Fréttablaðið - 09.11.2005, Síða 87
9. nóvember 2005 MIÐVIKUDAGUR42
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Humar
1.290, kr/kg
Ótrúlega gott verð á fínum humri.
Höfðabakka 1 - sími 587 50 70
1 dálkur 9.9.2005 15:18 Page 4
LÁRÉTT 2 íþrótt 6 í röð 8 drulla 9 veitt
eftirför 11 hljóta 12 fjöldi 14 áburður 16
nafnorð 17 fúadý 18 hress 20 á fæti 21
dugnaður.
LÓÐRÉTT 1 áburður 3 ógrynni 4 sendir 5
af 7 einkunnarorð 10 traust 13 útdeildi 15
truflun 16 andmæli 19 ónefndur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 golf, 6 rs, 8 for, 9 elt, 11 fá, 12
margt, 14 gúanó, 16 no, 17 fen, 18 ern, 20
tá, 21 iðni.
LÓÐRÉTT: 1 krem, 3 of, 4 loftnet, 5 frá, 7
slagorð, 10 trú, 13 gaf, 15 ónáð, 16 nei, 19
nn.
Afmælið hefur
forgang
Nei, ég hef ekki
hugsað mér að gera
það því ég á 25 ára
afmæli á sunnudaginn
og ætla ekki að eyða
því í einhverja vitleysu.
Mér finnst annars
ágætt að horfa á svona
verðlaunaafhendingar.
Þær eru ágætar til síns
brúks og alltaf gaman
að verðlauna fólk fyrir
það sem vel er gert.
Bruðl
Nei, ætli það. Mér
finnst satt best að
segja ekki mikil þörf á
prjáli á borð við Eddu-
verðlaunin. Þetta er
óttalegt bruðl og ég
hugsa að tíma fólks sé
betur varið í eitthvað
annað.
Sæki meira í verkin
Nei, ég hugsa að ég horfi ekki á þau. Ég hef svo sem
ekkert á móti Edduverðlaununum en þau heilla mig
ekki, satt best að segja. Ég sæki meira í verkin sjálf en
verðlaunahátíðarnar.
ÞRÍR SPURÐIR
Ætlarðu að horfa á Edduverðlaunin á sunnudag?
SVERRIR BERGMANN
söngvari
ÁGÚST BORGÞÓR SVERRISSON
rithöfundur
MARGRÉT HUGRÚN GÚSTAVSDÓTTIR
blaðamaður
Saga Roberts T. Edison er stór-
merkileg, en það fannst að minnsta
kosti Ólafi Jóhannessyni kvik-
myndagerðarmanni sem hefur
tekið upp heimildarmynd um ótrú-
lega ævi búddistans frá Notting-
ham. „Myndin er næstum því tilbú-
in. Fyrsta klipp er búið að fara um
allan heim, til bæði vina og óvina,
og hefur myndin fengið mjög
jákvæð viðbrögð,“ segir Ólafur,
sem er tilnefndur til Edduverð-
launa fyrir heimildarmynd sína,
Africa United. „Sú mynd tók sex
mánuði að fara í gegnum fyrsta
klipp, en myndin um Robert, sem
heitir Act Normal, kemur væntan-
lega í kvikmyndahús í febrúar.“
En hvernig kom þessi hugmynd
upp? „Þegar ég og Ragnar Santos
vorum að byrja í kvikmyndagerð
fyrir um það bil tíu árum vorum
við að gera mynd um tilgang lífs-
ins. (Sem við fundum nú á endan-
um. ) Þá tókum við upp viðtöl við
fólk af allskyns trúarbrögðum,
og einn af þeim var Englending-
urinn Robert Edison búddamunk-
ur sem var búsettur á Íslandi.
Okkur fannst þetta stórmerkileg-
ur maður og tókum upp mikið efni
með honum á næstu þremur árum
í þeim tilgangi að gera kvikmynd.
En svo bara gerðist ekkert sér-
stakt og við eiginlega vorum búnir
að slaufa verkefninu.“ En tveimur
árum síðar rakst Ragnar á Róbert
úti á götu í Reykjavík, kominn með
hár, konu og börn. „Þá hafði greini-
lega eitthvað mikið gerst, og við
tókum upp þráðinn,“ segir Ólafur
og hlær. Og sagan vatt upp á sig
– Róbert skildi við konuna sína,
sem hann hafði upprunalega hitt
í Kasakstan, eftir fimm mánaða
hjónaband. „Þá fór hann á þriggja
ára kvennafar og byrjaði að drekka
og svona. En á endanum fékk hann
leið á því og gerðist aftur munkur.
Nú býr hann í Taílandi og þar með
var þessum ótrúlega hring lokað.“
En af hverju heitir myndin „Vertu
eðlilegur?“ Þetta er nú tilvísun í
margt. Hvað er að vera eðlilegur
í okkar samfélagi? Þegar Róbert
þurfti að lifa eðlilegu lífi þá lenti
hann til dæmis í því að borga
reikninga og svoleiðis. Þá varð
hann alveg eins og asni og skildi
ekki neitt. Varð eins og fiskur á
þurru landi. Samt bjó hann yfir
ótrúlegri andlegri dýpt og visku.“
Það er Barði Jóhannsson, betur
þekktur sem Barði úr Bang Gang
sem bjó til tónlistina við mynd-
ina, og hún er í flutningi Sinfóníu-
hljómsveitar Búlgaríu. „Tónlistin
er hreint út sagt incredible,“ slettir
Ólafur. „Epísk og stórfengleg eins
og Barða er einum lagið.“
annabjornsson@frettabladid.is
ÓLAFUR JÓHANNESSON: GERIR HEIMILDARMYND UM BÚDDAMUNK
Munkur fer á kvennafar
Ólafur Jóhannesson ásamt Ragnari Santos, en heimildarmynd þeirra um búddamunkinn Róbert T. Edison mun birtast í kvikmyndahúsum
í febrúar.
„Þetta er rosalegt áfall. Þetta er
mesta tjón sem ég hef lent í á ævi
minni,“ segir Kristín Björk Kristj-
ánsdóttir tónlistarkona, ein af
stofnendum Tilraunaeldhússins,
sem varð fyrir því að fartölvunni
hennar var stolið í gærmorgun.
Kristín Björk gengur gjarnan
undir nafninu Kira Kira og var rétt
í þessu að senda frá sér sinn fyrsta
sólódisk sem heitir Skotta.
Á harða diski tölvunnar var að
finna allt hennar ævistarf í tón-
listinni, þar á meðal ómetanlegar
upptökur sem hún getur alls ekki
verið án.
„Þarna var öll músíkin sem ég
ætlaði að spila á útgáfutónleikum
fyrir plötuna mína eftir nokkrar
vikur,“ segir hún með grátstafinn í
kverkunum.
„Þessi tónlist er hvergi annars
staðar til. Ekki heldur músík fyrir
útvarpsleikrit sem ég átti að skila
í dag. Þetta er líf mitt og yndi, allt
sem ég hef samið á ævi minni er í
tölvunni.“
Þjófarnir hafa skriðið inn um
glugga heima hjá Kristínu á Snorra-
brautinni og hirt bæði Powerbook-
tölvuna og Pro-Tools upptöku-
kerfið sem hún notar.
„Ég fann bara kúbein við
hliðina á rúminu mínu þar
sem tölvan hafði verið.“
Kristín ákvað að leita
til fjölmiðla í þeirri von
að þjófarnir skili í það
minnsta tónlistinni
aftur til hennar.
„Ég vona bara
að það sé smá ljós
í hjartanu á þeim sem klifraði hérna
inn um gluggann hjá mér. Mér er
alveg sama um tölvuna, þeir geta
hirt hana mín vegna svo lengi sem
ég fæ músíkina mína aftur. Þess-
ari músík er ekki hægt að skipta út
fyrir neitt.“
Hún biður þjófana um að koma
tónlistinni til hennar eða skilja
gögnin eftir á góðum stað þar
sem hún getur nálgast þau.
Þeir geta komið til hennar
skilaboðum með tölvupósti
á kirakira@this.is.
KRISTÍN BJÖRK KRISTJÁNSDÓTTIR
Tölvunni hennar var stolið með
allri tónlist sem hún hefur
samið um ævina. Hún biður
þjófana um að skila sér
tónlistinni, tölvuna geta
þeir hirt.
HRÓSIÐ
...fær Landsbankinn fyrir að sýna
ljóðum grasrótarhreyfingarinnar
Nýhil áhuga.
Tónlistinni stolið frá Kiru Kiru
FRÉTTIR AF FÓLKI
Októberbíófest lýkur um helgina með glæsibrag en hryllingsmynd-
in Hostel verður alheimsfrumsýnd á
laugardaginn sem verður að teljast
býsna glæsilegur endir á vel heppnaðri
hátíð. Aðstandendur myndarinnar,
leikstjórinn Eli Roth og framleiðendurnir
Quentin Tarantino og
Chris Briggs, koma til
landsins á föstudag
ásamt aðalleikurunum
Derek Richardson
og Barbara Nedel-
jakova. Eyþór Guð-
jónsson sem fer
með eitt þriggja
aðalhlutverkanna
bætist í hópinn á
Íslandi. Hersingin
kynnir myndina
í sameiningu á
sérstakri galafrum-
sýningu í Smárabíói á
laugardaginn. Hópurinn
situr fyrir svörum að lok-
inni sýningu og í kjölfarið
verður slegið upp teiti á
skemmtistað í Reyjavík.
Áhuginn á Hostel er
mikill og aðdáendur Elis,
sem þykir skærasta von hryllings-
myndanna um þessar mundir, bíða sýn-
ingarinnar með óþreyju. Fyrirspurnum
hefur rignt yfir
aðstandendur
Októberfest
með pósti og
síma þar sem
fólk hefur verið
tilbúið til að
seilast langt
eftir miðum á
myndina.
Hagur þeirra sem bíða spenntast-
ir hefur heldur betur vænkast þar
sem ákveðið hefur verið að halda
tvær almenningssýningar á Hostel
á eftir alheimsfrumsýningunni. Þær
verða sunnudaginn 13. nóvember og
mánudaginn 14. nóvember klukkan 20
í Regnboganum. Miðasala á þessar sýn-
ingar hefst á fimmtudaginn klukkan 17 í
Regnboganum. Þeir sem eiga aðgangs-
passa á hátíðina fá forskot og geta
mætt klukkan 16 til að tryggja sér miða
á undan öðrum. Hostel er stranglega
bönnuð innan 16 ára og alls ekki fyrir
viðkvæma.
1 dálkur 9.9.200 15:18 Page 4
1 dálkur 9.9.2005 15:18 Page 4