Fréttablaðið - 22.01.2006, Síða 46
Þorsteinn Einarsson
byrjaði eftir áramót að
vinna sem stuðningsfull-
trúi í Engjaskóla. Honum
líst vel á starfið og segist
stefna að því í framtíð-
inni að gerast kennari.
Þorsteinn lauk stúdents-
prófi af náttúrufræðibraut
í Borgarholtsskóla fyrir
seinustu jól með prýðis ein-
kunnum. Hann ákvað eftir
það að taka að sér starf
stuðningsfulltrúa í Engja-
skóla í Grafarvogi. Að sögn
Þorsteins líkar honum alveg
ljómandi vel við starfið.
,,Það er gaman að geta látið
gott af sér leiða. Svo er svo
mikið af góðu fólki sem er
að vinna með mér,“ segir
Þorsteinn og brosir breitt.
Starf Þorsteins sem stuðn-
ingsfulltrúi felst í því að
fylgja og hjálpa ákveðnum
einstaklingum. ,,Þetta eru
yfirleitt einstaklingar sem
eiga í erfiðleikum með að
einbeita sér. Ég hef samt
aðallega verið í því að vera
aðstoðarkennari í bekk,
þar sem ég rölti á milli
og hjálpa öllum. Ég hef til
dæmis verið að vinna með
þriðja, fjórða, sjötta og sjö-
unda bekk og er yfirleitt
að hjálpa þeim sem eru að
rétta upp hönd og vantar
hjálp.“
Þorsteinn segir að hann
geti alveg hugsað sér að
starfa við kennslu í fram-
tíðinni. ,,Mig langaði til
þess að kynnast kennara-
starfinu betur þar sem mig
langar til þess að starfa á
þessum vettvangi í fram-
tíðinni,“ segir Þorsteinn og
bætir við að hann sé að viða
að sér reynslu til þess að
athuga hvort þetta sé í raun
og veru starf sem hann vilji
vinna við í framtíðinni.
,,Ég stefni á nám í íþrótta-
kennaraháskólanann næsta
haust enda er það draumur
að fá að vera íþróttakenn-
ari í Borgarholtsskóla, eins
og Bjarni Jóhannsson,“
segir Þorsteinn að lokum
og hlær.
Stefnir á íþrótta-
kennaranám
Þorsteinn Einarsson með krakkaskara sem hann þarf að hafa hemil á, dag
hvern. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Á vefsíðunni what-
peopleearn.parade.
com er hægt að giska á
árslaun fólks.
Í rannsókn sem unnin var á
vefsíðunni www.salary.com
kom í ljós að sum þeirra
starfa sem fólki þykir vera
flott, eru síður en svo hátt
launuð. Spurningin er því,
hvaða störf gefa mest af
sér. Á vefsíðunni what-
peopleearn.parade.com er
hægt að spila leik þar sem
maður giskar á árstekjur
ólíks fólks. Mynd af tveim-
ur manneskjum er stillt
upp hlið við hlið ásamt upp-
lýsingum og nafn, aldur og
starfstitil og er manni ætlað
að smella á þann sem maður
telur hafa hærri laun. Þar
á meðal er venjulegt og
óþekkt fólk, auk frægra
íþróttastjarna og kvik-
myndastjarna. Í hvert sinn
sem maður giskar rétt fær
maður 20 dollara stig, en 20
dollarar eru dregnir frá í
hvert sinn sem maður gisk-
ar rangt. Í hvert sinn sem
búið er að smella á mynd,
kemur upp tala sem sýnir
árslaun viðkomandi og þá
er hægt að sjá hvaða störf
gefa mest af sér.
Ekki er allt
sem sýnist
Á vefsíðunni er spurt um laun Angelinu Jolie.
ATVINNA
14 22. janúar 2006 SUNNUDAGUR