Fréttablaðið - 12.11.2005, Síða 86

Fréttablaðið - 12.11.2005, Síða 86
62 12. nóvember 2005 LAUGARDAGUR sport@frettabladid.is HANDBOLTI Í gær gaf mótanefnd HSÍ það út að hún myndi ekki verða við beiðni ÍR um að seinka leik félagsins gegn ÍBV þann 17. desember næstkomandi. Fjórir leikmenn ÍR verða í prófi í háskól- anum á sama tíma og leikurinn fer fram og því sóttí ÍR um að leikn- um yrði seinkað um einn dag eða til sunnudagsins 18. desember. Stjórn ÍR hafði ennfremur rætt málið við forystumenn ÍBV og þeir höfðu samþykkt að spila leik- inn 18. desember. Mótanefndin tók sér þrjár vikur í að svara erindi ÍR-inga og Hólm- geir Einarsson, sem haldið hefur uppi handboltalífinu í Breiðholti til fjölda ára, var foxillur þegar hann heyrði af ákvörðun nefndar- innar. “Þetta er alveg ótrúlegt. Ég á ekki til orð. Það er ekki hægt að vinna með þessum mönnum. Ef þessum dómi verður ekki hnekkt þá mun ég leggja það fyrir hand- knattleiksdeild ÍR að við drögum liðið úr keppni í Íslandsmótinu,” sagði Hólmgeir mjög reiður en honum finnst niðurstaða nefndar- innar óskiljanleg. Hann furðar sig ekki bara á niðurstöðunni heldur líka vinnu- brögðunum en eins og áður segir fékk hann ekki svar við beiðninni fyrr en þrem vikum eftir að hann lagði inn sitt erindi. Ástæður höfnunarinnar eru Hólmgeiri ein- nig hulin ráðgáta enda sér hann ekkert því til fyrirstöðu að seinka leiknum. “Þetta er síðasti leikurinn fram í febrúar og ekkert sem mælir gegn því að seinka þess- um leik um einn dag enda skar- ast hann ekki við neinn annan leik eða annað. Hópurinn okkar er ekki mjög stór og við megum ekki við því að vera án þessara leikmanna í leiknum og mér finn- st það ansi hart ef ekki er hægt að hafa skilning fyrir námi drengj- anna,” sagði Hólmgeir þungur á brún en hann skilur ekki af hve- rju þetta þarf að vera svona erf- itt mál. “Það eru allar forsendur fyrir hendi og meira að segja hitt liðið er til í að seinka leiknum.” Það er margt í þessu máli sem Hólmgeir furðar sig á og sérstak- lega í ljósi þess að mótanefnd- in hefur beðið ÍR um að seinka leikjum með litlum fyrirvara. “Þeir báðu mig um að færa leik gegn Selfossi til um dag- inn vegna þess að þeir áttu ekki til dómara og ég sagði það vera sjálfsagt mál. Í gegnum árin hef ég verið beðinn um að færa til leiki af margvíslegum ástæðum og það hefur aldrei verið vanda- mál af okkar hálfu. Ég er búinn að standa í þessum bransa lengi og þetta er í fyrsta skipti sem ég bið um að einhverju verði breytt hjá okkar og þá eru móttökurnar svona,” sagði Hólmgeir sem þarf kannski ekki að grípa til róttækra aðgerða að því er Einar Þorvarð- arson, framkvæmdastjóri HSÍ, segir. “Við ætlum að reyna að skoða þetta mál því við höldum að sama staða sé kominn upp hjá öðrum liðum sem eiga að leika á svipuð- um tíma. Ef vandamálið er víða hljóta menn að taka málið upp aftur,” sagði Einar. henry@frettabladid.is Hótar að draga lið ÍR úr keppni í Íslandsmótinu Hólmgeir Einarsson, stjórnarmaður í handknattleiksdeild ÍR, er ekki sáttur við vinnubrögð mótanefndar HSÍ sem hafnaði beiðni hans um seinkun á leik. Hólmgeir hótar róttækum aðgerðum. EKKI KÁTUR Í DAG Hólmgeir Einarsson, handboltaforkólfur hjá ÍR, er hundfúll út í móta- nefnd HSÍ sem vill ekki seinka leik með ÍR og Hólmgeir mun leggja það til að ÍR dragi lið sitt úr keppni fari svo að dómnum verði ekki hnekkt. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FÓTBOLTI Argentínska knatt- spyrnugoðsögnin Diego Armando Maradona hefur neitað að taka að sér starf sem þjálfari hjá arg- entínska knattspyrnusamband- inu en forráðamenn sambandsins höfðu vonast til þess að Maradona myndi þiggja starf sem einn af þjálfurum argentínska landsliðs- ins. „Mér finnst ekki vera rétt af mér að taka þetta starf að mér að svo stöddu. En ég er þakklátur fyrir það að krafta minna sé óskað hjá landsliðinu því það hefur veitt mér meiri ánægju en nokkuð annað. Vonandi verð ég tilbúinn til þess að starfa með landsliðinu í framtíðinni og ef ég tek að mér starf sem þjálfari þá vil ég get gert það vel,“ sagði Maradona við fjölmiðla í gær. - mh Diego Maradona neitar þjálfarastarfi hjá Argentínu: Ekki tilbúinn til að þjálfa DIEGO MARADONA Hefur að undanförnu starfað sem þáttastjórnandi Argentínu. Íslenskar handboltakonur munu væntanlega ekki sligast undan álagi á næstunni enda eru þær farnar í tveggja mánaða frí frá DHL-deildinni en elstu menn muna vart annað eins hlé í deildakeppni á Íslandi. Stærsta ástæðan fyrir hléinu er þátttaka kvennalandsliðsins í undankeppni EM sem fram fer á Ítalíu í lok mánaðarins. Síðasti leikur Íslands í mótinu er reyndar 27. nóv- ember og því vekur það athygli af hverju næsti leikur í DHL-deild kvenna sé ekki fyrr en 7. janúar. „Það hefði verið mögulegt að spila eina eða tvær umferðir í desember en eftir að hafa farið yfir málið með mótanefndinni og þjálfurum þá var ákveðið að gera það ekki,“ sagði Róbert Geir Gíslason, starfsmaður móta- nefndar HSÍ, við Fréttablaðið í gær en af hverju þessi langa hvíld? „Að taka mánaðarhlé, spila tvær umferðir og fara svo aftur í mán- aðarhlé var ekki eitthvað sem þ j á l f a ra r n i r voru hrifnir af.“ Margir hafa fur- ðað sig á þessari l ö n g u hvíld og þeir sem gagnrýna hana hvað mest hafa látið að því liggja að það sé bölvuð leti í stelpunum og þjálfurunum sem sé ástæðan fyrir þessa veglega jóla- fríi ef svo má segja. Róbert segir aftur á móti að „þjálffræðilegar“ ástæður liggi að baki ákvörðuninni en hvað þýðir það eiginlega? „Það er mjög erfitt að fá liðin upp á tærnar aftur. Þú ert að halda liði þínu léttu í mánuð með æfingum og spilar tvo leiki og svo þarftu að halda því aftur léttu um jólin til að spila í janúar. Með þessu móti er hægt að vera í grunnæf- ingum fram í desember og svo kemur liðið bara sterkara til leiks í janúar,“ sagði Róbert sem hefur engar áhyggjur af því að þessi langa hvíld komi niður á stemn- ingunni fyrir mótinu. ÍSLENSKAR HANDBOLTAKONUR: HAFA ÞAÐ NÁÐUGT ÞESSA DAGANA Tveggja mánaða frí hjá stelpunum > Champions farinn frá KR Körfuknattleiksdeild KR og Bandaríkja- maðurinn Ashley Champion hafa komist að samkomulagi um að leikmaðurinn fari frá félaginu. Champion hefur átt við slæm meiðsli í ökkla að stríða og fyrirhugað var að hann yrði frá keppni í nokkrar vikur. KR-ingar máttu ekki við því og var ákveðið að leysa hann af með nýjum erlend- um leikmanni. Í fréttatilkynningu frá KR kemur fram að brotthvarf Champions sé í mesta bróðerni beggja aðila og leit að eftir- manni hans sé þegar hafin. Ívar mun gefa kost á sér Knattspyrnumaðurinn Ívar Ingimarsson staðfesti í fréttum Stöðvar 2 í gær að hann hygðist gefa kost á sér í íslenska landsliðið á nýjan leik nú þegar Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson eru horfnir á braut. Eru þetta mikil gleðitíðindi fyrir landsliðið, enda Ívar talinn einn af bestu varnarmönnunum í ensku 1. deildinni. � � LEIKIR � 16.15 Fram og Þór mætast í DHL- deild karla í handbolta í Safamýrinni. � 17.00 Afturelding og Víkingur/Fjölnir eigast við í DHL- deild karla í handbolta í Mosfellsbænum. � � SJÓNVARP � 08.30 Bandaríska mótaröðin í golfi á Sýn. � 08.55 Ítölsku mörkin á Sýn. � 09.20 Ensku mörkin á Sýn. � 09.50 Spænsku mörkin á Sýn. � 10.15 X-Games 2005 á Sýn. � 11.10 A1 kappaksturinn á Sýn. � 12.35 NBA körfuboltinn á Sýn. � 14.25 Austfjarðatröllið á RÚV. � 15.10 Þrekmeistarinn á RÚV. � 15.45 Handboltakvöld á RÚV. � 16.05 Íslandsmótið í handbolta á RÚV. � 16.35 Vináttulandsleikur í knattspyrnu á Sýn. Leikur Englands og Argentínu. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 9 10 11 12 13 14 15 Laugardagur NÓVEMBER GOLF Skagamaðurinn Birgir Leifur Hafþórsson lék annan hringinn á lokastigi úrtökumótsins fyrir evr- ópsku mótaröðina á 75 höggum í gær eða þrem yfir pari. Leikið er á Spáni. Birgir Leifur er því samtals á fimm höggum yfir pari og jafn öðrum í 84. sæti. Skorið er niður á mótinu í 75 kylfinga eftir fjóra daga og því er ljóst að Birgir Leifur má herða róðurinn ætli hann sér að komast áfram í mótinu. Takist honum að verða á meðal á 75 efstu mun hann spila tvo hringi í viðbót og 30 efstu að þeim hringjum loknum munu fá þátttökurétt á evrópsku mótaröðinni. - hbg BIRGIR LEIFUR Er ekki að spila nógu vel á Spáni. FÓTBOLTI Guðjón Þórðarson, knatt- spyrnustjóri Notts County, segir að leikmenn sínir séu búnir að endurheimta sjálfstraustið eftir tvo góða sigra á útivelli í röð. “Við lékum mjög vel gegn Bristol og eftir góða útileiki er kominn tími til þess að sýna heimamönnum hvað við getum,” sagði Guðjón í spjalli við heima- síðu Notts County en strákarnir hans mæta Cheltenham. “Ég sé að sjálfstraustið er að koma aftur og við mætum fullir sjálfstrausts til leiks. Vikan hefur gengið vel og mannskapurinn hefur brugðist vel við á æfingavellinum.” - hbg Guðjón Þórðarson: Sjálfstraustið komið aftur GUÐJÓN ÞÓRÐARSON Búinn að stýra Notts County aftur á beinu brautina. GOLF Nick Dougherty og David Howell, sem báðir koma frá Eng- landi, eru efstir og jafnir á HSBC meistaramótinu í Shanghai en þeir hafa leikið á tólf höggum undir pari vallarins. Tiger Woods, sem er tekjuhæsti íþróttamaður heims, er í öðru sæti á tíu höggum undir pari. Dougherty var að vonum ánægður með stöðuna í mótinu en sagði þó ekki hægt að fagna neinu ennþá. „Ég hef komst í gegnum hringina tvo án þess að spila braut á yfir pari og ég er virkilega ánægður með það. Ég er hins vegar meðvitaður um að það eru frábærir kylfingar í þessum hópi sem vel geta náð okkur, ef við höldum ekki okkar striki.“ -mh TIGER WOODS Woods hefur leikið ágætlega í Shanghai en þarf þó að taka sig á ef hann ætlar að vinna mótið. HSBC-golfmótið í Shanghai: Breskir kylfing- ar í sérflokki Birgir Leifur Hafþórsson: Þarf að herða róðurinn
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.