Fréttablaðið - 12.11.2005, Blaðsíða 88
12. nóvember 2005 LAUGARDAGUR64
FÓTBOLTI Veðbankar í Englandi
eru ekki miklir aðdáendur fram-
herjans hávaxna í enska lands-
liðinu, Peter Crouch, og bjóða nú
upp á möguleika þar sem hægt er
að veðja á það hvort hann skori
sitt fyrsta mark fyrir landsliðið,
áður en hann nær að skora fyrir
Liverpool, en Crouch hefur verið
einkar seinheppinn upp við mark
andstæðingana það sem er leik-
tíð og á hann eftir að skora mark
fyrir lið sitt.
Veðbankarnir telja líklegast að
Wayne Rooney og Michael Owen
verði á skotskónum í leiknum
gegn Argentínumönnum í dag en
eru einnig vongóðir um að David
Beckham, fyrirliði liðsins, muni
ná fram sínu besta en hann hefur
verið í fínu formi fyrir Real Madr-
id að undanförnu.
Wayne Bridge, vinstri bak-
vörður Chelsea, mun að öllum lík-
indum verða í liði Englands í dag
þar sem Ashley Cole er meiddur.
Bridge, sem á ekki fast sæti í
sterku liði Chelsea, vonast til þess
að geta tryggt sér sæti í enska
hópnum fyrir HM. „Þó að ég sé
ekki alltaf í liðinu hjá Chelsea
þá tel ég mig nógu góðan til þess
að vera í leikmannahópi enska
landsliðsins,“ sagði Bridge eftir
æfingu.
Englendingar búast við erf-
iðum leik í dag en lið Argentínu-
manna þykir sigurstranglegt á
HM í Þýskalandi á næsta ári, líkt
og enska liðið. Spennandi verður
að sjá hverjir verða miðverðir í
enska liðinu þar sem fimm sterkir
miðverðir berjast um sæti í liðinu,
þeir John Terry, Rio Ferdinand,
Sol Campbell, Ledley King og
Jamie Carragher. Líklegast þykir
að Rio Ferdinand byrji leikinn við
hlið Johns Terry en Sven Göran
Eriksson, þjálfari enska liðsins,
segist ekki ennþá vera búinn að
gera upp við sig hvaða leikmenn
eru hans fyrstu kostir í miðvarða-
stöðunum.
„Ég get valið á milli margra
leikmanna sem eru í heimsklassa.
Það er augljóslega erfitt, en þetta
er jákvæður vandi fyrir mig og
liðið sem ég stjórna,“ sagði Eriks-
son sem hefur sjaldan verið undir
eins mikilli pressu. - mh
-mh
Opið lau.: 11:00 - 16:00
Opið sun.: 13:00 - 16:00
Enskir veðbankar slá á létta strengi fyrir leikinn gegn Argentínu í dag:
Ekki mikil trú á Crouch
PETER CROUCH Englendingar hafa ekki
mikla trú á markaskorunarhæfileikum
Crouch en telja þó líklegra að hann skori
fyrir England áður en hann skorar fyrir
Liverpool.
■ MÖGULEIKAR VEÐBANKA SKY:
Peter Crouch:
3/1 líkur á því að Crouch nái að skora fyrir
England áður en hann skorar fyrir Liverpool.
John Terry:
8/1 líkur á því að Terry fá gult spjald fyrir að
brjóta á Hernan Crespo.
Argentína:
66/1 líkur að leikmaður skori með hendinni.
David Beckham:
3/1 líkur á því að Beckham fái gult spjald.
8/1 á því að hann skori úr aukaspyrnu, og
10/1 að hann skori sigurmarkið í leiknum.
England:
7/4 Líkur á því að leikmaður liðsins verði
rekinn af velli.
Sol Campbell:
50/1 að Campbell skori mark sem dæmt
verður af.
NFL Fyrrum Super Bowl-meistar-
inn, Steve Courson, lést á voveifl-
egan hátt í vikunni þegar tré sem
hann var að saga niður féll á hann
og varð honum að bana.
Courson var fimmtugur að
aldri en hann varð NFL-meistari
með Pittsburgh Steelers 1978 og
1979. Hann játaði síðar að hafa
neytt stera í verulegu magni á
ferlinum en sú notkun skilaði sér
síðar í alvarlegum heilsuvanda-
málum, þar á meðal hjartavanda-
málum. Hann eyddi síðustu árum
ævi sinnar í að predika um skað-
leg áhrif stera á líkamann. - hbg
Steve Courson:
Tré felldi fræg-
an sterabolta
FÓTBOLTI David Beckham, fyrirliði
enska landsliðsins í knattspyrnu,
segir tímann sem hann upplifði
eftir að hafa fengið rauða spjaldið
í leik gegn Argentínu á HM 1998
hafa verið þann versta á sínum
ferli. Beckham braut þá kæru-
leysislega á Diego Simeone og
einum fleiri náðu Argentínumenn
að tryggja sér sigur gegn Eng-
lendingum. Beckham var kennt
um tapið og var baulað á hann í
Englandi næsta árið á eftir.
„Þetta var án efa minn versti
tími sem fótboltamaður og tók
mjög á mig og fjölskyldu mína.
En fjórum áður síðar tók ég víta-
spyrnunna fyrir England sem sló
Argentínu út í HM 2002. Það er
sú minning sem ég reyni að hafa
ofan á þegar ég leik gegn Argent-
ínu,“ sagði Beckham við enska
fjölmiðla fyrir vináttuleikinn í
dag.
Leikurinn í dag er sá fimmtug-
asti sem Beckham er fyrirliði Eng-
lands en fimm ár eru síðan hann
setti fyrst á sig fyrirliðabandið.
„Þetta er minn stærsti heiður og
það er ótrúlegt að ég hafi fengið
að upplifa það í fimmtíu skipti,“
segir Beckham.
David Beckham:
Erfiðasti tími
lífs míns
DAVID BECKHAM Segir tímann eftir rauða
spjaldið sem hann fékk á HM ´98 hafa
verið þann erfiðasta í sínu lífi.
FÓTBOLTI Framkvæmdum á Wemb-
ley-leikvanginum í London verður
líklega ekki lokið fyrir úrslitaleik
ensku bikarkeppninnar á næsta
ári, eins og stefnt var að þegar
framkvæmdirnar hófust. Að sögn
Micheal Cunnah, umsjónarmanns
endurbótanna á Wembley, er ekki
enn búið að útiloka þann mögu-
leika á að halda úrslitaleikinn á
hinum nýja leikvangi, en að það sé
ólíklegt.
„Það er ekki hægt að fullyrða
neitt en það er margt sem bendir
til þess að við náum þessu ekki. Ef
veturinn verður tiltölulega vond-
ur með miklum kulda er engin
leið til að ná þessu á tíma,“ sagði
Cunnah og gat með engu móti sagt
til um hvenær hann yrði tilbúinn
ef fyrstu tímamarkmið myndu
bregðast. „Völlurinn verður tilbú-
inn þegar hann verður tilbúinn,“
sagði hann. - vig
Framkvæmdir á Wembley:
Ekki klár fyrir
úrslitin 2006
HINN NÝI WEMBLEY Mun líta glæsilega út
þegar hann verður loksins tilbúinn.
FÓTBOLTI Robert Pires, franski
miðjumaðurinn hjá Arsenal, hefur
greint frá því að afar litlu hefði
munað að hann hefði fylgt Patrick
Vieira til Juventus í sumar. Fabio
Capello, stjóri Juventus, hafði
mikinn áhuga á því að fá Pires til
liðsins en Arsene Wenger, stjóri
Arsenal, var ekki tilbúinn að sle-
ppa báðum stjörnuleikmönnunum
sínum.
„Viðræður mínar við Juventus
voru á lokastigi þegar Wenger
stöðvaði þær og kvaðst vilja halda
mér,“ segir Pires sem mun ekki
fá nema eins árs endurnýjun á
núverandi samningi sínum við
Arsenal.
„Ég veit ekki hvort ég geng að
því en Arsenal á hug minn allan
á Englandi og ég mun ekki spila
fyrir annað lið hér. Kannski fer
ég til Ítalíu eða Spánar í framtíð-
inni en eins og er einbeiti ég mér
að því að spila vel fyrir Arsenal,“
segir Pires. - vig
Robert Pires hjá Arsenal:
Næstum far-
inn til Juventus
ROBERT PIRES Getur ekki hugsað sér að
spila fyrir annað lið en Arsenal á Englandi.