Fréttablaðið - 09.11.2005, Side 83
38 9. nóvember 2005 MIÐVIKUDAGUR
23
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
6 7 8 9 10 11 12
Miðvikudagur
NÓVEMBER
MIÐVIKUDAGUR 5. október 2005
� � LEIKIR
� 18.15 Stjarnan 2 og ÍBV mætast í
SS-bikar karla í handbolta.
� 18.30 Þór Ak. og Selfoss mætast í
SS-bikar karla í handbolta.
� 19.15 Haukar og MÆTAST Í SS-
BIKAR KARLA Í HANDBOLTA.
� 19.15 VALUR og Stjarnan mætast í
SS-bikar karla í handbolta.
� 19.15 Keflavík og Grindavík
mætast í Iceland Express-deild
kvenna í körfubolta.
� 19.15 KR og ÍS mætast í Iceland
Express-deild kvenna í körfubolta.
� � SJÓNVARP
� 07.00 Olíssport á Sýn. Sýnt fjórum
sinnum til 09.00 og svo aftur kl.
17.40.
� 18.10 Meistaradeildin á Sýn.
Sýndur verður gamall leikur úr
keppninni.
� 19.50 HM 2002 á Sýn. Leikur
Brasilíu og Þýskalands.
� 22.00 Olíssport á Sýn.
� 22.30 Mastersmótið með
Icelandair og Ian Rush á Sýn.
22-23 sport 8.11.2005 18:03 Page 3
FÓTBOLTI Hollenski varnarmaðurinn
Winston Bogarde hefur ákveðið að leggja
skóna á hilluna fyrir fullt og allt, en þessi
fyrrverandi landsliðsmaður hefur verið í
tómu rugli síðustu ár eftir að hafa verið
á ofurlaunum í fimm ár hjá Chelsea án
þess að spila neitt af viti.
Bogarde er af mörgum talinn einn metn-
aðarlausasti knattspyrnumaður síðari ára
eftir að hann lýsti því yfir í viðtali að hann
væri mjög sáttur með að æfa með vara-
og unglingaliði Chelsea en vera jafnframt
einn best-launaðasti leikmaður liðsins.
Eftir að samingur hans við Chelsea rann
út hefur Bogarde verið í leit að föstu
liði, meðal annars hjá sínum fyrrverandi
vinnuveitendum í Ajax, en allstaðar hefur
honum verið hafnað. Nú hefur Bogarde
semsagt loksins gefist upp og ætlar að
njóta það sem eftir lifir ævinnar með því
að eyða öllum peningunum sem hann
fékk fyrir að gera ekki neitt hjá Chelsea.
- vig
Winston Bogarde:
Loksins hæt-
tur í boltanum
WINSTON BOGARDE Lék afskaplega lítið
á tíma sínum með Chelsea og fílaði það í
botn. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
NFL Peyton Manning og félagar í
Indianapolis Colts eru líklegastir
til að fara alla leið í NFL-deildinni
í vetur. Það undirstrikaði liðið með
því að leggja meistara New Eng-
land Patriots á mánudaginn á úti-
velli, 40-21.
Colts hefur þar með unnið alla
átta leiki sína í deildinni en Patr-
iots er ekki í sérstökum málum
með fjóra sigra og fjögur töp.
Þetta var sálfræðilega sterk-
ur sigur fyrir Colts enda hefur
Patriots verið sú hindrun sem
það hefur aldrei komist fram hjá
og leikstjórnandi Colts, Peyton
Manning, hafði tapað öllum sjö
leikjunum sem hann hefur spilað
gegn Patriots.
NFL-deildin:
Colts lagði
meistarana
PEYTON MANNING Tókst loksins að leggja
meistara Patriots. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
SS-bikar karla, 16-liða úrslit:
ÍR-FYLKIR 28-31 (13-15)
Mörk ÍR: Tryggvi Haraldsson 8/3, Hafsteinn Inga-
son 5, Ísleifur Sigurðsson 5, Ragnar Helgason 4,
Andri Númason 3, Björgvin Hólmgeirsson 2, Karl
Gunnarsson 1.
Varin skot: Gísli Guðmundsson 16/2.
Mörk Fylkis: Arnar Jón Agnarsson 8, Heimir Örn
Árnason 7, Ásbjörn Stefánsson 4, Eymar Kruger 3,
Brynjar Þór Hreinsson 3, Arnar Þór Sæþórsson 3,
Guðlaugur Arnarsson 2, Sigurður Valur Jakobsson
1.
Varin skot: Hlynur Morthens 29/1,.
AFTURELDING-HK 23-28
Mörk Aftureldingar: Haukur Sigurvinsson 7, Einar
Ingi Hrafnsson 4, Hrafn Ingvarsson 4, Hilmar Stef-
ánsson 3, Ásgeir Jónsson 2, Aleks Kuzmins 1, Ernir
Hrafn Arnarson 1, Magnús Einarsson 1.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 8, Davíð Þór
Svansson 7.
Mörk HK: Brynjar Valsteinsson 8, Elías Már Hall-
dórsson 6, Remigijus Cepulis 6, Valdimar Þórsson
6, Romualdas Gecas 1, Gunnar Jónsson 1.
Varin skot: Arnar Reynisson 25.
FH 2-FRAM 14-48
Mörk FH 2: Guðjón Guðmundsson 5, Valgeir Sig-
urðsson 3, Sigurður Þorgeirsson 2, Arnar Bjarna-
son 1, Eiríkur Jónsson 1, Hermann Fannar Val-
garðsson 1, Hörður Svanlaugsson 1.
Mörk Fram: Jóhann Gunnar Einarsson 11, Þorri
Björn Gunnarsson 10, Guðjón Finnur Drengsson
5, Guðmundur Arnarson 5, Sergey Serenko 4,
Stefán Baldvin Stefánsson 4, Haraldur Þorvarð-
arson 3, Rúnar Kárason 2, Sverrir Björnsson 2,
Gunnar Harðarsson 1, Sigfús Sigfússon 1.
FH ELÍTAN-FH 28-31
Mörk Elítunnar: Hálfdán Þórðarson 9, Brynjar
Geirsson 5, Guðjón Árnason 4, Sigurður Sveinsson
4, Jón Erling Ragnarsson 2, Einar Gunnar Sigurðs-
son 2, Guðmundur Karlsson 1.
Mörk FH: Valur Örn Arnarsson 7, Hjörtur Hinriks-
son 7, Andri Berg Haraldsson 7, Sigursteinn Arndal
2, Jón Helgi Jónsson 2, Linas Kalauskas 2, Pálmi
Hlöðversson 1, Finnur Hansson 1, Daníel Berg
Grétarsson 1.
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
FÓTBOLTI Það var lítil stemning hjá
stuðningsmönnum Hearts í gær
þegar Graham Rix skrifaði undir
samning um að þjálfa félagið út
þessa leiktíð. Ástæða gremju
stuðningsmanna félagsins var sú
að Rix er dæmdur maður en hann
sat í fangelsi árið 1999 fyrir að
hafa sofið hjá 15 ára stúlku.
„Ég gerði mistök fyrir sjö
árum en þegar ég áttaði mig á
mistökunum játaði ég glæp minn
og meðtók mína refsingu,“ sagði
Rix við undirskrfitina en fjöldi
stuðningsmanna Hearts skildi
derhúfur með merki félagsins
eftir við leikvang félagsins í mót-
mælaskyni við ráðninguna.
„Þetta var erfiður tími fyrir
mig og fjölskyldu mína en þarf að
refsa mér allt mitt líf fyrir þessi
mistök? Ég hef lagt hart að mér
við að byggja upp mannorð mitt á
nýjan leik og ég vil gjarna mynda
gott samband við stuðningsmenn
félagsins,“ sagði Graham Rix, stj-
óri Hearts. - hbg
Hearts ræður þjálfara:
Rix tekur við
af Burley
KÁTIR FÉLAGAR Rix sést hér ásamt hinum
umdeilda eiganda Hearts, Rússanum
Roman Romanov.
ÓLYMPÍULEIKAR Sendinefnd á vegum
alþjóða ólympíunefndarinnar er
stödd í Peking þessa dagana þar
sem hún skoðar hversu vel Kin-
verjum gengur að undirbúa fyrir
Ólympíuleikana sem fram fara í
Peking árið 2008.
Þetta er fimmta skoðunarferðin
sem farin er til Peking en nefndin
skoðar allt frá mannvirkjagerð-
inni til miðagerðar. Ólíkt Grikkj-
um, sem voru að byggja fram á
síðasta dag, þá eru Kínverjar á
fullri ferð og mynd farin að kom-
ast á mannvirkin.
Ólympíuleikarnir 2008:
Peking í skoð-
un
HANDBOLTI Bikarmeistarar ÍR
verja ekki titil sinn í ár en þeir
duttu úr keppni gegn sprækum
Fylkismönnum í Breiðholtinu í
gær. Jafnræði var með liðunum
framan af leiknum en Fylkir var
þó alltaf skrefinu á undan. Þeir
voru 13-15 yfir í hálfleik og létu
forystuna aldrei af hendi og hefðu
getað unnið mun stærra ef ekki
hefði verið fyrir kæryleysi undir
lokin en þeir leiddu 30-23 þegar
skammt varn eftir en lokatölur
urðu eins og áður sagði 31-28.
Hlynur Morthens átti enn einn
stórleikinn í marki Fylkis en hann
varði 29 bolta og lagði grunninn
að góðum sigri ásamt Arnari Jóni
Agnarssyni og Heimi Örn Árna-
syni sem saman skoruðu fimmtán
marka Fylkismanna.
Ég er mjög sáttur með að taka
bikarmeistarana úr umferð á
þeirra eigin heimavelli.“ sagði
Sigurður Valur Sveinsson þjálf-
ari Fylkis eftir leikinn. ,,ÍR spila
þessa hröðu miðju og stíla inn
á hraðaupphlaup en við gerðum
hvað við gátum til að stoppa það
og draga úr hraða leiksins og það
tókst mjög vel. Síðari hálfleik-
urinn var frábær að okkar hálfu
mest allan tímann, bæði í vörn
og sókn, og það lagði grunninn að
sigrinum í dag. Þegar vörnin er
svona þá kemur markvarslan líka
og Hlynur á stóran þátt í þess-
um sigri. Mér fannst þetta vera
öruggt allan tímann þrátt fyrir að
við höfum slappað aðeins af undir
lokin. Við fáum ekki á okkur nema
níu mörk fyrstu 24 mínúturnar og
erum mjög skynsamir og gerum
lítið af mistökum. Mistökin voru
sem betur fer ekki okkar megin í
þessum leik því það má alls ekki
gerast gegn liði eins og ÍR því þá
færðu það bara beint í andlitið.
Með þessu hugarfarinu hjá liðinu
þá geta þeir farið eins langt og
þeir vilja.“ sagði Sigurður Valur
að lokum, staðráðinn í að fara alla
leið með liðið.
Tryggvi Haraldsson var bestur
heimamanna í leiknum en hann
skoraði átta mörk og Hafsteinn
Ingason fimm. Gísli Guðmunds-
son varði sextán skot í markinu
og má þar kannski sjá muninn á
liðunum í leiknum. ,,Það er alltaf
leiðinlegt að detta út úr bikar-
keppninni og þá sérstaklega hérna
á heimavelli.“ sagði Júlíus Jónas-
son aðstoðarþjálfari ÍR eftir leik-
inn. ,,Það var á brattann að sækja
hjá okkur nánast allan síðari hálf-
leikinn en fyrri hálfleikurinn var
mun skárri þar sem við hefðum
hæglega getað haft yfirhöndina
en þeir voru með tveggja marka
forystu í hálfleik sem okkur gekk
erfiðlega að brúa. Ég er samt á því
að við höfum átt möguleika allan
leikinn. Við vorum alltof stirðir í
sókninni og fengum alls ekki jafn
góða markvörslu eins og oft áður
sem skilar færri hraðaupphlaup-
um. Það munar um markvörsluna
í þessum leik, Hlynur stóð sig
mjög vel og það skiptir miklu máli
í boltanum.“
- hþh
Fylkir sló bikarmeistara
ÍR úr SS-bikarkeppninni
Fylkir gerði sér lítið fyrir og sló út bikarmeistara ÍR, 31-28, í hörkuleik í Austur-
bergi í gær. Markvarsla Hlyns Morthens lagði grunninn að sigri gestanna.
ARNAR STERKUR Arnar Jón Agnarsson
skorar hér eitt átta marka sinna í gær.
GUÐLAUGUR GÓÐUR Varnartröllið frá Húsavík, Guðlaugur Arnarsson, átti fínan leik í vörn
Fylkis í gær og lét óvenju mikið að sér kveða í sókninni þar sem hann skoraði tvö mörk.
Guðlaugur sést hér skora annað þeirra án þess að Gísli Guðmundsson komi nokkrum
vörnum við. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HANDBOLTI ÞAð var ekkert gefið
eftir í leik Aftureldinngar og HK
í 16-liða úrslitum SS-bikarsins í
gær n Kópavogsbúar gerðu góða
ferð í Mosfellsbæinn þar sem þeir
sigruðu Aftureldingu, 28-23.
Leikmenn liðanna mættu hressir
til leiks í Mosfellsbænum í SS-bik-
arnum í gærkvöld og röðuðu inn
mörkum á upphafsmínútum. Eftir
að leikurinn róaðist og komst í
jafnvægi komst Afturelding hægt
og bítandi yfir þó svo að mark-
maður HK, Arnar Reynisson, hafi
haldið þeim inn í leiknum. Vörn
HK skánaði þó þegar líða tók á
hálfleikinn en sóknarleikur liðsins
var ekki upp á marga fiska, handa-
hófskenndur og óöruggur.
Í seinni hálfleik var allt annað upp
á teningnum og HK ætlaði augljós-
lega ekki að tapa öðrum leiknum
gegn kjúklingunum úr Mosfells-
bæ á nokkrum dögum.
Arnar hélt áfram að verja og liðið
var fljótt komið með fjögurra
marka forskot. Um miðjan síð-
ari hálfleikinn óð Ásgeir Jónsson
í andlitið á Elíasi Halldórssyni,
fyrrverandi leikmanni Aftur-
eldingar, sem lá óvígur á eftir í
þónokkra stund.
Allt HK liðið virtist slegið og
Afturelding náði á klóra sig inn í
leikinn og minnkaði muninn í 22-
23 þegar átta mínútur voru eftir.
Það var ekki síst að þakka góðri
innkomu Davíðs Svanssonar, sem
leysti Guðmund Hrafnkelsson af í
markinu.
En á lokasprettinum var það sig-
urviljinn sem skildi liðin að og HK
sigldi fram úr. Lokatölur 23-28.
Maður leiksins var án vafa Arnar
markmaður HK;
„Við vorum allt of linir við þá í
fyrri hálfleik en það lagaðist í
síðari hálfleik. Það hjálpaði mér
mikið að hafa kortlagt þá í leiknum
um daginn og tapið þá gerir þetta
ennþá sætara. Þetta er virkilega
sætur sigur“ sagði Arnar úrvinda
í gleðivímu að leik loknum.
- ghó
HK virðist vera að vakna til lífsins eftir dapra byrjun á tímabilinu:
HK sterkara á endasprettinum
en Afturelding
BRYNJAR BESTUR Hornamaðurinn Brynjar
Valsteinsson fór mikinn í HK-liðinu í gær
og dró vagninn lengstum fyrir liðið gegn
Aftureldingu.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN