Fréttablaðið - 12.11.2005, Qupperneq 66
12. nóvember 2005 LAUGARDAGUR42
Party Zone hefur verið útvarpað
um 700 sinnum á sex útvarpsstöðv-
um. Haldin hafa verið yfir fimmtíu
Party Zone-kvöld af ýmsum stærð-
um og gerðum auk þess sem for-
svarsmenn þáttarins hafa flutt inn
mörg af stærstu nöfnum danstón-
listarinnar. Í lok hvers árs send-
ir þátturinn frá sér árslista með
bestu danslögum ársins og þar að
auki hafa fjórar safnplötur verið
gefnar út á vegum þáttarins.
Danstónlist frá Ibiza
„Við byrjuðum 1990 á Útrás. Ég
var búinn að vera að grúska í raf-
tónlistinni á þessum tíma og hlusta
á Art of Noise, Kraftwerk og
Brian Eno. Dans-
tónlistin var að
stíga af stað og
þá var byrjað að
detta inn hingað
heim talsvert af
danstónlist með
fólki sem var að
koma frá Ibiza,“
segir Helgi Már
Bjarnason, annar
af upphafsmönn-
um Party Zone.
„MTV var með
þátt sem hét
Party Zone sem
spratt upp úr
þessari bylgju og
við ákváðum að
„kópera“ nafnið,
taka upp þáttinn
og henda lögunum í loftið á Útrás.
Þetta var „bootleg“ þáttur,“ segir
hann og hlær. „Bróðir minn átti
gervihnattadisk og komst greið-
lega í þetta og þannig byrjaði
maður að spila þessi lög.“
Helgi Már var álitinn stór-
skrítinn þegar hann byrjaði með
útvarpsþátt sinn er hann stundaði
nám við Menntaskólann við Sund.
Kristján Helgi Stefánsson, sem
var í FG, byrjaði síðan með þátt-
inn með honum, sem varð þar með
fjögurra tíma langur og þannig
hefur hann haldist allar götur
síðan með þessum tveimur þáttar-
stjórnendum.
Um þetta leyti fór þeir Helgi og
Kristján að fá plötusnúða í heim-
sókn í þáttinn sinn en þeir voru
smám saman farnir að spretta upp
í framhaldsskólum landsins. Spil-
uðu þeir í beinni útsendingu og
upp frá því fór að myndast sérstök
plötusnúðastemning í þættinum,
með nöfnum á borð við Grétar og
Magga Lego fremst í flokki. Þarna
var þátturinn kominn í það form
sem hann hefur
meira og minna
haldist í allar
götur síðan.
„Við vorum
þarna farnir
að gefa miða á
s k e m m t i s t a ð i
eins og Tunglið
og Ingólfskaffi.
Svo voru þessi
blessuðu „reif“
að byrja á þess-
um tíma á alls
konar stöðum
eins og í skemm-
um og dekkja-
v e r k s t æ ð u m .
Skemmtistaðirn-
ir voru opnir til
þrjú og þá voru
„reifin“ oft haldin eftir það,“ segir
Helgi.
Toppnum náð með Uxa
Að sögn Helga náði danstónlistar-
senan hæstu hæðum hér á landi í
kringum 1995 og 1996, þegar útihá-
tíðin Uxi var meðal annars haldin.
Síðan fjaraði hún dálítið út og fór
út í jaðarinn. Síðan þá hefur dans-
tónlistin komið og farið í bylgjum
og að sögn Helga er hún við jaðar-
inn í dag.
Helgi leggur áherslu á að Party
Zone hafi aldrei snúist um það að
græða peninga. „Þá værum við
ekki að spila eins og við gerum
heldur dottið inn í poppblöðru-
gírinn. Við höfum alltaf viljað
vera að grúska í músíkinni númer
eitt, tvö og þrjú og halda ákveðn-
um standard með henni. Annars
hefðum við kannski endað á FM
eða með þátt á Popptíví.“
Að sögn Helga hefur breyting-
in á danstónlistinni verið mikil í
gegnum árin og hún orðin mun
fjölbreyttari. „Núna er allt leyfi-
legt í danstónlist. Hún hefur þró-
ast gríðarlega og hefur farið út
í allar áttir; house, teknó, drum
& bass, chill out og progressive
klúbbamúsík,“ segir hann.
Það er mikið framundan hjá
Party Zone á næstunni. Þátturinn
hefur gert samning við Smekk-
leysu um að gefa út fimmtán ára
afmælisplötu á næsta ári, auk þess
sem nýir dagskrárliðir skjóta upp
kollinum með reglulegu millibili.
Til dæmis geta menn núna hlustað
á þáttinn í gegnum MSN eða verið
áskrifendur í gegnum iTunes.
TOMMY WHITE Einn af fjölmörgum plötu-
snúðum sem hafa spilað í Party Zone í
gegnum tíðina er Tommy White.
KENNIR ÝMISSA GRASA Hér má sjá hluta af efni tengdu þeirri tónlist og viðburðum sem
Party Zone hefur komið nálægt í gegnum tíðina.
PARTY ZONE Þeir félagar Helgi Már (til vinstri) og Kristján Helgi hafa verið stjórnendur Party Zone í fimmtán ár.
UPPÁHALDSHLJÓMSVEITIR
PARTY ZONE:
Masters at Work (USA)
Basement Jaxx (UK)
Daft Punk (Frakkland)
Cassius (Frakkland)
Larry Heard/Mr. Fingers (USA)
Tiefschwarz (Þýskaland)
Röyksopp (Noregur)
St. Germain (Frakkland)
Jazzanova (Þýskaland)
Underworld (UK)
Air (Frakkland)
Lemon Jelly (UK)
Gus Gus (Ísland)
KLF (UK)
Deee-lite (USA/Japan/Rússland)
Inner City (USA)
X-press 2 (UK)
Sabres of Paradise (UK)
Carl Craig/Paperclip People (USA)
Björk (Ísland)
Etienne De Crecy (Frakkland)
Jori Hulkkonen (Finnland)
FIMM MINNISSTÆÐUSTU
PARTY ZONE-KVÖLDIN:
Masters At Work á Tunglinu (‘95)
Útgáfuhátíð á Tunglinu (‘95)
(aðsóknarmet sett)
Útgáfuhátíð á Tetris og rave í Nauthólsvík
(Flugmálastjórn) á eftir (‘96)
Timo Maas (‘01)
Kerri Chandler á Thomsen (‘03)
TOPP 15 LISTI
PARTY ZONE:
1 NEW ORDER BLUE MONDAY
2 NU YORICAL SOUL THE NERVOUS TRACK
3 UNDERWORLD REZ/COWGIRL
4 STARDUST MUSIC SOUNDS BETTER WITH YOU
5 JOE SMOOTH PROMISED LAND
6 THE BUCKETHEADSTHE BOMB (THESE SOUNDS..)
7 TEN CITY MY PEACE OF HEAVEN
8 PAPERCLIP PEOPLE THROW
9 LIL LOUIS FRENCH KISS
10 FUTURE SOUND OF LONDON PAPUA NEW GUINEA
11 HARDFLOOR ACPERIENCE
12 HARDSOUL FT. RON CARROLL BACK TOGETHER
13 CRYSTAL WATERS GYPSY WOMAN
14 NORMA JEAN BELL I‘M THE BADDEST BITCH
15 69 DESIRE
Stanslaust stuð í fimmtán ár
Útvarpsþátturinn Party Zone heldur upp á fimmtán
ára afmæli sitt um þessar mundir. Þátturinn, sem er á
dagskrá Rásar 2 á laugardagskvöldum, hóf göngu sína
á framhaldsskólastöðinni Útrás í október árið 1990.
Freyr Bjarnason ræddi við Helga Má Bjarnason, annan
af umsjónarmönnum Party Zone, um sögu þáttarins.