Fréttablaðið - 12.11.2005, Side 45

Fréttablaðið - 12.11.2005, Side 45
LAUGARDAGUR 12. nóvember 2005 10 Bræður í sókn Danska tískumerkið Bruuns Bazaar er tíu ára. Á 10 ára afmæli danska tískumerkisins Bruuns Bazaar hefur það aldrei verið vinsælla. Bruuns Bazaar var stofnað í Kaupmannahöfn árið 1995 af bræðrunum Teis og Björn Bruun og árið 1999 sýndu þeir fyrstir danskra hönnuða á tískuvikunni í París. Í dag rekur fyrirtækið fjórar búðir í Kaupmannahöfn, eina í Ósló og eina í Stokkhólmi fyrir utan að selja vörur til verslana í meira en 30 löndum víðs vegar um heiminn. Hjá Bruuns Bazaar tískuhúsinu er leitast við að hanna flíkurnar í klassískum stíl með stíl- færðum persónulegum smáatriðum og sam- anstendur framleiðslan af dömulínu, herra- línu og fylgihlutum. Einnig framleiða bræðurnir línu sem heitir BZR og er hún ætluð aðeins yngri kúnna- hóp enda eru þær flíkur áræðnari og ung- legri. Það árar vel hjá dönsku Bruuns bræðr- unum og í ár hefur línan þeirra tekið stökk upp á við, myndir af flíkunum birt- ast reglulega í stærstu skandinavísku tískublöðunum og þau seljast eins og heitar lummur. Fyr- irtækið er í mikilli sókn og alltaf eitthvað nýtt að gerast, má þar nefna nýju gallalínuna frá BZR og heyrst hefur að skólína sé í bígerð. Bruuns Baz- aar og BZR fást í versluninni Evu Lauga- vegi. Bleik peysa kr. 17.990 Taska kr. 23.990 Taska kr. 23.990 Blá golftreyja kr. 14.990 Í Sigurboganum á Laugavegi fæst ýmislegt fleira en snyrtivörur. Verslunin Sigurboginn sem hvað þekktust er fyrir snyrtivörur og Wolford-sokkabuxur hefur undanfarið verið að þróast í klassalíf- stílsverslun með breitt vöruúrval. Töskur og skart eru alltaf að verða meira áberandi og nú hafa flott- ar flíkur frá Frakklandi og Ítalíu hreiðrað um sig á milli ilmvatna og and- litskrema. Mest áhersla er lögð á franska merkið Ther- ese ze Therazza en línan sem boðið er upp á í Sigurboganum er þeirra fyrsta fatalína undir nýju nafni en hönnuðurnir hafa síð- ustu árin hannað fyrir önnur og þekktari merki. Þessar flíkur eru skemmtilegar og vel útfærðar, smáatriðin eru úthugsuð og efnin gæða- leg. Einnig eru ítalskar peysur í Sigurboganum sem eru afar girnilegar og blússur frá franska merkinu Rayure en það hannar flíkur ein- ungis í svörtu og hvítu. Þetta er skemmtileg vörublanda sem er boðið upp á í Sigurbog- anum og auðvelt að gleyma sér innan um nýjustu gerðir af netsokkum, mjúk- um merinópeysum og glansandi vara- glossi. Sjarmerandi flíkur í Sigurboganum Plómulituð peysa kr. 14.500 Taska kr. 5.900 Appelsínugul peysa kr. 9.500 Belti kr. 5.900 Skinnkragi kr. 4.500 Taska kr. 5.900 Ljós peysa kr. 14.500 Vesti kr. 8.900 Skyrta kr. 11.900 Pils kr. 15.800 Leggings kr. 2.200

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.