Frjáls verslun - 01.02.1983, Page 51
Fyrsta árið verða greiðslur húseigandans sem hér segir:
Vextir af lánum Húsnæðisstyrkur til frádr. Skr. 56.290,- Skr. 30.155,-
Vaxtagreiðslur samtals Skr. 26.135,-
Afborganir Skr. 4.025,-
Vextir + afborganir Skr. 30.160,- (pr. mánuð Skr. 2.513.-)
Reiknað er með að rekstrarkostn- magn kosti um 10.800,- Skr. fyrsta
aður hússins. viðhald. hiti og raf- árið. Sé því bætt við verður mán-
aðarlegur húsnæðiskostnaður
3.415,- Skr.
Eins og áður sagði eru reglur
flóknar í Svíþjóð, húsnæðisstyrkur
er hlutfallslega mestur fyrstu árin
en minnkar síðan sem hlutfall af
vaxtabyrði. Þannig má gera ráð
fyrir að mánaðarlegur húsnæðis-
kostnaður eigandans verði nokkru
hærri fyrir 5. árið, eða 4.235,- Skr.
á mánuði.
Þetta þættu góð kjör á íslandi
Frjáls verzlun hefur aflað sér
upplýsinga um þau lán sem
bjóðast þeim sem kaupa
íbúðarhúsnæði í Danmörku.
Er þá átt við lán sem bjóðast í
bönkum, en bankar og ýmsir
lánasjóðir lána gegn veði í
húseign upp að 65% af fast-
eignamatinu. Auk þess eru í
boði ýmis lán með sjálfskuld-
arábyrgð þar sem ekki þarf að
setja veð til tryggingar
greiðslum.
Algengustu bankalánin eru til 20
ára. Privatbanken t.d. býður
þrenns konar lán gegn fasteigna-
veði, þ.e. þankinn kaupir veð-
skuldabréf á ákveðnu kauþgengi
sem er misjafnt eftir því hvaða
tegund láns er um að ræða.
í Danmörku eru vextir af fast-
eignalánum frádráttarbærir til
skatts eftir ákveðnum reglum en
algengast er að um 60% vaxta
komi til beinnar skattalækkunar.
Lán nr. 1 er til 20 ára með fastri
vaxtaprósentu sem er 16%. Kaup-
gengi skuldabréfsins væri í þessu
tilfelli 78.32%. Sé reiknað með al-
gengsta frádrætti vegna vaxta yrði
árleg afborgun nálægt 16.8%
(vextir 4- afborgun). Reglan er sú
að séu lán undir 100 þúsund
dönskum krónum er greitt af þeim
tvisvar á ári en fjórum sinnum séu
lánin hærri en 100 þúsund.
Lán nr. 2 er einnig til 20 ára en með
tvískiptri vaxtaprósentu. Láns-
tímabilið 1—12 ár eru vextirnir
16% en lækka í 10% fyrir lánstíma-
bilið 13—20 ár. Kaupgengi
skuldabréfsins í þessu tilfelli væri
um 79%. Ef áfram er reiknað með
algengasta frádrætti vegna vaxta
(miðast við fjölskyldu með meðal-
tekjur) yrðu afborganirnar sem
næmi 16.8% lánsfjárins á ári fyrir
fyrra tímabilið (1—12 ár) en ein-
ungis 13.7% fyrir síðara tímabilið.
Lán nr. 3 er til 20 ára en með þrí-
skiptri vaxtaprósentu. Lánstíma-
bilið 1—5 ár eru vextirnir 20%,
6—12 ára tímabilið eru vextirnir
16% og síðasta tímabilið, 13—20
ár eru vextirnir 10%. Kaupgengi
skuldabréfsins yrði nokkru hærra
en í hinum tilfellunum eða 91.22%.
í þessu tilfelli yrði greiðslubyrði
lántakanda á ári, þegar skattafrá-
dráttur er tekinn til greina, sem hér
Gæti aukið
Félagsmálaráðherra, Svavar
Gestssov tilkynnti, á Ráðstefnu
um atvinnuhorfur í byggingar-
iðnaði þann 26/3 sl., að ráðu-
neyti hans myndi brátt senda frá
sér auglýsingu um samning um
Samnorrænan vinnumarkað.
Þessi samningur á að taka gildi
þann 1. júní nk. Helgi Steinar
Karlsson formaður Múrarafé-
lags Reykjavíkur gagnrýndi
þennan samning á ráðstefnunni
og sagði að hann hefði ekki
verið sendur til hinna smærri
fagfélaga til umsagnar á sínum
tíma. Helgi gat þess einnig að
samningurinn hefði verið lítið
kynntur og fullyrti að án nánari
reglna um útfærslu samningsins
hérlendis yrði ekki komist hjá
alvarlegum árekstrum af völdum
segir: Fyrsta tímabilið, 1—5 ár,
20.46%, annað tímabilið, 6—12 ár,
17.12% og þriðja tímabilið, 13—20
ár, 13.96%. (Þessi tvö síðar töldu
lán kallast ,,Knæk-lán“ á dönsku).
Önnur gerð lána er einnig boðin
en það eru verðtryggð lán til 25 ára
með 272% vöxtum, en þessi lán
fylgja verðþólgustigi (verðþólga er
um 10% í Danmörku). Þessi lán, en
þau kallast á dönsku ,,lndexlán“
er unnt að fá að upphæð sem
nemur 80% af kaupverði húss eða
íbúðar.
í Danmörku eru flest almenn
húsbyggingarlán til 30 ára, ýmist
með föstum vöxtum eða s.k.
,,Knæk-lán“.
hans. Helgi benti á að full
ástæða væri til þess að ætla að
um mikinn innflutning á vinnu-
afli yrði að ræða vegna þessa
samnings og vegna sérstöðu ís-
lenska byggingariðnaðarins
gæti hann orðið til þess að auka
atvinnuleysi meðal byggingar-
manna. Helgi taldi að þessi
samningur myndi verða til þess
að byggingaraðilar drægju úr
skipulagi framkvæmda með það
fyrir augum að hrúga þeim sem
mest á hið stutta sumar í trausti
þess að innflutt vinnuafl fengist
til að manna verkefnin. Með
þessu móti gæti dregið verulega
úr verkefnum á öðrum árstíma
og yrði samningurinn þannig til
þess að lengja atvinnuleysis-
tímabil ísl byggingamanna.
atvinnuleysi
51