Fréttablaðið - 22.01.2006, Side 71
SUNNUDAGUR 22. janúar 2006 39
Vináttulandsleikur:
ÍSLAND-FRAKKLAND 30-36 (15-17)
Mörk Íslands (skot): Guðjón Valur Sigurðsson
6/2 (6/2), Sigfús Sigurðsson 4 (5), Snorri Steinn
Guðjónsson 4/2 (5/2), Ólafur Stefánsson 4/2
(5/2), Einar Hólmgeirsson 4 (7), Arnór Atlason
2 (6), Þórir Ólafsson 2 (3), Róbert Gunnarsson 2
(4), Alexander Petersson 1 (3), Vignir Svavarsson
1 (2).
Varin skot: Hreiðar Guðmundsson 12, Birkir Ívar
Guðmundsson 6.
Hraðaupphlaup: 9 (Guðjón 2, Þórir 2, Snorri 2,
Einar, Sigfús, Vignir).
Fiskuð víti: 6 (Guðjón 2, Róbert 2, Þórir, Vignir)
Mörk Frakka: Daniel Narcisse 10, Luc Abalo 4,
Christophe Kempe 4, Olivier Girault 4, Guillaume
Gille 3, Joel Abati 3, Jerome Fernandez 2, Geoffrey
Krantz 2, Sebastien Bosquet 2, Didier Dinart 1,
Michael Guigou 1.
Varin skot: Yohann Ploquin 10, Thierry Omeyer 9.
DHL-deild kvenna:
HAUKAR-ÍBV 36-28
Mörk Hauka: Ramune Pekarskyte 10, Hanna Guð-
rún Stefánsdóttir 8/3, Inga Fríða Tryggvadóttir 7,
Guðbjörg Guðmannsdóttir 3, Martha Hermanns-
dóttir 3, Ragnhildur Guðmundsdóttir 3, Harpa
Melsted 1.
Varin skot: Kristina Matuzeviciute 17, Helga Torfa-
dóttir 3.
Mörk ÍBV: Ragna Karen Sigurðardóttir 8, Simona
Vintyla 7, Renata Horvath 4, Esther Óskarsdóttir 4,
Ingibjörg Jónsdóttir 3, Sæunn Magnúsdóttir 1.
Varin skot: Vigdís Sigurðardóttir 12.
FRAM-HK 28-23
Mörk Fram: Annette Köble 10, Hildur Knútsdóttir
5, Ásta Gunnarsdóttir 4, Sigurbjörg Jóhannsdóttir
3, Hildigunnur Einarsdóttir 2, Þóra Stefánsdóttir 1,
Elísa Viðarsdóttir 1, Sara Sigurðardóttir 1, Guðrún
Hálfdánardóttir 1.
Mörk HK: Tatjana Zukowska 12, Ausra Gecinne
2, Arna Pálsdóttir 2, Hjördís Rafnsdóttir 2, Brynja
Magnúsdóttir 1, Marta Björnsdóttir 1, Aukse Vysni-
auskaite 1.
Bikarkeppni KKÍ, karlar:
HAMAR/SELFOSS-GRINDAVÍK 74-97
Bikarkeppni KKÍ, konur:
ÍS-HAUKAR 63-62
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
HANDBOLTI Sigfús Sigurðsson var
að vonum ekki sáttur við leik
íslenska liðsins í gær. „Mér fannst
við spila ágætlega í 35 mínútur
en síðan einfaldlega skitum við
upp á bak, bæði í vörn og sókn.
Mér fannst þetta vera voðalega
skrítinn leikur. Við vorum að spila
frábæran handbolta hérna í fyrri
hálfleik en síðan slökum við á í
þeim seinni og þeir virðast hirða
öll fráköst og skora þannig oft
nokkuð ódýr mörk.“
Sigús sagði að það hefði verið
hálfgert slen yfir mönnum í síðari
hálfleik. „Það leit kannski þannig
út á tímabili að menn væru ein-
faldlega búnir að gefast upp en
samt sem áður voru menn að berj-
ast á fullu allan leikinn og fólk sá
það að við vorum ekkert að gefast
upp.“ - toh
Sigfús Sigurðsson:
Slen yfir liðinu
SIGFÚS SIGURÐSSON Segir leikinn hafa
verið kaflaskiptan. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
HANDBOLTI „Við erum með ein-
hverja átta til tíu tæknifeila í
hvorum hálfleik og það er mjög
slæmt. Það er mikið um send-
ingamistökum og þar af leiðandi
fá þeir ódýr hraðaupphlaup sem
er mjög slæmt. Vörnin okkar er
ekki að standa og við fengum á
okkur 36 mörk. Það er afar erfitt
að vinna slíka leiki,“sagði besti
maður Íslands, Guðjón Valur
Sigurðsson.
Aðspurður hvort liðið sé þreytt
segir Guðjón að sér finnist það
ekki vera. „Æfingarnar eru alls
ekki búnar að vera stífar upp á síð-
kastið og við eigum í raun að vera
mjög ferskir á þessum tímapunkti
að mínu mati. Mér sýnist við verð-
um að skrifa þennan leik sem einn
af þeim dögum þegar ekkert virð-
ist ganga upp, því miður.“
Guðjón Valur Sigurðsson:
Einn af þess-
um dögum
HANDBOLTI Það var mikil eftir-
vænting eftir leik Hauka og ÍBV
í DHL-deild kvenna í gær þar sem
um sannkallaðan toppslag var að
ræða. Þessi lið skipuðu efstu sæti
deildarinnar fyrir leikinn og ljóst
að bæði lið myndu selja sig dýrt.
Haukarnir byrjuðu mun betur
og komust í 5-0 á fyrstu sjö mín-
útum leiksins. ÍBV skoraði fyrsta
mark sitt eftir um tíu mínútna leik
og minnkaði muninn í 7-1. Þessi
munur hélst nokkurn veginn út
fyrri hálfleikinn og staðan var 17-
12 í leikhléi. Í seinni hálfleik hélst
munurinn í fimm til átta mörkum
og náði ÍBV aldrei að brúa það bil
sem myndaðist í byrjun leiksins,
þó að Ramune Pekarskyte, sem
fór á kostum í fyrri hálfleik, hafi
verið tekin úr umferð það sem
eftir var leiks. Sanngjarn sigur
Hauka því staðreynd. Með sigrin-
um komust Haukastelpur upp
fyrir ÍBV að stigum í deildinni og
eiga auk þess leik til góða.
Guðmundur Karlsson, þjálfari
Hauka, var að vonum kátur eftir
leikinn og var sérstaklega ánægð-
ur með sóknarleikinn. „Við hrein-
lega völtuðum yfir þær í byrjun
leiks og sýndum að við getum spil-
að frábæran sóknarleik. Reyndar
fannst mér við ekki leysa það eins
vel og oft áður þegar Ramune var
tekin úr umferð, en munurinn var
orðinn það mikill að þær náðu
okkur aldrei. Heildarsvipurinn á
liðinu var mjög góður og flestallir
leikmenn að standa sig vel Ég er
því mjög ánægður með úrslitin.“
Ramune Pekarskyte var algjör
yfirburðamaður í liði Hauka og
skoraði mörk í öllum regnbog-
ans litum auk þess sem Hanna
Stefánsdóttir og markvörðurinn
Kristina Matuzevicute stóðu sig
vel. Hjá ÍBV var það Ragna Karen
Sigurðardóttir sem stóð upp úr
auk markvarðarins Vigdísar
Sigurðardóttur. - toh
Haukar unnu öruggan sigur á ÍBV í DHL-deild kvenna í gær, 36-28:
Haukar styrkja stöðu sína
RAMUNE PEKARSKYTE Dró Haukavagninn í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON