Fréttablaðið - 12.11.2005, Side 74

Fréttablaðið - 12.11.2005, Side 74
 12. nóvember 2005 LAUGARDAGUR50 menning@frettabladid.is ! 005 11 tbl 22 árg 899 kr. m .vsk. M ANNLÍF JÓN ÓLAFSSON OG SONUR HANS VATNIÐ, ÞUNGLYN DIÐ OG MEIÐYRÐAMÁL IÐ TÍSKAN Í LONDON KRÓNPRINSESSAN ÞORGERÐUR KATR ÍN LINDA OG ÍSABELLA Linda Pétursdóttir í einkaviðtali. Nýfædda dóttirin, barnsfaðirinn, baráttan við fíknin a og íslenska ríkið, sem rukkaði hana um 800 þúsund krónur fyr ir dótturina. EINKAV IÐTAL Nóvember 2005 11. tbl. 22. árg. 899 kr. m.vsk. ILLUGI MISSIR MINNI AFREKSMENN Í KLÓM FÍKNAR ALLT UM ÖRNINN UPPSELT HJÁ ÚTGEFAND A Kl. 16.00 Kvikmyndasafn Íslands sýnir frönsku kvikmyndina Themroc frá árinu 1973 í leikstjórn Claude Faraldo. Myndin er sú síðasta af þremur sem Friðrik Þór Friðriksson velur til sýninga. > Ekki missa af ... ... tónleikum djasstríóisins B3 í Múl- anum, Þjóðleikhúskjallaranum, annað kvöld þar sem minnst verður Jimmy Smith, helstu hetju allra Hammond- djassorganista. ... tónleikum Tríós Reykjavíkur í Hafn- arborg á morgun. Gestur tríósins verður Joseph Ognibene hornleikari. ... sýningu Bjargar Eiríksdóttur í sýn- ingarsal Gallerís Svartfugls og Hvítspóa, Brekkugötu 3a á Akureyri. Sýningunni lýkur um helgina. Þrettán ungir listamenn eiga verk á sýningunni Ný íslensk myndlist II, sem opnuð verður í Listasafni Íslands í dag. „Við tókum fljótlega þann pól í hæðina að fá listamennina til þess að fjalla um rýmið hérna inni í Listasafninu,“ segir Harpa Þórsdóttir listfræðingur, einn þriggja sýningarstjóra sýningar- innar Ný íslensk myndlist II sem opnuð verður í Listasafni Íslands í dag. Sýningarstjórar með Hörpu eru þær Eva Heisler, amerísk- ur listfræðingur sem hefur búið hér á landi í nokkur ár, og Krist- ín G. Guðnadóttir listfræðingur, sem er forstöðumaður Listasafns ASÍ. „Sum verkin eru búin til inn í safnið, beinlínis hönnuð hér inni, en hin verkin hafa flest lítið sést áður en okkur fannst þau falla vel að sýningunni og hugmynd- inni að baki henni.“ Listasafnið vill með þessari sýningu, alveg eins og með fyrri sýningunni Íslensk myndlist I, beina sjónum manna að þeirri nýsköpun sem átt hefur sér stað í íslenskri myndlist undanfarið. Öll verkin á sýningunni eiga það sameiginlegt að fást við rýmið á einn eða annan hátt. „Pælingar um rými og rým- istengd listaverk eru mjög stór þáttur í myndlistinni í dag,“ segir Harpa. „Þessi verk fjalla líka um áhorfendurna og tengsl lista- verks og áhorfandans, hvernig hann getur verið virkur aðili í listsköpuninni.“ Afar misjafnt er hvernig lista- mennirnir tóku áskorun sýning- arstjóranna. Hulda Stefánsdóttir fór til dæmis þá leið að gera inn- setningu með málverkum og ljós- myndum í anddyri Listasafnsins. „Það var heilmikil áskorun að takast á við þetta rými sem er arkitektúr stáls og glers, dálítið kalt allt saman, svo ég ákvað að hafa þetta milt og rómantískt.“ Í sumar var Hulda með sýn- ingu í Ásmundarsal þar sem hún var að skoða hvíta litinn, sem er ákveðið litleysi. „Ég held áfram þessum lita- pælingum, en nú fer ég yfir í roð- ann. Mér fannst það passa vel inn í þetta rými. Þetta eru allt saman rauðar myndir, húð og skuggar, bæði listsögulegar skírskotanir og persónulegar.“ Þau Elín Hansdóttir og Darri Lorenzen fengu sal 4 að stórum hluta til umráða, en sá salur er á efri hæð hússins og snýr út að Tjörninni. „Þessi salur er allur boga- dreginn og mjög snúinn, þannig að það komu ákveðin vandræði upp í hvert skipti sem við vorum að hugsa hvernig við ættum að gera þetta,“ segir Elín. „Á endanum ákváðum við að gera salinn sjálfan að verk- inu sem við sýnum. Við bætum í sjálfu sér engu við hann, en teygjum hann og togum. Í raun og veru endurbyggjum við hluta salarins og sköpum þannig nýtt rými þarna inni, og um leið erum við að spila svolítið með þær minningar sem fólk hefur úr þessu húsi, og líka umhverfið fyrir utan, Tjörnina og allt það,“ segir Elín og minnir á að í eina tíð var þetta musteri listarinnar íshús og síðar var þarna skemmti- staðurinn Glaumbar til húsa. Aðrir listamenn sem eiga verk á sýningunni eru Hafdís Helga- dóttir, Hekla Dögg Jónsdóttir, Hlynur Helgason, Inga Þórey Jóhannsdóttir, Katrín Sigurð- ardóttir, Kristinn Hrafnsson, Ragnar Helgi Ólafsson, Sara Björnsdóttir, Unnar Örn Jónas- son Auðarson og Þóra Sigurðar- dóttir. DARRI LORENZEN OG ELÍN HANSDÓTTIR Þau þurftu að notast við kranabíl með körfu til þess að koma fyrir lýsingu fyrir utan safnið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN HLYNUR HELGASON Hlynur er einn þrettán myndlistarmanna sem eiga verk á sýningunni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Glímt við sali Listasafns „Fyrir okkur er þetta eins og fyrir píanóleikara að fá að spila fjórhent með Ashkenazy eða fyrir fótbolta- leikara að fá allt í einu tækifæri til að spila með Manchester United,“ segir Árni Heimir Ingólfsson tón- listarfræðingur. „Þetta er topplið. Það gerist ekki betra.“ Hann er að tala um breska kórinn The Tallis Scholars, sem sérhæfir sig í að syngja tónlist fyrri tíma. Þessi einstæði kór er væntanlegur er hingað til lands í janúar. Það er Árni Heimir og kammerkórinn Carmina sem standa fyrir komu The Tallis Scholars. Kórinn syngur á tvennum tón- leikum í Langholtskirkju 7. og 8. janúar næstkomandi, en miðasal- an hefst núna á þriðjudaginn. Árni Heimir kynntist bæði stjórnanda kórsins og nokkrum af söngvurunum sumarið 2001 þegar hann sótti námskeið hjá þeim úti í Englandi. „Þeir halda námskeið á hverju sumri. Fólk kemur þangað alls staðar að úr heiminum til þess að læra um gamla tónlist og hvernig á að flytja þangað.“ Árni fór síðan aftur þangað út síðasta sumar og þá höfðu ensku söngvararnir frétt af því að hann hefði stofnað sambærilegan kór hérna heima, nefnilega kammer- kórinn Carmina. „Þau voru spennt fyrir því sem við vorum að gera og það þróað- ist þannig að þau koma til lands- ins. Um leið verður þetta eins og meistaranámskeið fyrir okkur líka í Carminu.“ Stjórnandi The Tallis Scholars er Peter Phillips. Kórinn hefur gefið út fjöldann allan af diskum með gamalli tónlist af ýmsu tagi og þykir einn sá allra fremsti á sínu sviði í heiminum. „Þau hafa náð ótrúlega góðum árangri í að samhæfa sönginn sinn, að ná þessum samhljómi sem allir kórar eru alltaf að reyna að ná, að syngja hreint.“ Hinn hreini tónn THE TALLIS SCHOLARS Þessi enski úrvalskór kemur hingað til lands í janúar og heldur tvenna tónleika. Guðrún Nielsen myndlistarkona hélt um síðustu helgi sýningu á japanskri teathöfn á sýningu sinni í Galleríi Sævars Karls í Bankastræti. Athöfnin var tekin upp á myndband og verður sýnd óklippt í dag í galleríinu. Á sýningunni hefur Guðrún sett upp japanskt tehús og búddagarð inni í sýningarsalnum. Þótt tehúsið sé í einu og öllu gert í samræmi við japanskar hefðir gegnir það engu að síður ekki eiginlegu hlut- verki sínu hér á landi „þar sem siðir og venjur er óger- legt að taka að láni. Þetta verður því aðeins afdrep í afmörkuðu rými,“ segir Guðrún. Þegar teathöfnin var framkvæmd um siðustu helgi breyttist hlutverk tehússins skyndilega, „tilvist þess fékk tilgang stutta stund. Þeir sem sáu um sýn- inguna voru allt í einu á heimavelli jafnt í athöfn sem rými, þá fannst mér tilganginum náð.“ Guðrún fékk Sigrúnu Sveinsdóttur sem búið hefur í Japan og japanskar konur, þær Yukie Moriy- ama, Rosa Moriyama og Mariko Hashimoto, til þess að aðstoða og framkvæma teathöfnina. Græna teið komu þær með sér og margvíslega aðra hluti sem ómissandi eru. Ber þar að nefna pottinn sem heldur vatninu heitu, keramikskálar og fagurlega unna hluti úr bambus. Sýningu Guðrúnar lýkur á fimmtudaginn í næstu viku. Japanska tehúsið lifnar við

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.