Fréttablaðið - 12.11.2005, Page 8
8 12. nóvember 2005 LAUGARDAGUR
��������������
���������������
����������������
��������������
��������������
������������
����������������������
����������������� ����������
���������������������������������������������
����������������������
� � ���������������������������
�
������������������������������������
�������������������������������������������
�����������������������������������
� ������������������������
����������������������������������������
���������������������������������������������
��������������������������
������������������������������������������
� � ����������������������������������
�
� �
�
����������
VEISTU SVARIÐ
1 Hver var bæjarstjóri á undan Gunn-ari I. Birgissyni?
2Um hve margar milljónir hyggst Háskólinn á Akureyri skera niður?
3 Hvert ætlar hljómsveitin Kamp Knox að halda í byrjun næsta árs?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 70
Álögur lækkaðar á smáfyrirtæki
Um 75 þúsund smáfyrirtæki í Danmörku
sleppa við að greiða sem nemur 10
milljörðum króna fyrir endurskoðun ef
tvö lagafrumvörp danska efnahags- og
atvinnumálaráðherrans hljóta samþykki
þingsins. Ráðherrann vill losa fyrirtæk-
in við þessi útgjöld í von um að velta
þeirra aukist fyrir vikið.
DANMÖRK
KAÍRÓ, AP Ayman Nour, einn helsti
andstæðingur Hosni Mubarak
Egyptalandsforseta, missti þing-
sæti sitt til frambjóðanda stjórnar-
flokksins í fyrstu umferð egypsku
þingkosninganna sem fram fór í
vikunni. Einn öflugasti liðsmaður
Bræðralags múslima tapaði jafn-
framt í sínu kjördæmi enda þótt
hreyfingin virðist almennt hafa
bætt við sig fylgi.
Landskjörstjórn hefur greint frá
því að kjörsóknin hafi verið um 34
prósent. Það er skárri þátttaka en
í forsetakosningunum í september
þegar 23 prósent kusu. ■
Egypsku þingkosningarnar:
Andstæðingar
Mubarak tapa
FRÁ KJÖRSTAÐ Ýmislegt bendir til að
þessi kona hafi greitt Bræðralagi múslima
atkvæði sitt. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
NOREGUR Kristín Halvorsen, fjár-
málaráðherra Noregs, hefur lagt
fram endurskoðað frumvarp að
fjárlögum fyrir næsta ár. Sam-
kvæmt því hækka skattar og
opinber gjöld um 6,4 milljónir
norskra króna miðað við það sem
ríkisstjórn Bondeviks hafði gert
ráð fyrir.
Þetta þýðir tekjuaukningu
upp á tæpa 30 milljarða íslenskra
króna. Það er þó um 20 milljörð-
um króna minna en árið 2004 en
stefna ríkisstjórnarinnar er að
afla ríkinu jafn mikilla tekna og
þá.
Norska ríkisstjórnin hyggst
hækka skatta þeirra tekjuhæstu
um 10 prósent. Þá á að breyta
skattheimtu á þann veg að fólk
með háar tekjur komist ekki leng-
ur upp með að greiða lægri skatta
í gegnum fjármagnstekjuskatt. ■
Norska fjárlagafrumvarpið:
Skatttekjur
aukast 2006
KRISTÍN HALVORSEN Norska vinstri stjórnin
hyggst hækka skatta á hátekjufólk.
FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR
FINNLAND Karlmaður í Helsinki í
Finnlandi hefur verið dæmdur
í níu ára fangelsi fyrir að beita
tvær dætur sínar kynferðislegu
ofbeldi í fjölda ára auk annars
líkamlegs ofbeldis.
Dómurinn er óvenjuþungur
en brotin þykja líka óvenjulega
gróf. Maðurinn níddist á eldri
dóttur sinni í tæp tíu ár, frá því
hún var tólf ára. Yngri dóttur-
ina beitti hann ofbeldi í tvö ár.
Maðurinn hefur setið inni
frá því í vor. Hann var einnig
dæmdur til að greiða dætrum
sínum 700 þúsund sænskar
krónur eða sem samsvarar sjö
milljónum króna í skaðabætur.
Nokkur dæmi hafa komið upp
á Norðurlöndum síðustu mán-
uði þar sem faðir hefur níðst á
dóttur sinni. Í einu tilfelli gerði
faðirinn dóttur sinni barn,
tvisvar sinnum, fyrst þegar hún
var þrettán ára. Í öðru tilfelli
nauðgaði faðirinn sextán ára
dóttur sinni og fékk tveggja ára
fangelsisdóm. Í þriðja tilfellinu
seldi faðirinn dóttur sína – á
netinu. ■
Karlmaður beitti dætur sínar kynferðislegu ofbeldi:
Níu ára fangelsi fyr-
ir kynferðisofbeldi
SAMGÖNGUR „Bílstjórar eru að
leggja sig í stórhættu með því
að fara þennan fjölfarna veg um
Fagradal og það segir meira um
hæfni bílstjóranna en ástand veg-
anna að ekki hafi orðið fleiri slys
líkt þessu á miðvikudag,“ segir
Ásgrímur Ásgrímsson, bílstjóri
hjá Landflutningum á Egilsstöð-
um.
Hann vitnar þar til slyssins
sem varð þegar sementsflutn-
ingabíll snerist á veginum áður
en hann fór út af og má mildi
heita að enginn hafi mætt bílnum
á því augnabliki.
„Á að giska fara um 200 bílar
á dag um þennan veg, sem er á
sama þjónustustigi og vegurinn
um Hellisheiði og því ætti hann
að vera hálkufrír. Vegagerðin
virðist hins vegar ekki hafa nokk-
urn skilning á því og vegurinn
er ísilagður dag eftir dag,“ bætir
Ásgrímur við.
Hann segir að margir bílar
fari út af veginum daglega og
saltdreifing Vegagerðarinnar
geri lítið sem ekkert gagn.
Einn vegfarandi sem vinnur
á Kárahnjúkum og þarf oft að
fara veginn á leið sinni til Reyðar-
fjarðar segist þurfa að setja
keðjur undir bíl sinn á jafnslétt-
um veginum þó hann sé á vetrar-
dekkjum og á háannatímum lulli
bíll við bíl á ísilögðum vegi.
Hann telur þetta óskiljanlega
vanrækslu af hálfu Vegagerðar-
innar, sérstaklega í ljósi þess að
fjöldi fólks sem búi á Héraði sæki
vinnu til Reyðarfjarðar.
„Við treystum okkur ekki til
þess að halda vegunum alltaf
auðum,“ segir Páll Þ. Elísson,
yfirverkstjóri Vegagerðarinnar
á Reyðarfirði. „Hins vegar hefur
bara verið nokkuð góð vetrar-
færð að undanförnu þó einstaka
hálkublettir séu kannski hér og
þar. Ef einhver vill sannreyna
það má alltaf sjá það á vef Vega-
gerðarinnar en þar er hægt að sjá
vegina úr myndavélum sem við
erum með víða við vegi.“
Hann viðurkennir að ekki sé
þó ástandið alltaf gott. „Þetta
er íslenskur vetur og við gerum
okkar besta til að halda þessu í
góðu horfi, förum yfir þetta jafn-
vel sex til sjö sinnum á dag en
meira að segja göturnar í Reykja-
vík eru ekki hálkufríar ef út í það
er farið,“ segir hann.
jse@frettabladid.is
Hætta á Fagradalsvegi
Bílstjórar sem fara um einn fjölfarnasta veg Austurlands leggja sig í stórhættu,
segja vegfarendur þar. Vegagerðin er harðlega gagnrýnd fyrir skilningsleysi á
ástandinu. Hún treystir sér ekki alltaf til að halda veginum hálkulausum.
HÆTTULEGUR VEGUR Séð úr fjarlægð virðist vegurinn auður en þegar nær er komið sést
ísingin. Ökumaður steypubílsins áttaði sig ekki á lúmskri hálkunni.
HEILBRIGÐISMÁL Frumvarp um
breytingu á lögum um einkaleyfi
er í lokavinnslu í heilbrigðis-
ráðuneytinu en stefnt er að því
að heimila framleiðslu á lyfjum
sem eru bundin einkaleyfi þegar
sérstakar aðstæður steðja að.
Frumvarpið fer brátt til umsagn-
ar í þingflokkum.
Hjörleifur Þórarinsson, for-
maður Samtaka framleiðenda
frumlyfja, segir að þeir byggi
viðurværi sitt á því að fram-
þróun og nýsköpun séu vernduð
á einhvern hátt og vilji standa
vörð um það. Framleiðendur séu
reiðubúnir til aðstoðar í þessu
máli.
„Lögum er breytt í skjóli
samninga Alþjóðaviðskipta-
málastofnunar. Ríkisstjórnin
er að útfæra þessar heimildir í
alþjóðasamningum og innleiða
í lög. Norðmenn, Kanadamenn
og þjóðir innan ESB hafa þegar
gert þetta og við eigum eftir
að sjá hvernig íslensk stjórn-
völd túlka og innleiða þennan
alþjóðasamning hér á landi,“
segir Hjörleifur.
„Við hvetjum til þess að íslensk
stjórnvöld setji ekkert í lög sem
gengur á skjön við það sem ger-
ist á alþjóðavettvangi. Við erum
bara að bjóða fram okkar aðstoð
og þekkingu á þessu sviði.“ - ghs
Hjörleifur Þórarinsson, formaður Samtaka framleiðenda frumlyfja:
Lyfjalög um skert einkaleyfi
VILJA FÁ FRUMVARPIÐ TIL UMSAGNAR
Hjörleifur Þórarinsson, formaður Samtaka
framleiðenda frumlyfja, segir samtökin
hvetja til þess að stjórnvöld setji ekkert í
lög sem gangi á skjön við það sem gerist á
alþjóðavettvangi. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
DÓMSMÁL Aðalmeðferð í máli 26
ára gamallar konu sem sökuð er um
að hafa stungið mann í kviðinn fór
fram í Héraðsdómi Reykjavíkur á
fimmtudag.
Atburðurinn átti sér stað í
Reykjavík 17. júlí í fyrra. Maðurinn
hlaut stungusár á efri hluta kviðar
og áverka á kviðarholslíffæri.
Brot konunnar er talið varða
við aðra meðgrein 218. greinar
almennra hegningarlaga, en af
henni má ráða að stungan hafi kom-
ið til í áflogum fólksins.
Maðurinn krefur konuna um,
skaðabætur að upphæð 719.520
krónur. - óká
Aðalmeðferð í héraðsdómi:
Stakk mann
í kviðinn
HELSINKI Á HAUSTDEGI Karlmaður hefur verið dæmdur í níu ára fangelsi í Helsinki fyrir
ofbeldi og kynferðisofbeldi gagnvart tveimur dætrum sínum. Hér má sjá fólk á götu í
Helsinki.