Fréttablaðið - 12.11.2005, Blaðsíða 4
4 12. nóvember 2005 LAUGARDAGUR
Þú heldur kannski að
dýrasögur séu bara fyrir
smábörn? Það er alrangt.
Ekki þessar dýrasögur að
minnsta kosti.
Lúmskar og spennandi
sögur, fyrir þá sem þora
að heyra hvað dýrin hafa
að segja!
Frábærar myndir eftir
Halldór Baldursson.
KOMIN Í
VERSLANIR!
edda.is
NETIÐ Nú hefur stórfyrirtækið
Google blandað sér í slaginn um
þá viðskiptavini sem ferðast hvað
mest og býður nú nýja þjónustu
þar sem allir eiga að geta fundið
ódýrustu flugmiða sem völ er á
gegnum vefsíðu fyrirtækisins.
Þetta er í sjálfu sér ekkert
nýmæli enda önnur vefsetur sem
þetta hafa boðið lengi en Google
leitar víðar en hingað til hefur
þekkst og ekki ólíklegt að leitar-
vél þess eigi eftir að skjóta öðrum
slíkum ref fyrir rass. ■
Ný þjónusta Google:
Finnur ódýr
flugfargjöld
SÁ Á FUND SEM FINNUR Auðvelt er að
finna ódýr flugfargjöld gegnum Google.
DÓMSMÁL Sýslumaðurinn í Reykja-
vík hafnaði í gær lögbannskröfu
á sýningu heimildarkvikmynd-
arinnar Skuggabörn og var hún
frumsýnd í gærkvöld í Regnbog-
anum eins og áætlað var.
Skuggabörn fjallar um und-
irheima Reykjavíkur og í henni
er fylgst með blaðamanninum
Reyni Traustasyni sem rannsak-
að hefur þá veröld síðastliðin tvö
ár. Við sögu í henni kemur ungur
maður sem lést eftir að myndin
var gerð og var það móðir hans
sem óskaði eftir lögbanni vegna
myndskeiðs af honum látnum.
Var myndskeiðið klippt út en
konan hélt lögbannskröfu sinni
til streitu. Féllst sýslumaður ekki
á rök hennar en myndin verður
sýnd í Sjónvarpinu næstkomandi
þriðjudagskvöld. - aöe
Heimildarkvikmyndin Skuggabörn:
Sýslumaður hafnaði lögbanni
UNA GLAÐIR VIÐ SITT Aðstandendur Skuggabarna önduðu léttar í gær eftir að Sýslumaður-
inn í Reykjavík hafnaði lögbannskröfu á myndina. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 11.11.2005
Gengisvísitala krónunnar
61,82 62,12
107,62 108,14
72,32 72,72
9,697 9,753
9,339 9,395
7,549 7,593
0,5236 0,5266
88,04 88,56
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
102,5038
GALLUP Engar þjóðir njóta ásta
jafn mikið í eldhúsinu eins og
Svíar og Japanir. Fimmti hver ein-
staklingur í þessum löndum segist
hafa stundað ástarleiki í eldhúsinu
einu sinni eða oftar. Þetta eru nið-
urstöður nýrrar Gallup-könnunar
sem gerð var fyrir Ikea í 28 lönd-
um.
Áhugi japanskra karlmanna á
eldhúsinu virðist einskorðast við
kynmök því aðeins þrjú prósent
þeirra segjast sjá um matseldina
á sínu heimili. Hins vegar eru
það Finnar sem skipa efsta sætið
þegar kemur að því að elda nak-
inn. Þriðjungur finnsku þjóðar-
innar hefur prófað það.
Tilgangur könnunarinnar var
að fá betri sýn á hegðun og athafn-
ir fólks í eldhúsinu til að auðvelda
vöruþróun á innréttingum og
áhöldum. ■
Hegðun fólks í eldhúsinu:
Svíar og Japan-
ar njóta ásta
SVÍÞJÓÐ Lögreglunni í Jönköping
barst tilkynning um að sprengja
væri í bíl við Háskólabókasafn-
ið þar í bæ um hálf átta leytið í
gærmorgun. Á sama tíma rændu
fjórir til sjö vopnaðir menn pen-
ingageymslu öryggisfyrirtækis-
ins Securitas. Ræningjarnir óku
pallbíl í gegnum hurð á öryggis-
fyrirtækinu og flúðu af vettvangi
á bílum og mótorhjólum.
Tæplega tíu þúsund nemendum
og starfsfólki skólans var gert að
yfirgefa háskólasvæðið á meðan
lögreglan leitaði sprengjunn-
ar. Síðdegis kom í ljós að engin
sprengja var í bílnum. Arnar
Viðarsson, sem stundar nám við
Alþjóða viðskiptaháskólann í
Jönköping, var meðal nemenda
sem var gert að rýma háskóla-
svæðið. „Nemendur voru beðnir
að yfirgefa skólann en þetta fór
allt saman mjög rólega fram,“
segir Arnar sem áttaði sig ekki á
því í fyrstu hvers vegna bygging-
arnar voru rýmdar. „Nei, ég varð
ekki hræddur. Ég fór fyrst að
athuga hvort einkunnirnar mínar
væru komnar áður en ég áttaði
mig á hvað um væri að vera,“
segir Arnar.
Meðan lögreglan gerði við-
eigandi varúðarráðstafanir við
bókasafnið rændu vopnaðir menn
öryggisgeymslu Securitas. Fjórir
öryggisverðir Securitas læstu sig
inni á meðan ræningjarnir athöfn-
uðu sig en að sögn vitna tók ránið
ekki nema um hálfa mínútu. Lög-
reglan kom ekki í öryggisgeymsl-
una fyrr en um klukkustund eftir
að ræningjarnir voru á bak og
burt, þótt það væri einungis tæpur
kílómetri á milli öryggisgeymsl-
unnar og háskólabókasafnsins.
Sprengjusveit lögreglunn-
ar í Malmö var kölluð til við
háskólabókasafnið. Hún notaðist
meðal annars við tvö vélmenni
til að ganga úr skugga um hvort
sprengja væri í bílnum.
Ekki er vitað hversu miklum
peningum ræningjarnir stálu. Að
sögn talsmanna Securitas náðu
þeir aðeins lítilli fjárhæð en að
sögn vitna báru ræningjarnir
fimm peningasekki út úr öryggis-
geymslunni.
Ránið í gær er eitt fjölmargra
rána sem framin hafa verið í Sví-
þjóð síðustu mánuði. Í síðustu
viku var peningaflutningabíll frá
Securitas sprengdur og peningum
úr honum rænt. Öryggisverðir
Securitas hafa lagt niður störf þar
sem þeir óttast um öryggi sitt.
Sérsveit lögreglunnar, sem var
sérstaklega stofnuð til að vinna
gegn ránum á peningaflutninga-
bílum, hafði ekki verið kölluð út í
gærkvöld.
Ræningjar léku á lögreglu
Vopnaðir menn rændu peningageymslu öryggisfyrirtækisins Securitas í bænum Jönköping í
Svíþjóð í gær. Ljóst er að ræningjarnir afvegaleiddu lögregluna með sprengjuhótun við háskólann í
Jönköping en þar eru að minnsta kosti fjórir Íslendingar við nám. Engin sprengja fannst.
RÓBÓTAR LEITA SPRENGJU Sænska lögreglan beitti ýtrustu varkárni vegna sprengjuhótunar ræningjanna við Háskólann í Jönköping og
notaði fjarstýrða róbóta til að ganga úr skugga um það hvort sprengja væri í bílnum eða ekki. Stóru svæði í kringum skólann var lokað af
meðan á leitinni stóð en engin sprengja fannst. MYND/HENRIK SEVERED
ARNAR VIÐARSSON Einn þeirra nemenda
sem var gert að yfirgefa háskólasvæðið í
Jönköping vegna sprengjuhótunar. Hann
kippti sér ekki upp við tilstandið.
DANMÖRK Danska ríkisstjórnin
íhugar nú breytingar á frumvarpi
um varnir gegn hryðjuverkum. Í
frétt Berlingske Tidende segir að
þetta sé gert í kjölfar niðurstöðu
breska þingsins um að fella sams
konar frumvarp þar í landi.
Talið er líklegt að heimildir til
símahlerana og myndbandsupp-
töku á opinberum stöðum verði
ekki eins rúmar og upphaflega
var gert ráð fyrir.
Frumvarpið hefur töluvert
verið gagnrýnt í Danmörku, ekki
síst af þingmönnum ríkisstjórnar-
flokkanna. - ks
Hryðjuverkalög í Danmörku:
Frumvarpið
verður mildað