Fréttablaðið - 12.11.2005, Qupperneq 96
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
9.950,-
LACK borð ýmsir litir
55x55x45 sm 1.490,-
TULLSTA hægindastóll
m/LUSSEBO áklæði 80x72x78 sm
Klæddu heimilið
í jólafötin
Opið til 20:00 virka daga | Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | www.IKEA.is
5002.V.B
s
met sy S
AE
KI
re tn I
©
AGERUM bókaskápur
90x177 sm 5.950,-
JULEN púði
40x40 sm 490,-
POLARVIDE teppi
130x170 sm 490,-
RAFFEL vasi
ýmsir litir 25 sm
49.900,-
KLIPPAN leðursófi 180x88x69 sm
NYTTJA mynd
50x70 sm 990,-
BENNO geisladiskastandur
hvítur 20x202 sm 3.450,-
JULEN jólastjarna
gerviblóm 490,-
MYLONIT lampi
ýmsir litir 12x31 sm
690,-
PÄLLBO skemill
39x39x38 sm 1.990,-
490,-
Sænskar kjötbollur
með kartöflum, týtuberjasultu
og rjómasósu (10 stk.)
390,-
BAKÞANKAR
GUÐMUNDAR
STEINGRÍMSSONAR
Um þessar mundir er engu líkara en morð sé framið á
Íslandi á degi hverjum. Illa leikin
lík finnast í skuggasundum, í yfir-
gefnum bílum, frosin í vatni, úti í
almenningsgarði eða hvar annars
staðar sem hugarburður rithöf-
undastéttarinnar kýs að setja þau
hverju sinni. Hersing rannsókn-
arlögreglumanna, blaðamanna og
annarra áhugasamra fæst síðan
við það á síðum jólabókanna að
leysa þessi fjölmörgu nýju og
sérdeilis æsispennandi íslensku
morðmál.
ÞAÐ er nefnilega það. Íslenskir
skriffinnar eru skyndilega komn-
ir með æði fyrir sakamálasögum.
Það er auðvitað bara fínt enda
getur verið ánægjulegt þegar
maður hefur ekkert að gera að
lesa góðar morðgátur. Blessun-
arlega eru margar þessar sögur
ljómandi fínar og meira að segja
er einn höfundurinn búinn að fá
verðlaun í útlöndum.
SÚ var hins vegar tíð að íslenskir
rithöfundar skrifuðu ekki saka-
málasögur nema undir dulnefni
og er Stella Blomkvist til dæmis
ennþá að bögglast með sitt. Einn
af fáum sem ekki skrifuðu undir
dulnefni var Leo E. Löve, sem
fékk vitaskuld bágt fyrir að vera
að eyða tíma sínum í slíka vitl-
eysu. Þá voru nefnilega allir að
skrifa raunsæissögur og gott ef
ekki töfraraunssæissögur. Saka-
málasögur voru fyrir vitleysinga.
Á Íslandi er nefnilega alltaf eitt-
hvað sem er nýjasta nýtt. Og þetta
gildir ekki bara um hárgreiðslu og
eldhúsinnréttingar heldur líka um
menningu og afþreyingu. Núna
eru sakamálasögurnar ráðandi
í bókmenntum, þótt Hallgrímur
og fleiri haldi sem betur fer sínu
striki, og í sjónvarpi er hinn svo-
kallaði raunveruleiki svo yfir-
gnæfandi, einhverra hluta vegna,
að maður bíður bara eftir því að
myndavélin verði komin inn á
eitthvað salernið í bænum og það
verði tekið upp þegar fólk rembist
á skálinni. Og að sjálfsögðu með
viðtali á eftir. „Hvernig fannst
þér?“ „Hvernig gekk?“ „Varstu að
missa vonina?“
SVONA hefur þetta alltaf verið.
Þegar Íslendingar skrifuðu Íslend-
ingasögur þá skrifuðu þeir bara
Íslendingasögur. Svo skrifuðu þeir
bara biskupasögur. Svo fóru allir
að kveða rímur. Og svo fóru allir
að skrifa eins og Halldór Laxness.
Og svo voru allir allt í einu ofsa-
fyndnir. Og svo voru allir á kafi
í vandamálum. Allir alkóhólistar.
Og núna eru allir að drepast.
ÞAÐ verður spennandi að sjá hvað
kemur næst. Nú eru það sakamál
og raunveruleiki. Verða það ljóð og
fréttaskýringaþættir á næsta ári.
Ævintýrabækur og gamanþættir?
Heimspekirit og spurningaþættir?
Þjóðfélagsádeilur og spjallþættir?
Gamansögur og heimildarþættir?
Ævisögur og íþróttaefni? Eða, og
þetta finnst mér best: Stjórnmála-
skýringarþættir og hryllingssög-
ur. Það fer vel saman.
Nýjasta nýtt