Fréttablaðið - 12.11.2005, Blaðsíða 38
[ ]
Volkswagen-aðdáendur fagna
áreiðanlega nýrri og stærri
Jettu sem komin er á markað.
Bíllinn er léttur og leikandi en
hefur þó yfir sér virðulegan blæ.
Nýr Volkswagen Jetta rennur ljúf-
lega inn í Volkswagen-fjölskylduna.
Það er eiginlega eins og hann sé
Passat í aðra ættina og Golf í hina.
Volkswagen-svipurinn leynir sér
ekki og vissulega svipar honum
meira til Passatsins í útliti. Hann er
glæsilegur og sportlegur í senn og
hefur í raun svipmót stærri bíls.
Að innan er hið traustlega Volks-
wagen-yfirborð allsráðandi. Þarna
eru ekki teknir neinir sénsar held-
ur farnar sígildar og um leið vand-
aðar leiðir. Allt er hefðbundið og
ekkert kemur á óvart. Bíllinn er
afar vel búinn öllum þægindum og
má í því sambandi nefna rafstýrða
og rafhitaða útispegla, lesljós fram
í og aðgengilega stillanlegt stýri.
Sömuleiðis er bíllinn vel búinn
geymsluhólfum og drykkjarhöldum.
Af öryggbúnaði má nefna ESP-stöð-
ugleikýringu og að bíllinn er afar
vel búinn líknarbelgjum. Farang-
ursrýmið er einnig afar rúmgott og
nýtilegt miðað við stærð.
Reynsluekið var annars vegar bíl
með 1600 lítra 105 hestafla bensín-
vél og hins vegar bíl með tveggja
lítra 150 hestafla túrbódíselvél.
Báðir voru bílarnir liprir með ein-
dæmum og lágu vel og skemmtilega
á vegi, þökk sé meðal annars fram-
úrskarandi fjöðrun. Engan þarf þó
að undra að sá síðarnefndi var til
muna sprækari og því skemmtilegri
en hinn sem var þó algerlega fram-
bærilegur fjölskyldubíll í minni
kantinum en díselbíllinn hefur til að
bera snerpu og afl sem gerir akstur-
inn afskaplega ánægjulegan.
Volkswagen Jetta er bíll af
þægilegri millistærð sem hentar
til dæmis vel minni fjölskyldum og
öðrum þeim sem vilja rúmgóðan
en þó ekki of stóran bíl. Aðdáend-
ur Volkswagenbíla eru fjölmargir.
Þeim sem finnst Passatinn orðinn
of stór en vilja samt bíl með fágaðra
yfirbragð en Golfinn fá alveg örugg-
lega það sem þeir vilja í nýju Jett-
unni. steinunn@frettabladid.is
eru algjörlega málið núna. Þeir sem eru ekki komnir á nagladekkin
ættu að setja þau undir bílinn hið snarasta. Það er ekkert gaman
að keyra á af því að maður hefur ekki sýnt nógu mikla fyrirhyggju.
Nagladekk
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
BÍLSTJÓRAR - HÆTTIÐ AÐ PRÍLA!
RAFSTÝRÐAR YFIRBREIÐSLUR
FYRIR VÖRUBÍLA, VAGNA OG GÁMA
G.T. ÓSKARSSON EHF
VESTURVÖR 23, 200 KÓPAVOGUR
SÍMI 554 6000 • www.islandia.is/scania
Smurþjónusta
fyrir allar gerðir bíla
Eigum olíusíur í flestar gerðir bíla
Komdu með bílinn til okkar!
Frábær verð og góð þjónusta!
Alltaf heitt á könnunni!
Létt og leikandi Jetta
Volkswagen Jetta er sportlegur og um leið fallegur og rennilegur.
Volkswagen-svipurinn leynir sér ekki að framan með áberandi grillinu.
Innréttingin er afar hefðbundin og með
vandað yfirbragð.
Í mælaborðinu eru farnar hefðbundnar
leiðir.
Kringlótt afturljósin setja sterkan svip á
bílinn.
Skottið er þokkalega rúmgott miðaða við
stærð bílsins.
Mælar og tæki eru öll með afar hefð-
bundnu sniði.
REYNSLUAKSTUR
Volkswagen Jetta
1,6 l 102 hestafla 5 gíra bensín (Trenline) 1.990.000
2 l 1 50 hestafla 6 gíra dísel (Sportline) 2.550.000