Fréttablaðið - 12.11.2005, Page 10

Fréttablaðið - 12.11.2005, Page 10
10 12. nóvember 2005 LAUGARDAGUR HEILSA „Hingað til hefur verið lögð mikil áhersla á það að fólk taki nóg af kalki en þessi rann- sókn leiðir í ljós að það sem skiptir jafnvel meira máli er að fólk fái nóg D-vítamín því án þess er kalkið ekki að virka,“ segir Laufey Steingrímsdóttir næringarfræðingur. Rannsóknin var unnin á Landspítalanum í samvinnu við Lýðheilsustöð og grein þar sem minnst er á hana birtist í nýjasta tölublaði bandaríska læknatímaritsins The Journal of the American Medical Asso- ciation. Höfundar greinarinnar auk Laufeyjar eru Örvar Gunn- arsson, Ólafur S. Indriðason, Leifur Franzson og Gunnar Sigurðsson. „Í þessari grein hvetjum við lækna til að beina þeim tilmæl- um til sinna skjólstæðinga að taka D-vítamín aukalega þar sem það er að finna í svo fáum fæðutegundum. Lýsi er einnig fyrirtaks lausn á þessu en það innheldur nægilegt D-vítamín.“ Auk lýsisins getur fólk fengið D- vítamín úr síld, laxi og silungi en þar sem slíkt er ekki alltaf á boðstólum hvetur hún fólk til að taka D-vítamíntöflur eða D-vít- amínbættar mjólkurvörur. Það sem gerist ef D-vítam- ín skortir er að kalkið verður ekki í réttu hlutfalli í blóðinu og því fer líkaminn að vinna kalk úr beinunum, sem er ávísun á beinþynningu. - jse edda.is Ný ljóðabók frá Þórarni Eldjárn Ný og fjölbreytileg ljóðabók eftir eitt vinsælasta skáld þjóðarinnar, Þórarin Eldjárn. Hagmælisgrey um ljóðið Víst er það löngu ljóst og bert að ljóðið ratar til sinna. Samt finnst mér ekki einskisvert að ýta því líka til hinna. „Annars er bókin hans Þórarins sérlega fín. Þarna eru bæði rímuð kvæði og órímuð, alvörugefin, glettin, smáskrítin og djúpvitur - vald Þórarins á málinu er einstakt.“ Egill Helgason, Silfur Egils, visir.is ROCKEFELLER-TRÉÐ Eitt frægasta jólatré í Bandaríkjunum var reist á dögunum í New York. Það vegur níu tonn og kemur sem fyrr frá Noregi. Tendra á ljósin á trénu 30. nóvember. MYND/AP MENNTAMÁL „Þetta kom eiginlega alveg óvart til,“ segir Bárður Örn Gunnarsson, markaðsstjóri Við- skiptaháskólans á Bifröst, en þar verður haldið málþing um virðis- aukaskatt á morgun. Það væri ekki í frásögur fær- andi nema fyrir þá staðreynd að allir fyrirlesararnir eru konur. „Sú umræða hefur verið í gangi að það sé svo erfitt að fá konur til að ræða um þessu „hörðu“ mál. Við sáum hins vegar hvað við eigum frambærilegar konur á þessu sviði svo að við ákváðum að stíga skrefið til fulls; hafa einungis konur og sýna þannig fram á að þær eru engu erfiðari til umræðu um þessi mál,“ segir Bárður. Mikil áhersla er lögð á jafn- rétti í skólanum og í síðustu viku samþykkti háskólaráð einróma sérstaka jafnréttisáætlun skól- ans. Sú áætlun felur meðal ann- ars í sér að jafnréttis skuli gætt við inntöku nemenda svo hlut- fall annars kynsins verði aldrei neðan við fjörutíu prósent. Einnig verður konum boðið ókeypis á námskeið og veitt ráð- gjöf eftir útskrift en könnun sem gerð hefur verið sýndi fram á að konur bera minna úr býtum í atvinnulífinu eftir útskrift en karlar. „Við það verður ekki unað,“ segir Runólfur Ágústsson rektor. - jse Málþing um virðisaukaskatt á Bifröst: Aðeins konur flytja fyrirlestrana KONUR Á BIFRÖST Þessi fríði kvennahópur var á Bifröst í fyrravor en á morgun verða ein- ungis konur meðal fyrirlesara á málþingi um virðisaukaskatt. LAUFEY STEINGRÍMSDÓTTIR NÆRINGAR- FRÆÐINGUR Laufey hvetur fólk til þess að taka lýsi, D-vítamíntöflur eða D-vítam- ínbættar mjólkurvörur eftir að rannsókn hennar leiddi í ljós að það er líkamanum jafnvel enn mikilvægara en að fá mikið kalk. Ný næringarfræðileg rannsókn á kalkbúskap líkamans: Lýsi á dag kemur beinum í lag STJÓRNMÁL Þorgeir Þorsteinsson, sem býður sig fram í 4.-6. sæti í prófkjöri Framsóknarflokks í Kópavogi, kærði ákvörðun kjör- stjórnar að í sex efstu sætunum sem kosið er um verði þrír af hvoru kyni. Taldi hann þessa ákvörðun ganga lengra en lög Framsóknar- flokksins gera ráð fyrir, en í 13. grein lagana segir að við skipan í trúnaðar- og ábyrgðarstöður innan flokksins, sem og við val á fram- boðslist, skuli hlutur hvors kyns ekki vera lægri en fjörutíu prósent, nema þegar gagnsæjar og augljós- ar ástæður eru því til fyrirstöðu. Laganefnd Framsóknarflokks- ins komst að þeirri niðurstöðu í gær að ákvörðun kjörstjórnar um kynjahlutfall skyldi standa. Haukur Ingibergsson, formað- ur kjörstjórnar fyrir prófkjörið, segir að rökstuðningur laga- nefndar hafi verið að nefndin telji að kjörstjórn hafi leyfi til þess að setja ítarlegri reglur en 13. grein laga flokksins segi til um. Hann bendir á að ekki hafi verið hægt að tryggja kynjahlutfallið yfir settum mörkum með öðrum hætti en að þrír af hvoru kyni yrðu í sex efstu sætunum. Ef ákveðið hefði verið að hafa skiptinguna tveir á móti fjórum væri hlutur karla eða kvenna orðinn rúm 33 prósent, en ekki fjörutíu prósent eins og regl- ur segja til um. Prófkjörið fer fram í Smára- skóla í dag frá klukkan 10 til 20. Eins og áður segir er kosið um sex efstu sæti listans og eru fjórtán í framboði. Þar af sækjast fimm eftir fyrsta sæti listans. Af þeim fimm er einn bæjarfulltrúi, Ómar Stefánsson. Aðrir eru Jóhannes Valdemarsson, Linda Bentsdótt- ir, Samúel Örn Erlingsson og Una María Óskarsdóttir. Auk þeirra þrjú sem sækjast eftir einu af efstu sætunum. Talið er að Ómar geti notið þess í baráttunni um efsta sætið að vera bæjarfulltrúi. Una María hefur einnig starfað að bæjar- málum í tvö kjörtímabil og gæti notið þess, en bæði Ómar og Una María eru talin nokkuð umdeild innan flokksins. Aðrir sem sækj- ast eftir fyrsta sætinu gætu notið þess. Meðal þeirra er Samúel Örn, sem er þjóðþekkt persóna, og Linda Bentsdóttir, sem hefur verið dugleg að auglýsa upp á síð- kastið. Prófkjörið er opið, sem þýðir að allir Kópavogsbúar sem verða orðnir átján ára 27. maí hafa rétt til að kjósa í prófkjörinu. Ekki er nauðsynlegt að vera flokksbund- inn í Framsóknarflokknum. svanborg@frettabladid.is Kynjakvóti stendur Laganefnd Framsóknarflokksins úrskurðaði í gær að kjörstjórn flokksins í Kópavogi væri heimilt að ákveða jafna skiptingu karla og kvenna í efstu sex sæti listans fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Prófkjör fer fram í dag. FRÁ KÓPAVOGI Reiknað er með spennandi prófkjöri í Kópavogi í dag og fáir treysta sér til að spá fyrir um hver hljóti fyrsta sætið. 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI 1. sæti Jóhannes Valdemarsson Linda Bentsdóttir Ómar Stefánsson Samúel Örn Erlingsson Una María Óskarsdóttir 1.-3. sæti Gestur Valgarðsson 1.-4. sæti Dollý Nielsen Hjalti Björnsson 2. sæti Andrés Pétursson 2.-3. sæti Guðmundur Freyr Sveinsson Ólöf Pálína Úlfarsdóttir 2.-6. sæti Þorgeir Þorsteinsson 4.-6. sæti Hjörtur Sveinsson 5. sæti Friðrik Gunnar Gunnarsson PRÓFKJÖR FRAMSÓKNARFLOKKS Í KÓPAVOGI 12. NÓVEMBER

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.