Fréttablaðið - 12.11.2005, Síða 1

Fréttablaðið - 12.11.2005, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI MANNRÉTTINDI Davíð Þór Björg- vinsson, dómari við Mannrétt- indadómstól Evrópu, segir alvar- lega íhugað að hætta að taka við málum sem berist dómstólnum beint frá einstaklingum. Davíð Þór segir rætt um hvað beri að gera vegna vinnuálags á dómara og aðra starfsmenn. Hver sem vill og telur sig hafa ástæðu getur kvartað beint til dómstóls- ins án milligöngu lögmanna eins og venja er fyrir öðrum reglu- bundnum dómstólum. Þrátt fyrir að stórum hluta málanna sé vísað frá vegna margvíslegra formgalla verða dómarar engu að síður að yfirfara hvert og eitt mál og það er tímafrekt. Meðalbiðtími eftir úrskurði mála er tvö til þrjú ár. Sé um virkileg prófmál að ræða geta þau í verstu tilvikum tekið allt að tíu árum. Hætti dómstóllinn að taka við málum frá almenningi verður það grundvallarbreyting. „Ef svo verður er um hneyksli að ræða og mörg skref afturábak frá því sem nú er. Það er lágmarks- krafa að þær þjóðir sem að dóm- stólnum standa veiti honum það fé sem nauðsynlegt er til að halda starfi sínu áfram með óbreyttu sniði,“ segir Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögamður og segist ekki hafa mikla trú að til svo rót- tækra aðgerða verði gripið. Vandi Mannrétttindadómstóls- ins getur verið mikill. Davíð nefn- ir sem dæmi mál þar sem lögð var fram kæra vegna seinagangs í tyrkneska dómkerfinu. Seina- gangur Mannréttindadómstólsins var engu minni enda tók tæp tíu ár að ljúka málinu. Verði ekkert gert verði það venja fremur en undantekning að hvert og eitt mál taki fleiri ár í meðferð og miðað við þann fjölda sem daglega ber- ist til dómstólsins sé nauðsynlegt að gripið verði til aðgerða fyrr en síðar. - aöe Sími: 550 5000 LAUGARDAGUR 12. nóvember 2005 — 306. tölublað — 5. árgangur 3. til 12. nóvember í FBL 1x9 forsíðukubbur LEIFUR ÖRN SVAVARSSON Lóðréttur í ísfossi ferðir • bílar • tíska Í MIÐJU BLAÐSINS Hættir ÍR í handboltanum? Faðir handboltans í ÍR, Hólmgeir Einarsson, mun leggja það fyrir hand- knattleiksdeild ÍR að draga liðið úr keppni á Íslandsmótinu ef HSÍ hnekkir ekki dómi mótanefndar sem féllst ekki á beiðni ÍR um að seinka leik liðsins gegn ÍBV um einn dag. ÍÞRÓTTIR 16 VEÐRIÐ Í DAG Hverjir tróna á toppnum? Hverjir eru áhrifamestu Íslendingarnir undir 35 ára aldri? Fréttablað- ið kannaði málið. ÚTTEKT 44-45 EYÞÓR GUÐJÓNSSON Slær í gegn í hryllingsmynd Kennir Bandaríkjamönnum dónaorð FÓLK 70 Mannréttindadóm- stóllinn lokar á fólk Íslenskur dómari við Mannréttindadómstól Evrópu segir aðgerða þörf. Þúsund- ir mála bíði og hundruð bætist við daglega. Jafnvel verður hætt að taka mál frá einstaklingum, sem hafa verið hornsteinn dómstólsins. VARNARMÁL „Ef Bandaríkjamenn telja að hér þurfi ekki að vera sýni- legar varnir verða þeir að segja það, við munun aldrei neyða þá til að vera hér og við munum heldur ekki styðja þá í að vera hér ef þeir vilja ekki vera hér,“ sagði Halldór Ásgrímsson, formaður Framsókn- arflokksins, á miðstjórnarfundi í Kópavogi í gær. Halldór sagði samskipti þjóð- anna hafa verið vinsamleg en viðraði þó lítillega aðra kosti. „Það liggur alveg ljóst fyrir í mínum huga að ef samskiptin við Bandaríkin breytast verðum við að treysta samskiptin við Evrópu og okkar nágrannaríki,“ sagði hann. Hann kvaðst vera mjög ósáttur við það hversu hægt miðaði í við- ræðum og sagðist ekki bjartsýnn á að þær skýrðust á næstu mán- uðum. Hann sagði skoðanamun milli Íslendinga og áhrifamanna í Bandaríkjastjórn hafa valdið því að málið væri enn í ólestri þó tæp fimm ár væru liðin frá því að samningur þjóðanna rann út. „Við Íslendingar getum ekki verið sáttir við það að þessi mál séu með þessum hætti mikið lengur og við verðum að gera þá kröfu til Bandaríkjamanna að þeir tali skýrar í þessum málum,“ sagði hann. - jse / sjá síðu 6 Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra um varnarsamstarf við Bandaríkin: Herinn má fara ef hann vill HALLDÓR ÁSGRÍMSSON Á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins. HETJANNA MINNST Kenny Scott, 87 ára félagi í Hálandahersveitunum, við minnis- merki skoskra hermanna sem féllu í fyrri heimsstyrjöldinni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP LUNDÚNUM, AP Í gær var þess minnst víða um Evrópu að 87 ár voru liðin frá því samið var um vopnahlé í heimsstyrjöldinni fyrri. Klukkan ellefu að morgni ellefta dags ellefta mánaðar ársins 1918 þögnuðu byssurnar sem höfðu gelt nær linnulaust síðustu fjögur árin á undan. Tíu milljónir hermanna, hjúkrunarfólks og almennra borg- ara létu lífið í styrjöldinni. Í Lundúnum sló Big Ben ellefu högg og síðan féll kyrrð yfir Bret- land í tvær mínútur. ■ 87 ár frá lokum fyrra stríðs: Þögn sló á borgir Evrópu ÞAÐ VERÐUR HÆG norðanátt vestanlands en svolítill blástur austan- lands. Bjartviðri víða syðra en éljagang- ur á Norðausturlandi. Víða frost, allt að 6 stig. VEÐUR 4 Að kaupa sér ást „Smekkleysa,“ segir Ellert B. Schram, sem tók ástarbréfi frá mótframlaginu sínu ekki fagnandi. UPP ÚR EINS MANNS HLJÓÐI 16 SLYS Ökumaður fór út af veginum áður en hann kom að brúnni yfir vestari ós Héraðsvatna í Skaga- firði eldsnemma í gærmorgun og endaði ökuferðin úti í fljóti. Maðurinn slapp með minni háttar meiðsl og segir lögreglan það mikla mildi því árbakkinn er brattur þar sem bíllinn fór fram af. Ökumaðurinn var snöggur að koma sér á þurrt og húkkaði hann sér því næst far á sjúkrahúsið á Sauðárkróki. Lögreglan kallaði svo á björgunarsveitina til að ná bílnum upp úr Héraðsvötnum. Ekki sá mikið á bifreiðinni sem þó var ekki ökufær. Lögreglan á Sauðárkróki segir kankvíslega að eflaust fari skrjóðurinn þó í gang þegar runnið sé af honum. - jse Bílslys í Skagafirði: Ók ofan í Héraðsvötn OFAN Í HÉRAÐSVÖTNUM Skagfirskir björgunarsveitarmenn ná hér bílnum upp úr Héraðsvötnum en bílstjórinn kom sér sjálfur á þurrt og því næst á sjúkrahús en meiðsl hans voru minni háttar. MYND/ÓLI ARNI BRYNJARSSON DAVÍÐ ÞÓR BJÖRGVINSSON RAGNAR AÐALSTEINSSON
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.