Fréttablaðið - 12.11.2005, Side 43
LAUGARDAGUR 12. nóvember 2005 7
Í tilefni þess að 25 ár eru liðin
frá því Audi sendi frá sér fyrsta
fólksbílinn með sítengdu aldrifi,
quattro, verður Hekla með sýn-
ingu á quattro-bílum frá Audi í
dag. Gestum verður meðal annars
boðið upp á reynsluakstur á Audi
quattro bifreiðum, til dæmis dísel-
knúnum 225 hestafla Audi A6 3.0
V6 TDI.
Hugmyndin að baki quattro er
einföld. Þegar vélaraflinu er deilt
á fjögur hjól dreifist viðnám við
veginn fræðilega séð í hlutföllun-
um 25% á hvert hjól en ekki 50%
eins og gerist með hefðbundnu
framdrifi. Afleiðingin er sú að
aflið færist á sem hagkvæmastan
hátt yfir á veginn og mjög
dregur úr hættu á því
að bíllinn missi
v e g -
grip. Jafnvel þótt ekið sé beint
áfram á þurrum vegi finnur öku-
maður fyrir jöfnu átaki quattro-
aldrifsins.
Millimismunadrifið gegnir því
lykilhlutverki í nýjustu kynslóð
quattro að dreifa vélaraflinu á
milli fram- og afturáss. Milli-
mismunadrifið bregst við spóli á
öðrum hvorum ásnum á broti úr
sekúndu og miðlar aflinu til þess
áss sem hefur besta veggripið.
Mismunadrif eru á báðum ásum,
sem stýra dreifingu aflsins á milli
hjóla. Sýningin er opin frá klukk-
an 12 til 16. ■
Haldið upp á afmæli
tæknibyltingar
25 ár frá útgáfu fyrsta quattro-bílsins.
Quattro bílar Audi hafa fengið góðar viðtökur á Íslandi. 25 ár eru liðin frá útgáfu fyrsta
bílsins.
„Undantekingarlaust á að vera kveikt
á aðalljósum bifreiðarinnar eða sér-
stökum dagljósum,“ segir Þorgrímur
Guðmundsson, aðalvarðstjóri umferð-
ardeildar Lögreglunnar í Reykjavík. „Það
er allnokkuð um að þetta sé ekki í lagi
hjá fólki, sérstaklega eru margir sem
halda að það dugi að nota stöðuljós
eða þokuljós í stað aðalljósa. Það er
ekki rétt. Þokuljós eiga til dæmis bara
við við sérstakar aðstæður.“
Þorgrímur segir fólk sennilega ekki átta
sig á því að margir nýir bílar koma ekki
með dagljósabúnaði. Fyrir nokkrum
árum var bundið í lög að bílar væru
með slíkan búnað en þau lög eru ekki
lengur í gildi. Slíkur búnaður sé hins
vegar ekki dýr og mælir Þorgrímur með
því að bíleigendur festi kaup á slíkum
búnaði frekar en eiga það á hættu
að verða sektaðir. „Það varðar lægstu
sektargreiðslu, eða fimm þúsund króna
sekt, að vera ekki með aðalljós kveikt.
Hvort sem önnur ljós eru til staðar eða
ekki. Ég nota sjálfur dagljósabúnað frek-
ar en að eiga það á hættu að gleyma
ljósunum og þurfa að borga sekt,“ segir
Þorgrímur.
Reynir Viggósson er framkvæmdastjóri
rafvélaverkstæðisins Tæknivélar. „Á
þessari öld eru varla margir sem enn
vilja þurfa að kveikja og slökkva ljós
í hvert sinn sem sest er upp í bíl. Hjá
okkur kostar á milli 15 og 20 þúsund að
fá settan dagljósabúnað í bíl. Það tekur
um tvo eða þrjá tíma svo fólk getur
oft fengið það gert samdægurs,“ segir
Reynir.
„Við erum mikið í því að setja dagljósa-
búnað í nýja bíla og nýinnflutta. Amer-
ískir bílar eru margir með búnað sem
kveikir á ljósum eftir birtuskilyrðum.
Bílar sem koma frá Kanada eru hins
vegar með ljósabúnað sem kveikir bara
framljós og fást ekki nýskráðir hérlendis
óbreyttir. Við breytum hvorut veggja til
samræmis við íslensk lög,“ segir Reynir
sem sjálfur er með dagljósabúnað í
sínum bíl.
„Já, ég er það og mundi ekki vilja vera
án hans. Mér finnst skrítið að fólk vilji
þurfa að kveikja ljósin sjálft. Það er líka
hryllilega vont þegar fólk er ljóslaust í
umferðinni. Maður er orðinn svo vanur
því að allir eigi að vera með ljósin kveikt
að undirmeðvitundin leitar að ljósunum
þegar maður horfir eftir bílum. Ljóslaus-
ir bílar eru því næstum ósýnilegir. Ég
hvet ljóslausa til að kippa þessu í lag,“
segir Reynir að lokum.
Ljóslausir hættulegir og ólöglegir
Í LÖGUM ER KVEÐIÐ Á UM AÐ BÍLAR SÉU MEÐ KVEIKT AÐALLJÓS EÐA DAGLJÓS Í UMFERÐINNI. GLEYMNIR GETA ÁTT VON Á
SEKT.
Einfalt er að koma dagljósabúnaði fyrir og kostnaðurinn er ekki mikill. Bíleigendur eiga þá
ekki á hættu að verða sektaðir vegna ljósleysis að ógleymdu því að það er nauðsynlegt að
sjást í umferðinni. E.ÓL.
Opel Vectra W/G
F. skráð. 10/1998, ek. 79.000 km
Vél: 1600cc
Litur: Dökkgrænn
Verð: 690.000
Tilboðsverð: 290.000 kr.
www.toyota.is
Áhyggjulaus og örugg bílaviðskipti - strangt skoðunarferli, 14 daga skiptiréttur, ókeypis skoðun eftir 1000 km, allt að 1 árs ábyrgð.
Skoðaðu úrvalið á Nýbýlavegi 4, á www.toyota.is eða hringdu í 570 5070.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
30
16
4
1
1
/2
00
5
BETRI NOTAÐIR BÍLAR
Ford Escort
F. skráð. 08/1997, ekinn 93.000 km
Vél: 1600cc
Litur: Blár
Verð: 320.000 kr.
Tilboðsverð: 190.000 kr.
Opel Astra W/G
F. skráð. 7/1999, ekinn 127.000 km
Vél: 1600cc
Litur: Rauður
Verð: 750.000 kr.
Tilboðsverð: 490.000 kr.
BMW 730i S/D
F. skráð. 01/1994, ekinn 170.000 km
Vél: 3000cc
Litur: Vínrauður
Verð: 750.000 kr.
Tilboðsverð: 570.000 kr.
Opel Zafira, 7 manna
F. skráð. 08/2000, ekinn 89.500 km
Vél: 1800cc
Litur: Hvítur
Verð: 1.1500.000 kr.
Tilboðsverð: 890.000 kr.
Renault Clio
F. skráð. 12/2000, ekinn 101.000 km
Vél: 1400cc
Litur: Svartur
Verð: 610.000 kr.
Tilboðsverð: 350.000 kr.
Ferðafélagar á besta aldri
Isuzu Trooper
F. skráð. 06/1999, ekinn 138.000 km
Vél: 3000cc
Litur: Hvítur
Verð: 1.650.000 kr.
Tilboðsverð: 1.390.000 kr.
Opel Omega W/G GL Diesel
F. skráð. 01/2001, ekinn 183.000 km
Vél: 2000cc
Litur: Grár
Verð: 1.690.000 kr.
Tilboðsverð: 890.000 kr.
Alltaf góð tilboð í tilboðshorninu okkar,
- sjá nánar á www.toyota.is notaðir bílar.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI