Fréttablaðið - 22.01.2006, Side 21

Fréttablaðið - 22.01.2006, Side 21
 22. janúar 2006 SUNNUDAGUR myndavélarinnar, en ekki uppi á sviði. Ég sagði eitt sinn að mér fyndist best ef enginn tæki eftir umgjörð og búningum myndarinn- ar, því þegar áhorfandi tekur ekki eftir þessum atriðum og leyfir myndinni að renna áreynslulaust og þægilega fyrir augum, er það merki um vel unnið verk. Þá trufl- ar ýkt umgjörð ekki söguþráðinn, þótt vissulega sé gaman að vera með krydd hér og þar. En þegar útkoman er pínu ósýnileg verður hún oftast sú besta. Hvort finnst þér meiri áskorun að fást við endursköpun fortíðar eða nútímann? Nútíminn er meiri áskorun því tímabilið stendur fólkinu nær. Það er sérstaklega gaman að glíma við einn anga nútímans án þess að verða tískulegur og ná þeim áhrif- um að ekki sjáist að myndin gerist akkúrat í dag, heldur allt eins fyrir nokkrum mánuðum eða einhverja mánuði fram í tímann. Maður þarf sífellt að staðsetja fólk í tíma og mengi, svo áhorfendur skilji persónuna betur. Skapa fötin manninn? Alls ekki, en þau setja hann í mengi. Dæmi er fjármálahverfið í Lundúnum þar sem allir eru eins klæddir og engu líkara en sölu- maður hafi komið og selt öllum sömu fötin. Þar klæðast allir því sama til að skera sig ekki úr og setja sig í viðurkennt mengi. Hins vegar má lýsa persónum með fata- vali og það meðal get ég notað og nýtt mér, því flestir lesa það sama úr klæðnaði fólks. Lendirðu í vandræðum með sjálfs- mynd leikara og átt í skoðana- skiptum við þá um þann klæðnað sem þú velur þeim að klæðast? Það er fáheyrt, en hefur kannski komið fyrir þrisvar á sautján árum. Ég neyði engan til að klæðast því sem hann hafnar, enda eðlilegt að fólk sé viðkvæmt fyrir sjálfu sér þegar það stendur frammi fyrir stórum áhorfendahóp. Leikarar eru mismunandi viðkvæmir fyrir sjálfum sér, en þeir frægustu hafa ekki áhyggjur af neinu og treysta manni til fullnustu. Hvað með nektaratriði? Eru þau flókin þegar kemur að fatnaði og fylgihlutum? Nei, nei, ekkert flókin, nema að því leyti að maður er með slopp- inn og hin ósýnilegu nærföt fyrir augum (hlæjandi). Þú sást um búningana í „A Little Trip to Heaven“. Hefur það opnað dyr að bíómyndum erlendis? Öll góð verk hefja mann upp og opna fleiri dyr. Ég hef síðan séð um búninga í bandarísku hroll- vekjunni „Last Winter“ sem enn er ófullgerð ytra og svo réði ég mig sem umsjónarmann búninga í mynd Clints Eastwood, „Flags of our fathers“, en þá þótti gott að hafa reynsluna úr „A Little Trip to Heaven“. Hvað verður um búningana þegar verkunum lýkur? Þeir lenda á hinum ýmsu söfnum og stundum fæ ég gefnar heilu bíómyndirnar sem ég get leitað fanga í aftur og notað á ný. Skrítnasti búningurinn til þessa? Ætli það sé ekki gamall félagi sem ég rakst á uppi á efstu slá í leik- húsinu um daginn og var búin að gleyma, en það var slidemynda- vesti sem ég hannaði fyrir löngu. LITTLE TRIP TO HEAVEN Forest Whitaker og Julia Stiles í hlutverkum sínum í kvikmynd Baltasar Kormáks. Helga sá um alla bún- inga myndarinnar.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.