Fréttablaðið - 12.11.2005, Blaðsíða 46
[ ]
Leifur Örn Svavarsson hefur
klifið ís frá því hann var 14
ára gamall. Hann er lærður
jarðfræðingur og hefur unnið
við leiðsögn hjá Íslenskum
fjallaleiðsögumönnum í nærri
tvo áratugi.
Leifur Örn Svavarsson hefur
klifið ófáan ísinn. Meðan margir
láta sér nægja rólegan göngutúr í
Heiðmörk hangir Leifur, lóðréttur
í línu, í frosnum ísfossi, fikrar sig
áfram með handafli og forvitnin
um hvað leynist ofan við næsta
hjalla rekur hann áfram.
„Við félagarnir höfum fengist
við ísklifur frá 14 ára aldri.“ segir
Leifur. „Í dag eru ekki eingöngu
ungir strákar fullir af endorfíni
í leit að útrás fyrir ævintýraþrá
sem stunda þessi sértæku áhuga-
mál. Á ísklifursvæðum í kringum
höfuðborgina
hittir maður
j a f n a l d r a
sína, sem eru
þá um og yfir
fertugt, sem
hafa ílengst
í sportinu og
líta á þetta
sem sína úti-
vist að komast
á fjöll þegar
vel viðrar,“
segir Leifur.
„Þegar fólk
byrjar í sportinu líta menn svo
á að því brattara og því erfiðara
þeim mun betra og horfa meira á
gráðuna á leiðinni. Því hærri því
skemmtilegra,“ segir Leifur. „Hjá
mér og mínum félögum hefur
þetta þróast og þroskast og við
lítum á þetta meira sem almenna
útivist. Okkur skiptir meira máli
að fá ferskt loft í lungun í fallegu
fjallaumhverfi,“ segir Leifur og
bætir við að í dag finnist honum
skemmtilegra að klifra minni
bratta. „Tæknilega erfiðar leið-
ir krefjast ekki bara mikils lík-
amlegs styrks heldur fer maður
mun hægar yfir.“ Leifur segir
sýnina á heiminn verða ótrúlega
þegar hlutirnir koma lóðrétt fyrir.
„Skemmtilegast er þegar maður
sér ekki alla leiðina upp á brún
eða upp á topp. Maður fer fyrir
næsta horn eða næsta stall og þar
býður eitthvað óvænt sem togar
mann áfram. Maður er með léttan
fiðring í maganum því maður veit
ekki hvort það bíða manns erfið-
leikar eða hvort maður kemst alla
leið upp á brún,“ segir Leifur. „Í
ísfossi í frosti og vetrarríki þar
sem er rennandi vatn í hitastigi
undir frostmarki ísast allt upp
sem vatnið snertir, hvort sem það
er fatnaðurinn, hjálmurinn eða
línurnar þá frýs allt undir eins.
Þegar maður er búinn að vera í
baráttu við klakann í einhverja
klukkutíma og kominn upp á brún
þá er maður hreinlega frosinn eins
og grýlukerti.“
Leifur hefur farið víða með
mannbroddana á þeim tveimur
áratugum sem hann hefur stundað
ísklifur, bæði erlendis og innan-
lands. „Vinsælustu klifurleiðirnar
hérlendis eru ísfossar í Esjunni
og í Múlafjalli. Norðurveggur-
inn í Skarðsheiðinni og norðvest-
urveggurinn á Skessuhorninu,“
segir Leifur.
Leifur segir að til allrar lukku
hafi hann sloppið án þess að lenda
í verulegum hættum. „Ég tók 35
metra fall einhvern tímann og það
er ekki á hverjum degi sem maður
labbar burt frá svoleiðis löguðu.
Eftir slíkt ævintýri, og eftir að
maður er kominn með börn, þá
vill maður gera hlutina á öruggari
hátt og ekki taka sömu áhættur og
maður gerði fyrr á ferlinum.“
Þeir sem hafa áhuga á að kynna
sér sportið geta farið á byrjenda-
námskeið hjá íslenska Alpaklúbb-
inum. Námskeiðin hefjast 26.
nóvember og eru í samvinnu við
íslenska fjallaleiðsögumenn.
johannas@frettabladid.is
Lóðréttur Leifur í ísfossi
Guðmundur Helgi klifurfélagi
Leifs í lóðréttum Esjudansi.
Leifur Örn Svavarsson
ísklifrari. Finnst heim-
urinn líta betur út frá
lóðréttu sjónarhorni.
1 Orion í Hvalfirði. Ísklifur reynir á líkamlegan styrk. Sérstaklega
þegar jafn stórir ísfossar og þessir
eru klifnir.
2 Fikrað sig áfram í Skarðsheiði í átt
að klifurleiðum.
3 Klifið í Brynjudal. Hjörleifur
ísklifrari meðlimur í Íslenskum
fjallaleiðsögumönnum
4 Point 5 í Skotlandi. Einar Torfi félagi Leifs á leið á toppinn.
5 Leifur Örn á Point 5 í Skotlandi árið 1987.
1 2
3
54
Ísland er eitt stórt útivistar-
svæði og er landinn hvattur til
að nýta sér það.
Ferðafélögin á Íslandi eru virk
allan ársins hring og halda úti
ferðaáætlunum þar sem allir
geta fundið eitthvað við sitt
hæfi. Veturinn heldur ekki sönn-
um útivistarmönnum frá ferska
loftinu enda getur náttúran verið
ægifögur í vetrarbúningi. Á döf-
inni fram undan er meðal annars
aðventuferð til Þórsmerkur með
Útivist sem er stórskemmti-
leg fjölskylduferð, Ferðafélag
Íslands ætlar að ganga á Skjald-
breið seinna í mánuðinum og
njóta vetrarsólstaðanna á Esjunni
í desember. Göngugleði Ferðafé-
lagsins hittist reglulega á sunnu-
dagsmorgnum í léttar göngur.
Útivistarræktin er svo með sínar
ferðir á mánudags- og fimmtu-
dagsdagskvöldum. Súrefnislaus-
ir útvistarmenn eru hvattir til að
fylgjast með heimasíðum útvi-
starfélaganna og ýmissa klúbba
sem leggja stund á útiíþróttir.
Á heimasíðunum má finna hvað
er á döfinni og koma sér í góðan
félagsskap í fallegu umhverfi og
fá hreint loft í lungun.
Byrjið á þessum síðum og
eltið svo tenglana.
www.fi.is
www.utivist.is
www.utivera.is
www.ganga.is
Öflug íslensk
ferðafélög
Útivistaráhugamenn eru hvattir til að nýta
sér starfsemi öflugra ferðafélaga á Íslandi.
Við Skeiðárjökul.
1 dálkur 9.9.2005 15:19 Page 6
����������������
����������������������
�����������������������������
������������������ ���������������
�������������������������
�����������������
VEGABRÉF
er nauðsynlegur ferðafélagi, líka þót ferðast sé innan Schengensvæðisins. Til
öryggis er gott að eiga ljósrit af vegabréfinu sínu bæði heima og meðferðis.