeins við
að umskrifa verkið. Það heitir
Fiori sem þýðir blóm á ítölsku.“
Loks flytja þau verk eftir Jur-
riaan Andriessen, hollenskt tón-
skáld sem nýtir sér óspart í þessu
verki hvað harpan og gítarinn eru
skyld hljóðfæri.
„Þetta verk heitir Ballade
og okkur finnst það vera mjög
skemmtilega skrifað fyrir hljóð-
færin.“
Elísabet segir að tónskáld
mættu vel vera duglegri við að
semja fyrir hörpu og gítar. „Það er
ekkert óskaplega mikið til af verk-
um fyrir þessi tvö hljóðfæri.“
Töluvert er til af verkum fyrir
hörpu og flautu og hefur Elísabet
einnig leikið dúó með fiðluleikara
og sellóleikara, auk þess sem hún
hefur leikið dúó með fyrrverandi
píanókennara sínum.
„Það er svo skemmtilegt við
hörpuna að maður er alltaf að
prófa nýjar samsetningar. Marg-
ir söngvarar eru líka hrifnir af
því að syngja með hörpum, þeir
þurfa ekki að þenja sig alveg eins
mikið.“ ■
ELÍSABET WAAGE HÖRPULEIKARI OG HANNES GUÐRÚNARSON GÍTARLEIKARI Þau plokka
strengi sína í hádeginu í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Leika tvö á strengi sína
Bandaríski básúnuleikarinn, tónskáldið og útsetjar-
inn John Fedchock stendur við stjórnvölinn á tón-
leikum Stórsveitar Reykjavíkur, sem haldnir verða í
Ráðhúsi Reykjavíkur í kvöld klukkan 20.30.
Fedchock er einn af lykilmönnum stórsveitajazz-
ins í New York um þessar mundir. Hann var um sjö
ára skeið tónlistarstjóri stórsveitar Woody Herman,
útsetti og samdi fyrir hljómsveitina auk þess að vera
aðal básúnu-einleikari sveitarinnar.
Hann hefur leikið með fjölda annarra stórsveita
svo sem stórsveit Louis Bellson, Carnegie Hall Jazz
Band og Manhattan Jazz Orchestra.
Hin síðari ár hefur Fedchock starfað í New York,
rekið þar eigin stórsveit og meðal annars gefið út þrjá
geisladiska með henni. John Fedchock er eftirsóttur
gestastjórnandi og fyrirlesari, jafnt hjá atvinnustór-
sveitum sem háskólum, víða um heim.
Útsetningar hans og tónsmíðar eru gefnar út
og leiknar um allan heim. Þess má geta að John
Fedchock er fyrsti erlendi básúnueinleikarinn sem
kemur fram með Stórsveit Reykjavíkur sem stjórn-
andi og einleikari. Á efnisskrá verða eigin verk Fed-
choks og útsetningar hans á verkum annarra.
Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og öllum
heimill á meðan húsrúm leyfir.
Stjórnar Stórsveitinni
Skólahljómsveit Kópavogs heldur
árlega hausttónleika sína í sal Fjöl-
brautarskólans í Garðabæ í kvöld.
Flutt verða létt og skemmtileg lög
sem flestir þekkja.
„Við höfum kallað þetta popp-
korn og dægurflugur,“ segir
Margrét Sigurbjörnsdóttir,
aðstoðarskólastjóri Tónlistar-
skólans. „Þetta eru bæði nýleg
lög og gamlar dægurflugur, allt
frá Bítlunum og Ray Charles og
Doors til þessara gömlu þekktu
laga eins og Á Sprengisandi og
Amazing Grace.“
Alls koma um það bil 140 hljóð-
færaleikarar fram á tónleikunum.
Þeir eru á aldrinum 9 til 18 ára en
er skipt í þrjár sveitir eftir aldri
og getu.
Hljómsveitin er með mörg
járn í eldinum og framundan eru
fjölmargir tónleikar. Félagar úr
sveitinni leika á jólaskemmtunum
í flestum grunnskólum Kópavogs
auk þess að leika fyrir ýmis fyrir-
tæki og stofnanir í bæjarfélaginu.
„Elsta sveitin fór til Svíþjóð-
ar og Noregs í sumar, tók meðal
annars þátt í hljómsveitakeppni
í Gautabborg og vann hana. Þau
stóðu sig rosalega vel,“ segir
Margrét, ákaflega stolt af sínu
fólki.
Skólahljómsveit Kópavogs var
stofnuð haustið 1966 af Birni Guð-
jónssyni en núverandi stjórnandi
hennar er Össur Geirsson.
Tónleikarnir hefjast klukkan
átta í kvöld.
Leika dægurflugur
SKÓLAHLJÓMSVEIT KÓPAVOGS Myndin er tekin á tónleikaferð um Norðurlönd sem hljóm-
sveitin fór í í sumar.
„Allt mitt líf snýst um að mála.
Ég er stanslaust að horfa í kring-
um mig, stanslaust að skapa og
vinna í huganum og búa eitthvað
til,“ segir Kolbrún Róbertsdóttir
myndlistarkona, sem um þessar
mundir er með sýningu á kaffi-
húsinu Energeia í Smáralind.
Hún byrjaði að mála fyrir
fimm árum og hefur síðan haldið
fjórar stórar einkasýningar auk
þess að taka þátt í samsýningum.
„Þessa sýningu vann ég sér-
staklega með staðsetninguna í
huta. Veggirnir þarna eru allt
hráir steypuveggir og ég hafði
litina og þemað í myndunum svo-
lítið í takt við þann bakgrunn.“
Á sýningunni eru stór mál-
verk, sem skiptast í tvo andstæða
hópa.
„Ég er með myndir af fossum
í tærgrænum vatnslit sem eru
róandi, en síðan er ég í andstæðu
við þær að nota sterkrauðar
myndir, hlýjar myndir með sterk-
um björtum litum.“
Litavalið tengist líka árstím-
anum, jólaösinni sem er fram-
undan.
„Þetta er mín jólasýning.
Þarna er rauði liturinn og svo er
ég lika með þennan róandi græna
lit til að búa fólkið undir jólaös-
ina,“ segir Kolbrún, sem nú þegar
hefur fengið sterk viðbrögð við
sýningu sinni.
„Ég hef verið að fá nákvæm-
lega þau viðbrögð frá fólki sem
ég lagði upp með.“
KOLBRÚN RÓBERTSDÓTTIR MYNDLISTARMAÐUR Sinnir myndlistinni af ástríðu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Málar fyrir stað og stund