Fréttablaðið - 12.11.2005, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 12.11.2005, Blaðsíða 28
 12. nóvember 2005 LAUGARDAGUR28 Esjan skartar hvítu og íburð-armiklu sjali þann ískalda morgun þegar konan sem Íslendingum er hvað kunnust fyrir ritstörf og ærlega gagnrýni á listir setur ketilinn yfir. „Það þýðir ekkert að vera hrædd,“ segir Súsanna spurð hvernig hún hafi kjark að opin- bera eigið bókmenntaverk eftir að hafa sent rithöfundum tóninn í áranna rás. „Ég hef sjálf fengið óvægna gagnrýni, og þótt sumum hafi fundist ég miskunnarlaus á köflum var ég um leið einstak- lega jákvæður gagnrýnandi,“ segir Súsanna sem les vel yfir tvö hundruð bækur á ári. Morðplott í San Fransiskó Það var skömmu eftir síðustu jól að Súsanna gaf vinum og vanda- mönnum bókasafnið sitt og hélt utan til San Fransiskó til að ljúka við gerð Dætra hafsins. Sagan segir af frænkunum Herdísi og Ragnhildi sem fær í hendur dul- arfullar minningabækur þeirrar fyrrnefndu eftir að hún er myrt með grimmilegum hætti. Við nán- ari athugun kemur í ljós að Her- dís var kynlífsfíkill með svæsin leyndarmál í farteskinu. „Konur verða mér alltaf yrkis- efni og ég velti fyrir mér hlutskipti þeirra sem manneskjur í veröld- inni. Þá er ég ekki að tala um jafn- réttisstöðu í námi og starfi, held- ur því félagslega, bælda uppeldi sem stúlkur hljóta en eiga að enda sem heilbrigðar og skynsamar á eftir. Þær eiga að vera eins per- sónur frá fæðingu til hárrar elli, og ef þær eru ekki alltaf eins alla tíð eru þær taldar óáreiðanlegar. Þannig er meðvitað bælt niður í okkur hve við erum margþættir, flóknir persónuleikar,“ segir Sús- anna alvarleg í bragði, en viss um að margir eigi sér jafn leyndar- dómsfullt líf og Herdís í bókinni. „Margir eru fastir í þeim eina þætti persónuleikans sem leyfi- legt er að sýna og þótt við séum næsthamingjusamasta þjóð heims vitum við að mörgum líður ofboðslega illa. Við höfum háa sjálfsmorðstíðni, þunglyndislyfja- neyslu og margir eru í kröm þótt þeir nái að setja upp grímu þegar þeir labba út heiman frá sér til að mæta í vinnu eða öðru fólki. Her- dís, á hinn bóginn, lifir lífi sem við höfum ekki leyfi til að lifa og algjörlega út frá þeim þætti sem er bannaður,“ segir Súsanna sem fléttar inn í söguna grískri goða- fræði. „Grísku guðirnir gerðu allt sem mennirnir mega ekki. Þeir sofa hjá þeim sem þeim sýnist, refsa og hefna sín, elska í botn og fylgja sínum örlögum alla leið. Þeir lifa hinu mennska lífi til fulls, meðan hinir mennsku þurfa að lifa guð- legu lífi,“ segir Súsanna brosmild. Karlmenn æðislegir Í bók Súsönnu kemur fram það sjónarmið að í hugum kvenna séu karlmenn annað hvort leikföng, óþarfir eða táknmynd ástarinnar. Í huga Súsönnu eru karlmenn ein- faldlega æðislegir. „Ég dáist að karlmönnum, hef aldrei haft náttúru til kvenna og finnst karlmannskynfærin flott. Hins vegar á ég að baki þrjú hjónabönd sem öll stóðu stutt og var í lokin á gati með hver ég eig- inlega væri og um hvað líf mitt snerist. Vitaskuld hef ég farið í gegnum þá gremju sem einstæðar konur til lengri tíma ganga í gegn- um og sótt mér elskhuga þegar ég þurfti á þeim að halda. Hef þann- ig algjörlega afsannað þá mýtu að konur þurfi að vera ástfangnar til að sofa hjá karlmönnum eða fá fullnægingu í kynlífi,“ segir Sús- anna af einlægni og ákveðni. „Ég hafði kynhvöt og vildi sofa hjá, en ég mæli ekki með skyndi- kynnum. Þau hafa alltaf tilfinn- ingaleg áhrif á mann og stund- um fékk ég óbragð í munninn og fannst ég hafa sett niður. Það heggur skarð í sjálfmat manns og sjálfsvirðingu. Ég fylgdist náið með öllum tilfinningum og viðbrögðum því mig langaði að vita hvers vegna ég gerði hlutina svona, en eftir síðasta hjónaband- ið dró mikið úr þessum athöfnum því ég vissi ekki hvað ég vildi né hvar ég stóð sem kynvera,“ segir Súsanna sem í þriðja hjónabandi sínu hafði gifst kynlífsfíkli. „Áhugi hans á kynlífi snerist um allt sem var handan við eðlileg mörk. Ég var ekki tilbúin að fylgja honum eftir og þá gat hjónaband- ið ekki lengur staðist. Því stóð hann upp einn daginn og sagðist ekki nenna að vera kvæntur mið- vikudagskonu eins og mér. Ég var heppin að losna við hann, en fór upp frá því að velta fyrir mér hvað ræður kynhegðun okkar,“ segir Súsanna sem í kjölfarið skrifaði erótískt smásagnasafn þar sem hún skoðar tengsl milli sálarlífs og kynhegðunar. Gróteskt frelsi kvenna Eftir uppgjör og upprætingar á þröskuldum lífsins segist Súsanna frjáls og laus við höft sem henni voru innprentuð af samfélaginu sem hún ólst upp í. „Hingað til hef ég ekki verið tilbúin til að gefa af sjálfri mér og þá er ekki hægt að vera í ástar- sambandi. Ég hef hvorki haft tíma né orku í að byggja upp samband, en birtist ástin tek ég henni fagn- andi. Ef ekki, tek ég lífi mínu eins og það kemur einnig fagnandi. Mér líður ofsalega vel án ástarinn- ar en hef ekkert á móti henni, því þá veit ég að mér líður svo miklu betur. Ég er bara svo hryllilega rómantísk að mér er ómögulegt að byggja upp langtímasamband án þess að vera ástfangin,“ segir Súsanna sem aldrei hefur litið á karlmenn sem leikföng; hvað þá barnaleikföng. „Til eru margir mjög varhuga- verðir gripir, rétt eins og konur. En karlmenn heilla mig og ég dáist að hæfileika þeirra til að viðhalda leiknum og geta hald- ið áfram að leika sér. Við konur höfum tilhneigingu til að halda að heimurinn sé að mæna á okkur og tökum okkar svo dauðans hátíð- lega, en heiminum er skítsama. Við erum strangar við sjálfar okkur, ábyrgar og viljum sýna að við stöndum okkur þótt strákarn- ir geri það ekki, en til hvers? Af hverju njótum við ekki bara lífs- ins líka?“ spyr Súsanna og setur upp undrunarsvip. „Karlmenn halda áfram að njóta lífsins og leika sér þótt þeir kvænist og eignist börn, en þegar konur ætla að brjótast undan höftunum kunna þær það ekki, en drekka sig í staðinn fullar og verða hrollvekjandi ágengar. Ég hef horft upp á konur beita karl- menn kynferðislegu áreiti sem karlmenn mundu lenda í fangelsi fyrir. Það finnst mér ömurleg þróun því það er ekkert frjálst við að vaða upp að karlmanni, grípa í klofið á honum eða nudda sér upp við hann á fylleríi inni á skemmtistað. Of oft hef ég þann- ig horft á konur segja algjörlega skilið við sjálfsvirðingu sína til að upplifa frelsi, en þetta er gróteskt frelsi sprottið af því að við þekkj- um ekki okkar eigin takmörk og ramma, og skortir forsendur til að stunda frálslegan lifnað á heil- brigðan hátt.“ Kvalafull kynlífsfíkn Í Dætrum hafsins missir sögu- persónan Herdís tökin á kynlífs- fíkn, en kynlíf er rauður þráður í sögufléttu Súsönnu. Hún segir af og frá hægt að skrifa bók af þess- um toga nema hafa reynt hlutina sjálfur. „Allt er þetta mín lífsreynsa og ég sjálf er alls staðar í bók- inni, en hvað kynlífslýsingarnar varðar hef ég ekki reynt það allt, en þó farið á kynlífsklúbbinn sem Herdís stundar og á sér stoð í raunveruleikanum. Þangað var ég dregin án þess að hafa hugmynd um hvert ég var að fara og var fljót aftur út, en ástandið þar inn- andyra var skelfilegt. Hrein skelf- ing,“ segir Súsanna sem í þriðja hjónabandinu upplifði beint í æð hvað kynlífsfíkn þýðir og hvernig sjúkdómurinn þróast. „Þegar eiginmaður minn aðhafðist eitthvað var spennan yfirgengileg, en þess á milli var hann brotinn og átti svakalega bágt. Þetta er hrikaleg fíkn og líðan. Látlaus kvöl og sársauki fyrir alla sem að sjúklingnum standa,“ segir Súsanna sem við- urkennir að örðuglega hafi gengið að skrifa um kynlíf í bókinni. „Tilfinningalega var það ekki erfitt, en það sem gerði verkið strembnara er hvað íslenskan er fátæk af orðum. Í orðaforða okkar er nánast þögn um allt sem við- kemur kynlífi og í raun stórmerki- legt hve mörg fordæmandi hugtök finnast um konur sem stunda kynlíf með þeim sem þeim sýnist, en engin samsvarandi hugtök um karla í sömu sporum. Af þessu má einnig sjá að konur eru dæmdar sem kynverur. Ætlum við okkur að njóta kynlífs á eigin forsendum erum við jafnvel ekki taldar ráða við störf sem við höfum unnið við árum saman. Þetta veit Herdís í sögunni og grjótheldur því kjafti yfir sínu kynlífi, því hún veit að það kostar hana allt; mannorð, vinnu og afkomumöguleika. Þetta veit Ragnhildur líka og er búin að loka á þennan möguleika í sínu lífi, enda ekta íslensk stúlka sem stendur sig vel en líður ofboðslega illa.“ Að elska og sleppa Súsanna segist með Dætrum hafs- ins hafa skrifað bókina sem hún vildi skrifa og vera afar sátt við útkomuna. „Ég tók bara bankalán og dreif mig til San Fransiskó því ég vissi að hér heima mundi ég ekki setjast niður til að skrifa. Þar þekkti ég engan og liðu oft heilu vikurnar án þess að ég sæi mann- eskju, aðra en þá sem urðu á vegi mínum þegar ég fór út að ganga eða skrapp í Broder‘s-bókabúðina eða á djassbar til að fá næringu og hugsa,“ segir Súsanna og játar að vera illa haldin af heimþrá. „Það er margt gott í Banda- ríkjunum en ég sakna Íslands og Íslendinga mikið. Íslendingar eru svo skemmtilega galnir og framkvæmdasamir, og hér ríkir skemmtilega abstrakt hugsun. Í hnattvæðingarsamfélaginu er tilhneiging til að gera alla eins, en Íslendingar eru skrautlegur flokkur. Og þótt í San Franciskó búi allar þjóðir heims er þar meiri persónuleikaflatneskja en hér á litla Íslandi. Ég hef þannig aldrei hitt mann sem mig langar til að deita í þessu 300 milljóna samfé- lagi, en hér hitti ég þá á hverju horni!“ segir Súsanna og skellir upp úr. Segist aldrei hafa alið með sér rithöfundadraum, enda blaða- mennskan hennar líf og yndi. „Ég ætlaði aldrei að skrifa bók en eftir annan skilnaðinn var ég mikið ein með börnin og langt niðri því ég sá svo ofboðslega eftir manninum og þeim draumi sem hefði getað orðið. Þegar kvöld- aði um helgar var ég sérstaklega niðurdregin, en hafði áskotnast tölvuskrifli sem ég notaði mér til skemmtunar við að skapa minn eigin heim, sem var bæði fynd- inn og skemmtilegur, og þar sem allir gerðu tóma vitleysu. Það hélt í mér lífinu í heilan vetur,“ segir Súsanna, en skrif hennar heima í stofu bárust útgefendum óvart til eyrna. „Í hvert sinn sem ég hef lokið við að skrifa bók hef ég svarið að skrifa ekki aftur, en svo leitar á mig efnið. Jóhann Páll Valdimars- son útgefandi beitti klækjum til að ég kláraði Dætur hafsins og ég er honum þakklát. Finnst ég hafa töluvert að gefa og lít nú ekki á bókina sem mína síðustu,“ segir Súsanna einlæg og neitar því að sakna sögupersóna sinna þegar bókin er komin út. „Það hefur alltaf verið mitt prinsip að sleppa. Maður verður að elska nógu mikið til að gefa þeim sem maður elskar frelsi og virða að stundum þurfa þeir að fara aðra leið til að takast á við sjálfa sig og þroskast. Það var ekki alltaf auðvelt að sleppa eig- inmanni. Ekki í öll skiptin. Og stundum var það hræðilega sárt og nánast óyfirstíganlegt.“ Prívatkona fjalla og kyrrðar Dætur hafsins gerist um víða veröld. Súsanna hefur heimsótt marga af þeim stöðum sjálf en segist helst af öllu vilja búa í Grundarfirði. „Ég fer eins oft á Snæfellsnes og ég kemst. Þar er kyrrðin svo góð og ég sæki mikið í kyrrð- ina. Sem betur fer hef ég eignast nýtt áhugamál, sem er fjöllin og að ganga á þau. Ég er mikil prív- atmanneskja, en ekki bara ein gríma, frekar en aðrir. Ég hef skoðanir á samfélaginu og vinn fyrir launum mínum ef ég er ráðin til þess að hafa skoðanir,“ segir Súsanna glaðlega, en hún hefur nú lifað í hálfa öld og tvö ár betur. „Mér finnst yndislegt að eld- ast. Ég er búin að gera svo margt og reyna svo mikið, sem á köflum hefur verið þrautin þyngri, en af því ég tókst á við það í stað þess að fá mér töflur við sársaukan- um, hefur lífsreynslan skilað mér mikilli lífsgleði. Mér hefur aldrei þótt eins spennandi að vera kona og einmitt núna. Ég er farin að fylla betur út í húðina, það sést á líkamanum og andliti að ég hef lifað og eignast þrjú börn, og mér finnst líkami minn miklu fallegri nú en þegar ég var ung. Æskudýrkun er á undanhaldi og ánægjulegt að fylgjast með þróun í fjölmiðlaheimi Bandaríkjanna þar sem sjónvarpsstöðvarnar eru hættar að ráða fermingarbörn í frétta- og fréttaskýringaþætti, en í staðinn fullorðið, lífsreynt fólk með þroska og yfirsýn á lífið og tilveruna,“ segir Súsanna hlátur- mild og full tilhlökkunar að takast á við fjöllin, ástina og lífið heima á Íslandi þegar hún hefur skotist aftur út til að hnýta lausa enda í fegurstu borg Bandaríkjanna. ■ Erótískt morð & klárar konur Konur verða Súsönnu Svavarsdóttir yrkisefni í Dætrum hafsins; erótískt fléttaðri morðsögu. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir fékk sér morgunkaffi með Súsönnu í fagurri morgunskímu nóvembermánaðar. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA „Ég dáist að karlmönn- um, hef aldrei haft nátt- úru til kvenna og finnst karlmannskynfærin flott. Það var ekki alltaf auðvelt að sleppa eigin- manni. Ekki í öll skiptin. Og stundum var það hræðilega sárt og nánast óyfirstíganlegt.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.