Fréttablaðið - 09.11.2005, Page 79
1.090 kr.
Allar pizzur á
Hvítlauksolía fylgir!
Frítt SMS þegar pizzan fer í ofninn
7.–13. nóv.
58•12345
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
4
7
6
2
[TÓNLIST]
UMFJÖLLUN
Þessi sveit hefur frábæra afsök-
un fyrir þessu hræðilega hljóm-
sveitarnafni. Þau eru öll vel
undir tvítugu! Sveitin er byggð
utan um unglingspiltinn og Ash
aðdáandann Billy sem bauð
bróður sínum og kærustu að
vera með. Já, þau eiga eftir að
túra heiminn og upplifa rokklíf-
ernið, þannig að þetta getur ekki
endað vel.
Sú staðreynd að Bræðrunum
er ekki enn vaxin grön afsakar
það kannski líka að textarnir
eru hreint út sagt arfaslappir.
Sérstaklega í titillaginu Young
for Eternity, þar sem þau þakka
Drakúla greifa fyrir að hafa
gert þau að blóðsugum. Árafæð-
in afsakar líka ófrumlegheitin,
en það fer eftir lögum á hverja
sveitin minnir. Stundum Oasis,
stundum Ash stundum Coral
og stundum Yeah Yeah Yeahs.
The Subway´s hljómar eiginlega
aldrei eins og The Subway´s, því
sá hljómur er eiginlega ekki til.
Ég skil samt alveg fullkom-
lega af hverju þessi sveit fékk
plötusamning. Flutningurinn
og ungæðislegur krafturinn er
alveg ótrúlega grípandi. Þó svo
að lögin séu ófrumleg, festast
þau vel í minni og fá mann auð-
veldlega til þess að stappa hægri
fætinum með í takt. Þau hafa svo
greinilega hljóðritað með fag-
manni sem hefur náð að tryggja
þeim þétt og gott rokksánd sem
hljómar lifandi og rafmagnað.
Billy og kærastan hans Charlotte
hafa svo bæði flottar rokkraddir
sem virka vel saman. Ef þau ná
því á sviði sem þau hafa náð að
fanga á þessari plötu, þá er það
ávísun að góðu kvöldi.
Niðurstaðan er sú að þessi
frumraun The Subways er hvorki
fugl né fiskur fyrir þá sem eru
að leita að framsæknu, frum-
legu rokki. En vilji menn gríp-
andi lög, góða keyrslu skreytta
unglingabólum og einfalda texta
um vonbrigði unglingsáranna
þá er þetta líklegast hin full-
komna plata. Vonandi endist
ástarsambandið bara nægilega
lengi til þess að þau geti fund-
ið sinn eigin stíl og leyft sér að
þróast áfram. Því þetta er fínn
efniviður í alvöru rokksveit og
Billy er greinlega gott efni í
lagahöfund.
Birgir Örn Steinarsson
Eigum við að fá okk-
ur einn Subway?
THE SUBWAYS:
Young FOR ETERNITY
Niðurstaða: Frumraun The Subways er afar
ófrumleg, en hún bætir upp fyrir það með
fínum flutningi og ungæðislegri ákveðni. Ungl-
ingarokk, gert af unglingum með öllu
sem þeim fylgir.
Jack White, annar helmingur rokk-
dúettsins The White Stripes, hefur
breytt nafni sínu í Three Quid, eða
Þrjú pund. Mun hann heita þessu
nafni þar til tónleikaferð sveitar-
innar um Bretland lýkur.
White tilkynnti þetta tvisvar
sinnum á fyrstu tónleikum The
White Stripes í London á dögunum.
Ekki er vitað hvers vegna hann
ákvað þetta.
Hljómsveitin The White Stripes
heldur tónleika í Laugardalshöll
þann 20. nóvember næstkomandi
og bíða þeirra margir með mikilli
eftirvæntingu.
Breytir nafninu
í Three Quid
ÞRJÚ PUND Jack White mun heita Three
Quid það sem eftir lifir af tónleikaferð The
White Stripes um Bretland.
Leikkonan Jennifer Aniston er
orðin hundleið á því að vera kölluð
væluskjóða eftir að hún hætti með
hjartaknúsaranum Brad Pitt.
Nýverið kom fram í blaðagrein
í Vanity Fair að Aniston hafi
brostið í grát í viðtalinu. Aniston
segir þetta vera algjöra vitleysu í
viðtali við Newsweek. „Ég var fúl
út af greininni í Vanity Fair. Í eitt
skipti var ég örlítið klökk vegna
þess að ég hafði ekki sest niður
með blaðamanni síðan allt þetta
vesen hófst. Það stóð aðeins yfir
í eina sekúndu og síðan var það
búið,“ segir Aniston.
Hún segir það erfitt að þola
alla fjölmiðlaumfjöllunina vegna
málsins, sérstaklega vegna frétta
um að hún vildi ekki stofna fjöl-
skyldu með Pitt. Hún tjáir sig ein-
nig um þörfina fyrir einkalíf án
þess að þurfa að hafa áhyggur af
ágengum ljósmyndurum. „Þegar
ég er heima er ég að slappa af.
Ef ég fer út að borða með vinum
mínum er ég ekki að vinna. Hvað
er eiginlega að hjá fólki?,“ segir
hún.
Ég er engin væluskjóða
JENNIFER ANISTON Leikkonan sem sló
í gegn í Friends leikur næst í myndinni
Derailed.
1 dálkur 9.9.2005 15:22 Page 10
HUGSAÐU STÓRT
SÍMI 564 0000
Sýnd kl. 10.40 B.i. 16 ára
Sýnd kl. 5.40 og 8
Sýnd kl. 4 og 6
Sýnd kl. 3.50 með íslensku tali.
Frá leikstjórum There Is Something About Mary
Frá framleiðendum The Professional
og La Femme Nikita
����
SV MBL
Ný íslensk
heimildarmynd sem
hefur farið sigurför
um heiminn
Sýnd kl. 5, 8 og 10.45 B.i. 12 ára
“MEISTARASTYKKI”
H.E. Málið
����
DV
Sýnd kl. 5, 8 og 10.40
Sýnd í Lúxus kl. 5, 8 og 10.40
TOPP MYNDIN Á ÍSLANDI
���
Morgunblaðið
���
Topp5.is
Sýnd kl. 10.15 B.i. 16 ára
���1/2
Fyrirtaks skemmtun sem
hægt er að mæla með
MMJ - Kvikmyndir.com
���
SV MBL
���
“Frábær kvikmynd,
áhugaverðari og fyndnari en
flestar þær sem boðið hefur
verið upp á undanfarið”
-MMJ Kvikmyndir.com
SÍMI 551 9000
400 kr. í bíó! Gildir á allar sýningar merktar með rauðu
Sýnd kl. 6 Sýnd kl. 8 og 10 B.i. 16 ára
Hrikalega hraður háloftatryllir með Jamie Foxx,
Josh Lucas og Jessicu Biel í aðalhlutverkum.
FRÁ LEIKSTJÓRA FAST AND THE FURIOUS & XXX����
SV MBL
Ný íslensk
heimildarmynd sem
hefur farið sigurför
um heiminn
„MEISTARASTYKKI“
H.E. Málið
Adams Æbler • Sýnd kl. 6
Danskt tal/ótextuð
My Summer of Love • Sýnd kl. 6
Enskt tal/ótextuð
Lie With Me • Sýnd kl. 8
Enskt tal/íslenskur texti
The Aristocrats • Sýnd kl 8
Enskt tal/ótextuð
Kung Fu • Sýnd kl 10
Enskt tal/enskur texti
Yes • Sýnd kl 10
Enskt tal/ótextuð
��������������
����
DV
www.icelandfilmfestival.is �������������������������
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
���
“Frábær kvikmynd, áhugaverðari og fyndnari en flestar
þær sem boðið hefur verið upp á undanfarið”
-MMJ Kvikmyndir.com