Fréttablaðið - 22.01.2006, Page 66
22. janúar 2006 SUNNUDAGUR34
baekur@frettabladid.is
HALLDÓR GUÐMUNDSSON
> SKRIFAR UM BÓKMENNTIR
Bókmenntir eiga það sameiginlegt með bröndurum að list þeirra felst ekki
endilega í atvikunum sem frá er sagt, heldur í sjónarhorninu. Atburðirnir geta
verið gamalkunnir, en sýnin kemur á óvart, einsog í ummælum ameríska ferða-
málafulltrúans: Ég vona að þessi uppákoma verði ekki til þess að þér komið
ekki aftur til Dallas, kæra frú Kennedy.
Gamansögur og góðbókmenntir eiga þetta reyndar sameiginlegt með
vísindum, einsog ráða má af þeirri gömlu sögu að Newton hafi uppgötvað
þyngdarlögmálið þegar hann fékk epli í hausinn. Bertolt Brecht sagði um Gali-
lei að snilld hans hafi verið í því fólgin að þar sem venjulegt fólk sá ljósakrónu
sveiflast, þar sá hann hreyfingar pendúls. Góðar bækur geta einmitt vakið með
lesendum sínum þennan hæfileika, að sjá eitthvað nýtt í hversdagslegum hlut-
um, þær ögra okkur, setja okkur úr skorðum.
„Vitur maður hefur sagt að næst því að missa móður sína sé fátt hollara
úngum börnum en missa föður sinn.“ Á þessum orðum hefst Brekkukotsannáll
og lesandinn hlaust að hugsa með sér, hvílíkt dómadagskjaftæði! En áhugi
hans var vakinn: Hvað kemur svo, hvert á þetta að leiða?
Sá leiði sem sest að mörgum þegar þeir hlusta á ræður stjórnmálamanna
eða lesa eftir þá greinar á rætur í því að þar er þessu öfugt farið. Margir stjórn-
málamenn vilja helst ekki koma á óvart, allavega ekki um of, vilja ekki ögra,
heldur umfram allt segja það sem þeir halda að kjósendur vilji heyra. En hjá
lesanda eða hlustanda vaknar frá fyrstu málsgrein þessi tilfinning: ég veit hvað
kemur næst, hvert þetta leiðir.
Í málvísindum er talað um redundance, það sem er umfram: Ef við erum
vel að okkur í einhverju tungumáli getum við til dæmis heyrt hvað einhver er
að segja, þótt við nemum ekki öll orðin, við pússlum því saman í huganum,
útfrá ósjálfráði þekkingu okkar á hljóðfræði og málkerfi. Þetta hafa allir prófað
sem hafa fengið símtal þar sem illa heyrist í þeim sem hringir, en við getum
samt ráðið í mál hans. En ef sá sem hringir er útlendingur, verðum við að hafa
okkur öll við og hlusta grannt eftir.
Það er mikið „umfram“ í hefðbundnum greinum stjórnmálamanna, mörg
orð sem við þurfum ekki til að vita erindið. Ef við þekkjum til dæmis grund-
vallarviðhorf viðkomandi stjórnmálamanns og sjáum orðin: jafnrétti - atvinnu-
tækifæri - leikskólapláss - láglaunastéttir, vitum við strax hvert hann eða hún
er að fara. Í raun mætti spara gríðarlegt pláss í dagblöðum með því að taka
einfaldlega út það sem er umfram í svona greinum, en láta lykilorðin standa.
Nema greinarhöfundar tækju upp þann sið bókmenntanna að koma lesendum
á óvart, allavega einstaka sinnum.
En auðvitað er bókmenntafólk líka oft þessu marki brennt, til dæmis í hinni
árvissu umræðu um jólabókaflóðið, ósanngirni þess, auglýsingamennsku,
markaðsbaráttu og hávaða þar sem mörg perlan týnist. Þetta er allt satt og
rétt, en umræðan um umræðuna leiðir sjaldnast neitt. Þá er betra að segja
erindi sitt og láta kyrrt liggja það sem allir vita.
Þó kemur fyrir að menn hugsa sig svo skemmtilega út í horn að það hlýtur
að hreyfa við lesandanum. Þannig var ágætur greinarhöfundur um daginn orð-
inn svo þungt haldinn af Nóbelsleiða, sem Steinn Steinarr kallaði svo, að hann
komst eiginlega að þeirri niðurstöðu að Nóbelsverðlaun Laxness hefðu held-
ur skaðað íslenskir bókmenntir fremur en hitt. Mætti þá ekki álykta sem svo
að Björk hafi bakað íslensku tónlistarlífi tjón, og Eiður Smári rústað íslenskri
knattspyrnu (við förum allavega stöðugt neðar í FIFA listanum)? Alltént verður
maður hugsi. Einsog við spurningunni: Burtséð frá þessu leiðindaatviki, kæra
frú Lincoln, hvernig fannst yður sýningin?
List hins óvænta
Skeifan 4
S. 588 1818
Um leið og S. fann hnífsblaðið smjúga inn
í bakið fór að söngla í höfði hans gamalt
viðkvæði af götunum: „Hvað þolirðu mikið
kalt stál, kunningi?“
Söguhetja mætir örlögum sínum í einni af smásögum Kristjáns Karlssonar,
„Komið til meginlandsins frá nokkrum úteyjum“, sem er að finna í heildarsafni
verka hans, Kvæðasafn og sögur 1976-2003, sem kom út í vetur.
Hið árlega jólabókaflóð er
að baki og hefur skilið eftir
ýmislegt til nytja í fjörunni.
Því fer þó fjarri að forleggj-
arar mæli götur þótt mesti
stórsjórinn sé genginn yfir.
„Ég held ég hafi meira að gera
núna en fyrir jólin,“ segir Kristján
Bjarki Jónasson, þróunarstjóri hjá
Eddu, þegar blaðamaður forvitn-
ast um hvort hvort hann hafi legið
með hendur í skauti fyrstu vikur
árs. „Ég er á endalausum fundum
frá morgni til kvölds. Edda snýst
ekki svo mikið um jólabókaflóð-
ið, um það bil 20 prósent af veltu
okkar verður til í jólabókaflóðinu.
Það er þó vissulega mikilvægt því
þá kemur út megnið af þeim titl-
um sem fjölmiðlum þykir vert að
hampa, það er skáldsögur og ævi-
sögur.“
Framundan er ný vertíð, það
er að segja vorútgáfan. Bækur
sem þykja heppilegar til gjafa eru
ofarlega á baugi, enda fer að stytt-
ast í fermingaveislurnar en auk
þess eiga bækur tengdar heilsu
góðu gengi að fagna á meðan ára-
mótaheitin eru enn í fersku minni
fyrstu mánuði ársins. Undanfarin
misseri hafa forlögin tekið upp
þann góða sið að gefa skáldsög-
ur út í kilju fljótlega eftir að þær
koma fyrst út og segir Kristján
búast megi við helstu titlunum
frá Eddu í apríl eða maí. „Ég er
annars mest að hugsa um ljós-
myndabækur, satt best að segja.
Kjörtími útgáfunnar á ljósmynda-
bókum er framundan og við erum
að gefa út bækur eftir Sigurgeir
Sigurjónsson, Pál Stefánsson og
Raxa þannig að það er margt að
gerast í þeim bransa.“
Hjá Bjarti taka menn hins vegar
lífinu með ró á meðan þeir leggja
línurnar fyrir árið, en næsta verk
á dagskrá er að dreifa nýjustu
afurð Neon-seríunnar. „Þetta er
bók sem heitir Níu nætur og er
eftir brasilískan höfund, Bern-
ardo Carvalho að nafni,“ segir
Jón Karl Helgason sem í félagi
við Snæbjörn Arngrímsson ann-
ast Bjart. „Við sendum hana til
áskrifenda fyrir áramót, en förum
núna á fullt að kynna hana.“ Hann
býst annars við að það verði lítið
á seyði í vorútgáfunni, þar sem
Bjartur hafi jú gefið út um 20
bækur frá september fram í okt-
óber, auk þess sem ritröðin Svarta
línan verður hvíld í ár „Við gefum
út fimm eða sex bækur í Neon-
seríunni í ár og þær eru allar í
pípunum, en annars höfum við öll
spjót úti til að viða að okkar efni
til að vinna fram í tímann.“
bergsteinn@frettabladid.is
Forlögin eftir flóðið
JÓN KARL HELGASON Bjartur gaf út 20 bækur á stuttum tíma rétt fyrir jól og fer sér hægt í
sakirnar á nýja árinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ GVA
KRISTJÁN B. JÓNASSON Jólabókaflóðið skapar um 20 prósent af veltu Eddu og framundan
er viðamikil vorútgáfa. FRÉTTABLAÐIÐ/ PJETUR
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
NFS ER Á VISIR.ISNFS ER Á VISIR.IS
NFS ER Á VISIR.IS
> Bók vikunnar
On beauty eftir Zadie Smith.
Þriðja og að
margra mati
besta bók eins
athyglisverð-
asta rithöfund-
ar Breta um
þessar mundir.
Frábærlega
vel skrifuð
saga um
fjölskyldur,
kynslóðir og
kynþætti þar
sem togstreita og pólitík kraumar
undir öllu saman.
Í byrjun október kemur út á bók
framhaldssaga um Pétur Pan, dreng-
inn sem vildi ekki fullorðnast, eftir
breska verðlaunahöfundin Geraldine
McCaughrean. Útgefandi er breska
háskólaforlagið Oxford University
Press.
Bókin heitir „Pétur Pan á skarlats-
klæðum“, en ekkert hefur ennþá
verið látið uppi um innihaldið. Þó
er lesendum lofað æsispennandi
ævintýri. Aðalpersónurnar verða
þær sömu og í fyrri bókinni, þau
Pétur Pan, Vanda, systkini hennar og
foreldrar, álfurinn Skellibjalla og hinn
grimmi Krókur kafteinn.
Þegar J.M. Barrie, höfundur Péturs
Pan, lést árið 1937 ánafnaði hann höfundarrétt-
inum til barnasjúkrahússins Great Ormond Street
í London. Sjúkrahúsið hefur haft drjúgar tekur af
þessari vinsælu bók áratugum saman, en rétturinn
til þeirra rennur út árið 2007.
Þess vegna greip sjúkrahúsið til
þess ráðs að láta skrifa framhald
sögunnar.
Geraldine McCaughrin hefur skrif-
að fjölmargar barnabækur og verið
verðlaunuð í bak og fyrir.
Hún segist hafa haft óskaplega
gaman af því að dveljast í Hvergi-
landi undanfarið ár. „Ég hreinlega
gleymdi því að vofa J.M. Barrie
gæti verið að lesa á tölvuskjáinn
yfir öxlina á mér, gleymdi að hafa
áhyggjur af því að fólki muni líka
við það sem ég skrifa. En það er
reyndar góðs viti. Þegar maður
hefur gaman af því að skrifa, þá
loðir oft eitthvað af ánægjunni við bókstafina og
festist á milli blaðsíðnanna.“
Höfundarréttargreiðslum af nýju bókinni verður
skipt á milli McCaughrean og sjúkrahússins.
Skrifaði framhald af Pétri Pan