Fréttablaðið - 22.01.2006, Side 26

Fréttablaðið - 22.01.2006, Side 26
[ ] Nýlega var gerður samningur um atvinnutengt nám fyrir grunnskólanema sem Mennta- svið, Umhverfissvið fyrir hönd Vinnuskólans og Þjónustu- og rekstrarsvið Reykjavíkur- borgar fyrir hönd þjónustu- miðstöðva í Reykjavík, gerðu með sér til eins árs. Atvinnutengt nám er fyrir nem- endur sem eiga við mikla náms- erfiðleika að stríða og þá sem kljást við námsleiða. Dofri Örn Guðlaugsson hefur verið verk- efnisstjóri atvinnutengds náms undanfarin tvö ár og segir hann markmið verkefnisins að gefa nemendum þekkingu á vinnu- markaði til viðbótar við hefðbund- ið skólanám. „Margir ungling- ar upplifa sína skólagöngu sem kvöð. Margir hafa gefist upp á námi annaðhvort vegna lesblindu eða annarra námsörðugleika, eða standa illa í námi vegna annarra ástæðna,“ segir Dofri. „Þessir nemendur eru oft með brotna sjálfsmynd en í þessari vinnu sýna þeir á sér nýjar hliðar og metnað og geta byggt upp sjálfsmyndina aftur.“ Þeir nemendur sem uppfylla ákveðin skilyrði fá tækifæri til að taka þátt í verkefninu. Viðkomandi unglingur þarf að sýna viðleitni og vilja til að standa sig áður en atvinnutengda námið hefst. „Við setjumst niður með unglingnum og áttum okkur á hans þörfum,“ segir Dofri. „Við spyrjum út í áhugasvið nemandans, komumst að styrkleikum hvers og eins og reynum að virkja þá styrkleika. Undantekningalaust fá nemend- urnir að vinna við það sem áhugi þeirra er mestur fyrir.“ Dofri segir viðbrögðin frá atvinnuveitendum hafa verið mjög góð. Nú eru um á fimmta hundrað fyrirtæki sem hafa tekið þátt í verkefninu síðastliðin fimm ár. Misjafnt er hversu mikið ungl- ingarnir vinna með náminu, ýmist einn eða tvo vinnudaga í viku, en haldið er í kjarnafögin í stunda- skránni og þau fög sem nemand- inn hefur skarað fram úr í og sýnt áhuga á. Meginmarkmið verkefnisins er búa nemendurna undir þátttöku í atvinnulífi að loknum grunn- skóla, vinna með umhverfislæsi nemenda, aðstoða nemendur við náms- og starfsval út frá eigin styrk og efla lífsleikni nemenda með áherslu á jákvæða sjálfs- mynd og sjálfsstyrkingu. „Helsti hvatinn fyrir þessa unglinga er að fá að starfa á því sviði sem þeir hafa áhuga á. Þar af leiðandi fá þeir meiri áhuga á að halda áfram í námi,“ segir Dofri. „Með þessu eru unglingarnir ger- endur í sínu námi. Í mörgum til- fellum er þetta eini hvatinn fyrir ákveðna einstaklinga að halda áfram á réttri braut þar sem þessi hópur telur að skólinn sé þeim til trafala.“ Verkefnið hófst sem tilrauna- verkefni í Vinnuskólanum árið 1994 og hefur það nýst vel þeim unglingum sem hafa staðið illa í skóla. Verkefnið fer inn á lang- flest svið atvinnulífsins og nýtist vonandi sem gott tækifæri fyrir unglinga til að fóta sig í lífinu. johannas@frettabladid.is Atvinnutengt nám fyrir unglinga Atvinnutengt nám er miðað fyrir unglinga sem standa illa í skóla. Markmiðið er að virkja unglinginn og búa hann undir þátttöku í atvinnu- lífi ásamt því að unnið er með umhverfislæsi nemendanna og sjálfsmynd þeirra er styrkt. Margir unglingar upplifa skólagöngu sína sem kvöð og finna fyrir miklu áhugaleysi gagnvart náminu. Atvinnutengdu námi er ætlað að vera hvati fyrir unglinga sem standa illa í skóla, til að halda áfram í námi á þeirri braut sem styrkur þeirra er mestur. Samkvæmt upplýsingum á heima- síðu Hagstofu Íslands, hagstofan. is, mældist atvinnuleysi 2,7% á síðasta ársfjórðungi síðasta árs. Það þýðir að 4.400 manns voru að meðaltali án atvinnu og í atvinnu- leit. Hjá körlum var atvinnuleysi 3,0% en hjá konum var það 2,2%. Fjöldi fólks á vinnumarkaði á síðasta ársfjórðungi síðasta árs var 165.900 en þá er bæði átt við þá sem voru starfandi og þá sem voru atvinnulausir og er það 81,7% atvinnuþátttaka. Atvinnuþátttaka karla var 85,5% en kvenna 77,9%. Af þeim 165.900 sem voru á vinnu- markaði voru 161.500 starfandi. Meðalfjöldi vinnustunda á viku á síðasta ársfjórðungi síðasta árs var 41,5 klukkustundir, 47,3 hjá körlum en 34,9 hjá konum. Atvinnuleysi 2,7% í lok síðasta árs Upplýsingar um atvinnuþátttöku og atvinnuleysi á síðasta árs- fjórðungi síðasta árs má finna á heimasíðu Hagstofu Íslands. Atvinnuþátttaka var 81,7% á síðasta árs- fjórðungi 2005. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Samkvæmt nýjum skatt- matsreglum fyrir árið 2006 á einkennisklæðnaður ekki að teljast starfsmönnum til tekna. Ríkisskattstjóri hefur fallist á að einkennisfatnaður ákveðinna stétta verði héðan í frá undan- þeginn skatti samkvæmt því sem kemur fram í frétt á vef BSRB. Áður var til dæmis einkennisfatn- aður lögregluþjóna og tollvarða metinn þeim til tekna. Í skatt- matsreglum fyrir árið 2006 segir meðal annars: „Eigi skal reikna launþega til tekna nauðsynleg- an öryggis- eða hlífðarfatnað við störf hans sem launagreiðandi afhendir honum til afnota þ.m.t. er sá öryggis- og hlífðarfatnaður sem launagreiðendum er skylt skv. lögum, stjórnvaldsfyrirmælum og kjarasamningum að afhenda laun- þegum án endurgjalds.“ Skatt- stjóri fékk ábendingar um þetta hagsmunamál frá BSRB sem hefur lagt mikla áherslu á að þessu væri breytt og fagnar því niðurstöðu málsins. Einkennisfatnaður undanþeginn skatti Einkennisfatnaður lögregluþjóna telst þeim ekki lengur til tekna. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI BSRB verður með námskeið fyrir trúnaðarmenn um miðjan febrúar. Námskeiðið miðar að því að fræða trúnaðarmenn um vinnumarkaðinn og laga- umhverfið. Fræðslunefnd BSRB ætlar að halda grunnnámskeið fyrir trún- aðarmenn fyrirtækja og stofnana. Meðal þess sem farið verður í á námskeiðinu er hlutverk trúnaðar- manns og lagaumhverfi. Rætt verður um réttindi og skyldur á vinnumarkaði og um gildi og hlut- verk verkalýðshreyfingarinnar. Erna Guðmundsdóttir lögfræðing- ur hjá BSRB mun fara yfir túlk- un kjarasamninga og Kristín Á. Ólafsdóttir leikari mun leiðbeina um tjáningu. Námskeiðið verður haldið í Munaðarnesi og verður háð þátt- töku. Námskeiðið mun standa yfir frá hádegi þann 14. febrúar og lýkur síðdegis þann 15. febrúar. Námskeið fyrir trúnaðarmenn Trúnaðarmenn gegna mikilvægu hlutverki í starfsmannamálum og geta reynst dýrmæt aðstoð fyrir starfsfólk sem þarf að leita réttar síns innan vinnustaðarins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Vel unnið starf styrkir sjálfsmyndina. Öllum líður betur ef þeir gera sitt besta í vinnunni frekar en að vinna hana með hangandi hendi. Starfsmenntun Starfsmenntaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu. Til úthlutunar eru 55 milljónir og rennur umsóknarfrestur út þann 28. febrúar. Að þessu sinni verður ekki lögð áhersla á tiltekin verkefni eða málaflokka. Þau verkefni sem koma til með að njóta forgangs verða að fela í sér frumkvæði og nýsköpun í starfs- menntun og vera líkleg til að efla viðkomandi starfsgrein eða atvinnusvæði. Nánari upplýsingar má sjá á www.smennt.is styrkir } 55 milljónir eru til úthlutunar til starfsmenntunar í atvinnulífinu. NORDIC PHOTO/ GETTY IMAGES

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.