Fréttablaðið - 12.11.2005, Síða 79

Fréttablaðið - 12.11.2005, Síða 79
LAUGARDAGUR 12. nóvember 2005 55 Leikkonan unga Kirsten Dunst er komin langa leið í Hollywood eftir að hún vakti fyrst athygli í myndinni Interview with a Vampire. Hún hefur sannað það að hún getur bæði leikið í litlum óháðum myndum eins og Virgin Suicides og stórum smellum eins og Spiderman. Leikurinn er þó ekki það eina sem stúlkunni er til lista lagt heldur er hún einkar lagin við að velja sér föt. Þó svo að hún hafi mjög líklega stílista lítur hún út fyrir að hafa hönd í bagga því stíllinn er alltaf sá sami og virðist vera afar persónulegur. Einnig er hún mjög töff til fara þegar hún sprangar um götur New York-borgar á frídögunum sínum. Þá er hún yfirleitt frekar kæruleysislega klædd en tekst alltaf að vera töff. Uppáhaldsskórnir hennar eru Converse- strigaskór og hún viður- kennir að hún sé nokkuð veik fyrir búðarferðum. „Ég elska tísku og elska að kaupa föt. Það kemur mér í gott skap,“ sagði hún í nýlegu viðtali við veftímarit eitt.“ Stíln- um hennar er best lýst sem góðri blöndu af fötum frá dýrum hönnuð- um og fötum sem hún virðist hafa fundið á flóamarkaði eða í búðum sem selja notaðar vörur. Hún notar mikið gamla kjóla sem eru oft í stíl þriðja áratugarins og við þá geng- ur hún í fallegum skóm og jafnvel flatbotna skóm − ólíkt öðrum tísku- drottningum í Hollywood. „Helsta leyndarmálið til þess að líta vel út er að trúa á sjálfan sig. Að hafa gott sjálfsöryggi og reyna að trúa á ákvarðanir sínar og hugs- anir, þá er auðvelt að líta vel út,“ segir hún. www.postur.is Hver á heima hér? Það eru vinsamleg tilmæli okkar hjá Póstinum að bréfalúgur og póstkassar séu merkt skýrt og greinilega með fullu nafni allra sem búa í húsinu. Lélegar eða alls engar merkingar geta orðið til þess að endursenda verði póst, sendanda og viðtakanda til verulegra óþæginda. Aðstoð þín og tillitssemi auðvelda okkur að koma póstinum til þín hratt og örugglega. Með fyrirfram þökk. Eitt það nýjasta sem snyrtivöru- fyrirtækið Ĺoccitane hefur sett á markað er dásamleg freyðiböð sem gæla við líkamann. Ef það er eitthvað sem veturinn kallar á þá er það heitt og gott freyðibað. Kveikið á kertum allt í kringum baðkarið og slökkvið ljósin. Vet- urinn tryggir að dimmt er úti í flestum tilvikum og baðferðin verður enn rómantískari. Gott er að setja svo eitthvað rólegt á fón- inn og úr verður dásamleg stund. Freyðiböðin frá Ĺoccitane eru til með tveimur ilmum, annars vegar með rósailmi og hins vegar með vanilluilmi. Freyðiböðin eru silki- mjúk og yndislegt er að slappa af og finna vöruna mýkja upp húðina á meðan daufur ilmurinn fyllir vitin. Vert er að minnast á að framleiðendur L´occitane-var- anna fara eftir nokkrum mikil- vægum atriðum við framleiðslu þeirra sem ættu að skipta við- skiptavini máli. Meðal annars taka þeir skýrt fram að barnaþrælkum tíðkist ekki í verksmiðjum þeirra og þeir notist ekki við rannsókn- ir á dýrum. Umbúðirnar eru umhverfisvænar sem og innihald þeirra. Einnig er lögð áhersla á að þjóna blindum einstaklingum með því að hafa blindraletur á ýmsum umbúðunum. ■ Silkimjúkt freyðibað VANILLA Fallegt gullitað freyðibað sem glitrar í bað- karinu þínu. RÓSAILMUR Silkimjúkt freyðibað með dásamlegum rósailmi sem fyllir baðherbergið. SIXTÍS Árið 2004 var Kirsten með dásamlega sæta stutta klippingu í anda sjöunda áratug- arins. Hér er hún með þykkan eyeliner sem fullkomnar stílinn. GAMALDAGS Kirsten elskar gamla stílinn og er oft í kjólum sem virðast vera beint af gömlum flóamark- aði. Hér er hún á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum. Leyndarmálið að hafa gott sjálfsöryggi ÓSKARINN Kirsten Dunst var ein sú flottasta á Óskarsverðlaunaafhendingunni í ár. Hún var í Chanel hátískukjól og með stutt ljóst hár. FLATBOTNA Hér er hún í einum af hennar mörgu kjólum í stíl þriðja áratug- arins og að sjálfsögðu í flatbotna skóm við.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.