Fréttablaðið - 09.11.2005, Qupperneq 75
9. nóvember 2005 MIÐVIKUDAGUR
��������
�������
���������������������
�� � � �
������
����������
����
����������
��� ����
������
�����
����������������������������������������������������������������������� �����������
�
��
�
������������������������������ ����������������
������������ �������������� �� �����������
�����������������������������������
����������������������������������������������� ���������
�
���������������������������
������������������������
��������������
������������
��
�������������������������
���������������� ��������������
����������������������������������������������� ���
������������������������������������������������������������
����������������������������
Stjórnar
með sellói
gul tónleikaröð í háskólabíói
FIMMTUDAGINN 10. NÓVEMBER KL. 19.30
Hljómsveitarstjóri og einleikari ::: David Geringas
David Geringas, einn af frægustu sellistum heims leikur
einleik me› Sinfóníuhljómsveitinni á
fimmtudaginn og stjórnar einnig hljóm-
sveitinni. Efnisskráin er tilhlökkunarefni
og geislar af fjöri og lífsgleði.
SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS
Pjotr Tsjajkovskíj ::: Capriccio Italien
Luigi Boccherini ::: Sellókonsert í D-dúr
Antonín Dvorák ::: Sinfónía nr. 8
tónleikar í kirkjuhvoli, safnaðarheimili keflavíkurkirkju
FÖSTUDAGINN 11. NÓVEMBER KL. 20.00
Hljómsveitarstjóri ::: Kurt Kopecky
Einsöngvari ::: Sigrún Hjálmtýsdóttir
Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur tónleika í Kirkju-
lundi, safnaðarheimili Keflavíkurkirkju. Þar mun
okkar ástsæla söngkona Sigrún Hjálmtýsdóttir –
Diddú – flytja margar af sínum uppáhalds perlum.
Perlur og skrautaríur eftir Händel, Bellini,
Mozart, Offenbach, Bernstein og Verdi
Sinfónían í
Bítlabænum Stóra sviðSalka Valka
Lau 12/11 kl. 20 Fi 17/11 kl. 20
Fi 24/11 kl. 20 Fö 25/11 kl. 20
Su 4/12 kl. 20 Su 11/12 kl. 20
Woyzeck
Fi 10/11 kl. 20 Græn kort
Fö 11/11 kl. 20 Blá kort
Fö 18/11 kl. 20 Lau 19/11 kl. 20
Kalli á þakinu
Su 13/11 kl. 14 UPPSELT
Su 20/11 kl. 14 Lau 26/11 kl. 14
Su 27/11 kl. 14
Id - HAUST
Wonderland, Critic ´s Choice?
og Pocket Ocean
Su 13/11 kl. 20 Su 20/11 kl. 20
Mi 23/11 kl. 20
Aðeins þessar sýningar!
Nýja svið/Litla svið
Lífsins tré
Fi 10/11 kl. 20
Fö 11/11 kl. 20 UPPSELT Fö 18/11 kl. 20
Lau 19/11 kl. 20 Fö 25/11 kl. 20
Alveg brilljant skilnaður
Su 13/11 kl. 20 UPPSELT
Su 20/11 kl. 20 UPPSELT
Su 27/11 kl. 20 UPPSELT
Má 28/11 kl. 20 AUKASÝNING
Síðustu sýningar!
Manntafl
Lau 12/11 kl. 20 Fi 17/10 kl. 20
Fi 24/10 kl.20
GJAFAKORT
GEFÐU EFTIRMINNILEGA
UPPLIFUN
GJAFAKORT Í BORGARLEIKHÚSIÐ GILDA
ENDALAUST
17. sýn fös 11. nóv. - örfá sæti
18. sýn fös 18. nóv. - nokkur sæti
19. sýn lau 19. nóv. - nokkur sæti
20. sýn fös 25. nóv.
21. sýn lau 26. nóv.
22. sýn. 2. des.
23. sýn. 3. des.
Margt hefur verið pælt og skraf-
að um leikverkið Woyzeck eftir
Georg Brüchner. Hafliði Arn-
grímsson gerir sögu verksins góð
skil í leikskrá svo ekki ætla ég
mér þá dul að bæta um betur. En
af ástæðum sem Hafliði nefnir í
grein sinni er þetta verk tilvalið
fyrir hugmyndaríka leikhúslista-
menn að gera með það tilraunir. Af
því það er „ófullgert“ af hendi höf-
undar. Það er einmitt einn lykill að
dyrum sköpunarinnar. Hið ófull-
gerða. Gott leikverk á helst aldrei
að verða fullgert í þeim skilningi,
annars er það lítil ögrun við lista-
manninn sem ætlar að túlka það.
Vesturportshópurinn hefur
farið eins og öflugur plógur um
hinn frjósama svörð leiklistar-
innar hér á landi undanfarin ár og
sannar hér enn og aftur að það er
allt hægt í leikhúsi og það má allt
í leikhúsi.
Það er vel hægt að sitja úti í sal
og hugsa: „Til hvers er þetta brölt
allt? Af hverju má ekki bara segja
þessa sögu - þótt hún sé sundur-
laus?“ Í áranna rás hafa margir
leikstjórar spreytt sig á Woyzeck
eins og fingraæfingu, eins og til
að æfa sig í því að koma einhverri
heildarmynd á annars sundur-
slitin leikatriði sem byggð eru á
ljóðrænum texta og ekki síður er
textinn ögrun við leikarann og
persónusköpun hans. Það sem er
nýtt hér er hin fýsíska nálgun á
verkið og það er einkum hún sem
gerir sýninguna áhugaverða.
Sýningin er ekki einasta glæsi-
leg með sinni stórfenglegu leik-
mynd og þeim áhættusömu til-
burðum sem framdir eru á sviðinu
heldur er í henni einhver hugsun
sem gefur leikurunum nýja vídd
í túlkun sinni á persónunum.
Líkamleg nærvera þeirra verður
enn sterkari fyrir vikið og það
þýðir ekkert að æðrast yfir ein-
hverju sem maður kannski skilur
ekki því það er ekki til þess ætlast.
Það getur hver skilið á sinn hátt
einmitt vegna þess hve verkið er
opið í allar áttir.
Hvatirnar sem drífa manneskj-
una áfram í hverfulum heimi eru
og verða alltaf þær sömu og þessar
sömu hvatir leiða til tortímingar
hans á endanum. „En vér höfum
skynsemi“ segir einhvers staðar
og skynsemin á að vera hvötunum
æðri. Af einhverjum ástæðum
hefur okkur ekki tekist að breyta
heiminum til betri vegar með
skynseminni þegar komið er fram
á þriðja árþúsundið samkvæmt
voru vestræna tímatali.
Ingvar Sigurðsson og Nína
Dögg leika Woyzeck og Maríu en
mest mæðir á þeim í þessari sýn-
ingu. Fall Maríu fyrir majórnum
og afbrýðisemi Woyzecks verður
sá ás sem verkið hverfist um og er
túlkun leikaranna lýtalaus miðað
við gefnar forsendur. Þau nýta sér
þá líkamlegu mótstöðu sem fæst
af þeim athöfnum sem þau fremja
á sviðinu til að ná fram hreinum
sterkum tilfinningum.
Það verður að segjast eins og er
að athafnirnar voru miklu sterk-
ari og stærri en orðin í sýningunni
og það má deila um hvort orð hæfi
athöfn eða athöfn orði. Þó breytti
það engu um ánægjulega upplifun
mína af sýningunni. Ég heyrði til
dæmis áhorfanda fyrir aftan mig
segja: „Ég vissi aldrei almenni-
lega hvar þau voru“ og einn sagði:
„Þetta var ógeðslega flott en um
hvað var þetta eiginlega?“
Seint verða allir sammála um
leikhús en í stuttu máli þá er sýning
Vesturports enn ein skrautfjöðrin
í hatt þeirra og má mikið vera ef
sýning þessi á ekki eftir að ganga
í allan vetur.
MARÍA OG WOYZECK Nína Dögg Filippusdóttir leikur Maríu í sýningu Vesturports.
Ófullgerða sinfónían
LEIKLIST
VALGEIR SKAGFJÖRÐ
Woyzeck
Vesturport sýnir á Stóra sviði Borg-
arleikhússins / Woyzeck: eftir
Georg Büchner/ Leikstjóri: Gísli
Örn Garðarsson / Leikmynd: Börkur
Jónsson / Tónlist: Nick Cave og Warren
Ellis / Búningar: Filippía I. Elísdóttir /
Leikarar: Ingvar E. Sigurðsson, Nína
Dögg Filippusdóttir, Víkingur Kristjáns-
son, Harpa Arnardóttir, Björn Hlynur
Haraldsson, Ólafur Egill Egilsson, Árni
Pétur Guðjónsson, Erlendur Eiríksson,
Ólafur Darri Ólafsson, Jóhannes Níels
Sigurðsson.
Niðurstaða: Sýningin er ekki einasta
glæsileg með sinni stórfenglegu leik-
mynd og þeim áhættusömu tilburðum
sem framdir eru á sviðinu heldur er
í henni einhver hugsun sem gefur
leikurunum nýja vídd í túlkun sinni á
persónunum.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
NÓVEMBER
6 7 8 9 10 11 12
Miðvikudagur
■ ■ TÓNLEIKAR
20.00 Skólahljómsveit Kópavogs
heldur árlega hausttónleika sína í sal
Fjölbrautaskólans í Garðabæ.
20.30 Stórsveit Reykjavíkur
heldur tónleika í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Að þessu sinni verður bandaríski
útsetjarinn og básúnuleikarinn John
Fedchock við stjórnvölinn.
■ ■ FYRIRLESTRAR
12.20 Bergljót Magnadóttir
dýrafræðingur flytur fræðsluerindi
á vegum Tilraunastöðvar H.Í. í
meinafræði að Keldum. Erindið
fjallar um ósérhæfða ónæmiskerfið
og þorsk.
15.15 Jon Milner stundakennari
í dönsku heldur fyrirlestur um
þjóðernisvitund á vegum stofnunar
Vigdísar Finnbogadóttur í Lögbergi
stofu 102.
16.30 Gísli Tryggvason, talsmaður
neytenda, flytur fyrirlestur um
brýnustu hagsmuna- og réttindamál
neytenda á Félagsvísindatorgi
Háskólans á Akureyri, í stofu L-201 á
Sólborg við Norðurslóð.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.