Fréttablaðið - 12.11.2005, Síða 85

Fréttablaðið - 12.11.2005, Síða 85
Hljómsveitin Sigur Rós mun koma fram í skemmtiþætti Conans O´Brien á bandaríku sjónvarps- stöðinni NBC þann 8. febrúar n æ s t k o m - andi. Sigur Rós er á leið í t ó n l e i k a - ferð um Bandaríkin sem hefst í febrúar og því var á k v e ð i ð að þekkj- ast boðið frá Conan. Orðrómur hefur verið uppi um að Conan muni taka við af kvöldþætti Jays Leno á NBC árið 2009 en þáttur Conans, sem er sýndur á eftir Leno, hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár. Fyrsta smáskífan af plötunni Takk, Hoppípolla, kemur út í Bret- landi þann 28. nóvember. Á B-hlið skífunnar er lagið Blóðnasir, auk tíu mínútna hljóðversupptöku af Hafssól, sem var samið fyrir tíu árum en hefur tekið miklum breytingum síðan þá. Sigur Rós kom fram í þætti Jools Holland í breska ríkissjónvarp- inu, BBC, í gærkvöldi þar sem sveitin söng Hoppípolla og Blóð- nasir. Einnig komu fram í þættin- um John Cale, fyrrum meðlimur Velvet Underground, Santana og Sheryl Crow. Sigur Rós hjá O´Brien CONAN O´BRIEN O´Brien er einn þekktasti spjall- þáttastjórnandi heims. SIGUR RÓS Hljómsveitin Sigur Rós hefur ekki undan því að koma fram í frægum erlendum sjónvarpsþáttum. Leikarinn og hjartaknúsarinn Johnny Depp stendur fast við bakið á fyrrverandi kærustu sinni, ofurfyrirsætunni Kate Moss. Hann segir að komið hafi verið illa fram við hana eftir að myndir birtust af henni sniffandi kókaín. „Kate á að fá að lifa lífinu eins og hún vill. Umfjöllunin um hana var mjög óréttlát. Hún var dregin í svaðið. Hún er ekki að fara í framboð og hún ætlar ekki að verða næsti Messías,“ sagði Depp. „Hún er ekki að reyna að vera fullkomin heldur er hún bara venjuleg manneskja. Enginn er fullkominn. Við erum öll göll- uð á einhvern hátt,“ sagði hann og bætti við: „Hún er enginn vitl- eysingur. Hún er mjög gáfuð og frábær stúlka og mér þykir mjög vænt um hana.“ Depp og Moss voru saman í fjögur ár, þar til upp úr slitnaði árið 1998. ■ Moss er gáfuð og frábær stúlka JOHNNY DEPP Hjartaknúsar- inn stendur fast við bakið á fyrrverandi kærustu sinni. [TÓNLIST] UMFJÖLLUN Þessi stelpa er búin að vera í til- vistarkreppu í lengri tíma. Hefur ekki náð að koma út plötu núna í sex ár. Ástæðurnar eru nokkrar, þar á meðal nokkurra ára ósætti milli hennar og útgefandans. Maður hefur svo sem alltaf fengið á tilfinninguna að hún Fiona Apple sé ekki alveg sú auðveldasta að vinna með. Virkar mjög ákveðin og pirruð stúlka. Og þannig er tónlist hennar líka. Fiona er án efa sér á báti. Djúp rödd hennar er nægilega mikið séreinkenni til þess að kljúfa hópa í áliti. Sem lagasmiður er hún líka mjög sérstök. Á þessari þriðju plötu sinni er hún mjög djössuð, kýs frekar hljómaganga sem rugla mann stundum í ríminu og forðast grípandi laglínur eins og heitan eldinn. Eitt lagið, Please Please Please, fjallar meira að segja um það hversu tilgangslaust það sé að semja popplög sem búið sé að semja milljón sinnum hvort eð er. Þetta veldur því að tónlist henn- ar krefst meiri athygli af hlustend- um hennar og þolinmæði þannig að lögin nái að sökkva inn. Stund- um minna lög hennar mig á tónlist Frank Zappa, sem ég hef alltaf átt erfitt með að skilja. Held að það sé alveg bókað mál að stelpan sé undir miklum áhrifum frá honum. Helsti galli hennar er líklegast að lögin eiga það til að vera heldur einsleit. Þau eiga líka bókað eftir að skipta fólki í tvo hópa. Í annan fara þeir sem líkar við þetta og hinum þeir sem finnst þetta hundleiðinlegt. Textar Fionu eru svo jafn mikil- vægir og restin. Hún er líka afbragðs textahöfundur. Þungir þankar um lífið, ástina og tilveruna. Þessi plata lak á netið fyrir löngu, og það var orðrómur á kreiki um að platan þætti of ósöluleg fyrir útgáfu. Hún er það alveg á köflum og vissulega svolítið erfið. En hæfi- leikar Fionu skína í gegn. Nú er það bara spurning hvort ykkur finnst hún skemmtileg eða ekki. Mér finnst hún bara svona lala. Birgir Örn Steinarsson Þriðja sérvitra eplið FIONA APPLE: EXTRAORDINARY MACHINE Niðurstaða: Fiona Apple rýfur sex ára útgáfuþögn með metnaðarfullri og vandaðri plötu. Stundum erfið áhlustunar og þetta epli er bókað ekki ætlað öllum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.