Fréttablaðið - 12.11.2005, Side 70
12. nóvember 2005 LAUGARDAGUR46
Route 12 , Northern Wisconsin.
Við bjuggum á bóndabæ þar sem
fraus í vatnspípunum á hverri
nóttu. Í alvörunni. Þetta var menn-
ingarsjokk fyrir mömmu , sem
ólst upp í Chicago.
Pershing Road, Waterloo Iowa.
Ég ólst upp í þessarri litlu götu í
þessari verksmiðjuborg.
Shore Acres Drive, Racine.
Versta húsið í fallegasta hverfinu
í verstu borginni í Wisconsin.
Gilman Street, Madison Wisconsin.
Íbúð í háskólanum í Wisconsin.
Þetta var mjög fallegur hluti bæj-
arins með alls kyns búðum sem
seldu meðal annars burritos og
hasspípur. Núna er búið að henda
því öllu og GAP og Starbucks
komið í staðinn.
West Broom Street, Madison.
Leigusalinn safnaði baðkörum og
skildi þau eftir úti í garði. Ég bjó
í risinu og fyrsta daginn sem við
vöknuðum þarna uppi var 40 stiga
hiti inni. Við uppgötvuðum líka að
það var verið að rífa upp götuna
okkar og að lestin brunaði fram hjá
á hverjum morgni klukkan 07.20.
Herbergisfélaga mínum fannst
það frábært því þá myndum við
aldrei verða of seinir í tíma.
Little Clarendon Street, Oxford,
England.
Lítil íbúð sem ég deildi með hinum
útlendingunum sem gengu í
Oxford-háskólann. Little Clarend-
on er ótrúlega falleg gata á daginn
og á kvöldin þá æla allir busarnir
á hana.
4th Street, Mankato, Minnesota.
Bjó beint við hliðina á húsinu
þar sem rithöfundurinn Sinclair
Lewis bjó þegar hann skrifaði
Main Street. Meðleigjandi minn
teiknaði nasistakrossinn á loftið,
sagði mér að leigusalinn væri að
fara í gegnum ruslið okkar, seldi
mér hjólið sitt fyrir tuttugu doll-
ara og hvarf svo.
Paris Street, Boston, Massachus-
etts.
Eina íbúðin sem ég hafði efni á í
háskóla, og hún var í Maverick
Gardens svæðinu í Austurhluta
Boston. Ég var með mús og rottu
í íbúðinni og svo brutust nágrann-
arnir inn í hana til að stela alls
kyns hlutum. Þetta var orðið leið-
inlegt vandamál. Þegar ég flutti
út bentu vinir mínir mér á það
að lögreglusírenurnar og þjófa-
varnavælið hafi ekki hætt í þá
fjóra tíma sem við vorum að flytja
draslið mitt út.
Fairfield Avenue, Cambridge,
Massachusetts.
Í skugga Harvard-skólans. Davis-
torgið var fullt af háskólapróf-
essorum, lögfræðingum og graf-
ískum hönnuðum. Svo sprakk
internet-bólan og Rauða kross
búðirnar fylltust af Yves Saint
Laurent-fötum,
President Street, Brooklyn,
New York.
Beint á móti World Trade Centre,
við austurána. Það tók mig tvo
tíma að komast frá heimili mínu
í vinnunna þar sem ég kenndi
við Bronx Community College.
Það eina sem ég man eftir ellefta
september var rykið sem fyllti
íbúðina mína, og að sitja heima
hjá mér og hlusta á sjúkrabílana
og lögreglubílana bruna fram hjá
í það sem virtist vera óendanleg-
an tíma.
11th Street, Brooklyn, New York.
Sama hverfi og Paul Auster bjó í
og í raun sama hverfi og allir rit-
höfundar flytja til þegar þeir eiga
smápening. Ég bjó við Prospect
Park, sem er miklu flottari en
Central Park.
Gamli Garður, Hringbraut,
Reykjavik.
Það var eitthvað mjög sjarmer-
andi við að búa í kjallaranum á
svona stúdentahúsnæði. En stund-
um þegar ungt fólk var að drekka í
Stúdentakjallaranum þá ruglaðist
það á glugganum mínum og klós-
etti. Þá hvarf sjarminn.
Blómvallagata, Reykjavík.
Ég flutti inn í ótrúlega fallega
íbúð á þriðju hæð með útsýni yfir
dæmigerðan bakgarð í Vestur-
bænum. Leigusalinn minn sagði
mér að þetta minnti hana á París.
Gamall maður í íbúðinni beint á
móti var með bréfapressu í formi
Eiffelturnsins, sem hann hafði
örugglega keypt sem minjagrip
frá borginni.
Laufásvegur, Reykjavík.
Ég var alveg tilbúinn að flytja í
burtu frá Íslandi, þegar ég fékk
starf hjá Iceland Review. Mér
fannst það sniðug hugmynd til að
kynnast landinu betur. Ég svaf á
sófanum hjá öðrum blaðamanni
og fékk svo íbúð í sama húsi. Hann
sagði að þar væri reimt.
Hofsvallagata, Reykjavík.
Við vinnum á óguðlegum tímum
hjá Reykjavík Grapevine. Ég hitti
aldrei kærustuna mína og ákvað að
það væri skynsamlegast að flytja
inn með henni svo að ég myndi
einhverntíma sjá hana. Og ég er
mjög glaður yfir að vera kominn
aftur í Vesturbæinn.
Bjó í sama hverfi
og Paul Auster
GÖTURNAR Í LÍFI MÍNU } Bart Cameron
Bart Cameron, ritstjóri enska dagblaðsins The Reykjavík Grapevine ólst upp í
hinu ameríska miðvestri, nánar tiltekið í Madison, Wisconsin. Þaðan lágu leiðir
hans til Oxford í Englandi og svo Brooklyn í New York, þar sem hann fékk öskuna
úr World Trade Center inn í íbúðina sína þann örlagaríka dag, 11 september.
Anna Margrét Björnsson fékk að heyra um skrautlegar götur í Bandaríkjunum og í
vesturhluta Reykjavíkur.
ROUTE 12
PERSHING ROAD
SHORE ACRES DRIVE
GILMAN STREET
WEST BROOM STREET
LITTLE CLARENDON STREET
4TH STREET, MANKATO
PARIS STREET
FAIRFIELD AVENUE
PRESIDENT STREET
11TH STREET
GAMLI GARÐUR, HRINGBRAUT
BLÓMVALLAGATA
LAUFÁSVEGUR
HOFSVALLAGATA