Fréttablaðið - 12.11.2005, Blaðsíða 2
2 12. nóvember 2005 LAUGARDAGUR
FASTEIGNALÁN Landsbankinn ákvað
í gær að hækka vexti íbúðalána
sinna úr 4,15 prósentum í 4,45 pró-
sent. Vaxtabreytingin hefur ekki
áhrif á eldri íbúðalán.
Sigurjón Þ. Árnason, banka-
stjóri Landsbankans, segir ákvörð-
unina tekna í ljósi þeirrar hækkun-
ar sem verið hafi á ávöxtunarkröfu
á markaði. „Við erum banki sem
byggist á markaðslögmálum og
viljum ekki niðurgreiða eina vöru
á kostnað annarrar.“ Hann segir
að hækkun Seðlabankans á stýri-
vöxtum hafi nú loksins farið að
hafa áhrif á langtímavexti. „Lyk-
illinn að mjúkri lendingu byggist
á fasteignamarkaðnum og besta
leiðin til að róa hann er að hækka
vexti íbúðalána. Við trúum því að
við séum að vinna að langtíma-
hagsmunum viðskiptavina okkar
með þessu, því þeir eru að verð-
bólga haldist lág og að vextir verði
þannig að þeir verði lágir þegar til
lengri tíma er litið.“ Sigurjón segir
að forsenda þess sé að stöðugleiki
haldist. Hann segir að með þessu
styðji bankinn við viðleitni Seðla-
bankans til að draga úr þenslu í
efnahagslífinu.
Vextir á þeim peningum sem
sóttir eru á markað til að fjár-
magna íbúðalán hafa hækkað að
undanförnu um 0,4 til 0,9 prósent
og miðað við núverandi stöðu er
óhjákvæmilegt að vextir Íbúðalána-
sjóðs muni hækka eftir næsta útboð
sjóðsins. Álag á útboðsgengi bréfa
sjóðsins er lögbundið, Það útboð
hefur látið á sér standa og er það
talið vera vegna þess að sjóðurinn
á fé vegna uppgreiðslna sem standa
undir útlánum. Hallur Magnússon
hjá Íbúðalánasjóði segir ákvörðun
Landsbankans skynsamlega. „Við
munum taka ákvörðun um vexti
okkar útlána eftir næsta útboð,“
segir hann en ekki er ákveðið hve-
nær það verður.
Arnór Sighvatsson, aðalhag-
fræðingur Seðlabankans, segir
að hækkun vaxta íbúðalána komi
ekki á óvart. „Það var tímaspurs-
mál hver myndi ríða á vaðið, en
það kemur á óvart að það hafi verið
Landsbankinn. Maður hefði búist
við því að Íbúðalánasjóður myndi
hefja þetta ferli. Þetta er skynsam-
legt hjá þeim,“ segir Arnór.
Haukur Oddsson, framkvæmda-
stjóri viðskiptabankasviðs Íslands-
banka, og Friðrik Halldórsson,
kollegi hans í KB banka, taka
báðir undir orð Arnórs og segja að
miðað við þróun vaxta hafi hækk-
un legið í loftinu. Þeir segja ekkert
um það ákveðið hvort eða hvenær
vaxtabreytinga á íbúðalánum sé
að vænta hjá þeirra bönkum.
Verð húsnæðis hefur undan-
farin misseri verið meginástæða
hækkandi verðbólgu. Helstu
ástæður fasteignahækkana eru
aukinn kaupmáttur og lægri
vextir íbúðalána.
haflidi@frettabladid.is
AMMAN, AP Jórdönsk yfirvöld
skýrðu frá því í gær að 120 manns
hefðu verið teknir fastir í tengslum
við hryðjverkin í Amman á mið-
vikudagskvöld. Al-Kaída segir í
yfirlýsingu að sjálfsmorðsprengju-
mennirnir hafi verið fjórir en ekki
þrír eins og í upphafi var talið.
Nú hefur verið staðfest að 57 fór-
ust í árásum á þrjú hótel í Amman
á miðvikudagskvöldið en þetta er
mannskæðasta hryðjuverk sem
framið hefur verið í Jórdaníu.
Í gær birtist á vefsíðu, sem sögð
er tengjast al-Kaída í Írak, þriðja
yfirlýsingin þar sem samtökin játa
verknaðinn. Þar er því haldið fram
að árásarmennirnir hafi verið fjór-
ir, en ekki þrír, þar af ein kona. Ekki
hefur tekist að ganga úr skugga um
áreiðanleika yfirlýsingarinnar.
Þá greindi jórdanska lögreglan
frá því að 120 manns hefðu verið
handteknir í tengslum við hryðju-
verkin og stóðu skýrslutökur yfir í
allan gærdag.
Flestir hinna handteknu eru
sagðir Jórdanar og Írakar. Þúsund-
ir Jórdana flykktust annan daginn
í röð út á götur höfuðborgarinnar
og hrópuðu ókvæðisorð að landa
sínum, Abu Musab al-Zarqawi, en
hann er talinn höfuðsmaður al-
Kaída í Írak. - shg
METS.LISTI
EYMUNDSSON
9. nóv.
�������������
�����������
�����������
�������������
�����������
����������������
�������
�����������������
������������������
� �������������������������������
DANMÖRK Munurinn á fjölda veik-
indadaga ríkisstarfsmanna og
starfsmanna einkafyrirtækja í
Danmörku hefur aukist undan-
farin ár.
Ríkisstarfsmenn verða veik-
ir að meðaltali 14,5 daga á ári
en aðrir launþegar í átta daga.
Aukinn munur skýrist af bættri
mætingu starfsmanna í einkageir-
anum. Veldur þessi þróun tölu-
verðum áhyggjum meðal samtaka
opinberra starfsmanna.
Haft er eftir forsvarsmanni
eins þeirra í Berlingske Tidende
í gær að það sé helst vaktavinnu-
fólk og þeir sem vinni erfiðisvinnu
sem oftar verði veikir. - ks
Danskir ríkisstarfsmenn:
Veikir í tvær
vikur á ári
EFNAHAGSMÁL Davíð Oddsson
seðlabankastjóri segir að lækkun
verðbólgunnar hafi engin áhrif
á ákvörðun bankans um hækkun
stýrivaxta sem búist er við í byrj-
un desember.
„Það er jákvætt að langtíma-
verðbólga skuli lækka en varasamt
að horfa á einn mánuð og draga of
miklar ályktanir. Það er jákvæð
vísbending að olíuverð verði
stöðugra og hækkun á íbúðaverði
virðist ganga til baka. Þetta getur
haft jákvæð áhrif á mælingu vísi-
tölu yfir tólf mánaða tímabil,“ segir
hann.
Davíð segir að áhrif vaxtahækk-
ana Seðlabankans hafi skilað sér
upp á síðkastið í hækkun á lang-
tímavöxtum. Allt of snemmt sé að
fjalla um með hvaða hætti tilkynn-
ing bankans í desember verði. - ghs
Davíð Oddsson seðlabankastjóri um verðbólgulækkunina:
Vaxtahækkanir að skila sér
OF SNEMMT AÐ RÆÐA UM
ÁHRIFIN Davíð Oddsson
seðlabankastjóri telur of
snemmt að ræða hvernig
ákvarðanir Seðlabankans
verði við útgáfu Peninga-
mála í byrjun desember.
Almennt er búist við hækkun
stýrivaxta um 0,5 til 0,75
prósentustig.
������ ��������� ���� ������
��������� �� ���������� ������ ��
������������������������������
������������������������������
���� ������ ������ ������ �����
�����������������������������
�������� ���� ��������� �������
��� ������� ��� ������� ������ ����
���� ����� �������� �������� ���
���������������������� �����
������������������������������
��� ��� ������ ����������� ������
������� �������������� ��� ����
����������������������������������
�������� ��� ���������� ���� ����
���������������������������������
������������������������������
�� ����� ��������� �����������
����� ������ �������������� �����
������������������ ����� ����
��������
���������
Al-Kaída segir sprengjumennina í Amman hafa verið fjóra:
120 manns teknir höndum
MÓTMÆLT Í AMMAN Þúsundir Ammanbúa mótmæltu hermdarverkunum í gær, annan
daginn í röð. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SPURNING DAGSINS
Gunnar, ertu sópran eða alt?
„Allt í senn.“
Óperustjóri tekur vel í hugmyndir Gunnars I.
Birgissonar bæjarstjóra um óperuhús í Kópa-
vogi. Á föstudag birtist mynd í Fréttablaðinu
af Gunnari þar sem hann þandi raust sína
en hann verður seint sagður mjóróma.
BANKASTJÓRAR LANDSBANKANS Lands-
bankinn hækkaði vexti íbúðalána sinna í
gær. Aðalhagfræðingur Seðlabankans segir
ákvörðun bankans skynsamlega en hann
hefði frekar búist við að Íbúðalánasjóður
myndi leiða hækkunarferli vaxta á íbúða-
lánum. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
ÁHRIF VAXTAHÆKKUNAR Á LÁN
Tíu milljóna króna lán til fjörutíu ára. Greiðslubyrði á mánuði.
Vextir greiðslubyrði
4,15% 42.732 kr. á mánuði
4,45% 44.635 kr. á mánuði
Hækkun 1.903 kr. á mánuði.
Landsbanki hækkar
vexti á íbúðalánum
Aðalhagfræðingur Seðlabankans segir þá ákvörðun Landsbankans að hækka
vexti íbúðalána skynsamlega. Bankinn hækkar vexti sína í 4,45 prósent úr 4,15 pró-
sentum. Hækkunin hefur ekki áhrif á eldri lán en hækkar greiðslur nýrra lána.
SVÍÞJÓÐ Flugvellinum í Karlstad í
Svíþjóð var lokað um hádegisbilið
í gær þar sem maður var grunað-
ur um sjálfsmorðssprengjuárás.
Maður sást á vappi með nokkr-
ar töskur nálægt flugturninum
og var strax hringt úr síma flug-
málastjórnarinnar á vellinum í
lögregluna.
Flugstöðin var rýmd, flugvell-
inum var lokað og björgunarsveit-
in mætti á staðinn meðan lög-
reglan rannsakaði svæðið. Engin
sprengja fannst enda kom í ljós
að um var að ræða flugmann sem
hafi millilent á flugvellinum. . ■
Ótti um sjálfsmorðsárás:
Flugmaðurinn
hafði millilent
LÖGREGLA 31 árekstur varð í
Reykjavík í gær. Þar á meðal varð
einn fjögurra bíla árekstur fyrir
utan Stjórnarráðið skömmu eftir
hádegi.
Þá rann fólksbíll á ljósastaur
á Hverfisgötu. Bæði bíllinn og
staurinn skemmdust töluvert.
Orsök flestra árekstranna má
rekja til hálku, að sögn varðstjóra
hjá lögreglunni í Reykjavík. Engin
slys urðu á fólki í óhöppunum.
Tveir minni háttar árekstrar urðu
í Kópavogi og einn í umdæmi lög-
reglunnar í Hafnarfirði. ■
Hálka á höfuðborgarsvæðinu:
Á fjórða tug
árekstra
ÚR UMFERÐINNI Hálkan kom höfuðborgar-
búum á óvart. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
RÉTTINDAMÁL „Ég vildi fá staðfest-
ingu á því að þessi uppsögn væri
ólögleg. Ég vildi einnig minna
atvinnuveitendur á að þessi upp-
sagnarvernd í fæðingarorlofs-
lögunum er í gildi og hana ber að
virða,“ segir Lóa Aldísardóttir
fjölmiðlakona.
Úrskurðunarnefnd í fæðingar-
og foreldraorlofsmálum úrskurð-
aði í fyrradag að tímaritaútgáfan
Fróði hafi brotið fæðingarorlofs-
lög í máli Lóu sem þá var ritstjóri
Húsa og híbýla.
Brotið felst í
því að Lóa átti
ekki þess kost að
hverfa aftur að
fyrra starfi sínu
né sambærilegu
starfi að loknu
fæðingarorlofi.
„Mér sýnist sem atvinnurek-
endur virði ekki þetta ákvæði því
ég þekki fleiri dæmi þess að fólki
hafi verið sagt upp í fæðingaror-
lofi,“ segir Lóa. Hún segir þenn-
an úskurð vera sér nægan og hún
hugist ekki fara með málið fyrir
dómstóla. -jse
Fæðingar- og foreldraorlof:
Fróði braut
á ritstjóra
LÓA ALDÍSARDÓTTIR