Fréttablaðið - 17.02.2006, Blaðsíða 27
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Svanni tískuvöruverslun rýmir
fyrir nýjum vörum og býður allar
útsöluvörur á tveir fyrir einn-
tilboði. Einnig er boðið upp á 40
prósenta afslátt af undirfötum,
náttfötum, heimasettum og
fylgihlutum, eins og slæðum,
treflum, töskum og skarti.
Brennivínið fellur vel að land-
anum yfir þorrann. Á heimasíðu
ÁTVR kemur fram að sala á
íslensku brennivíni árið 2005
var 5.300 lítrar. Á þorranum
seldist um 21 prósent af árssölu
brennivíns og má því segja að að
jafnaði sé sala brennivíns
á þorranum um
tvöfalt meiri en
aðra mánuði.
ÓB bensín er þekkt fyrir ódýrara
verð á annars dýrri vöru. Hægt
er að sækja um bensínkort á
heimasíðu ÓB, www.ob.is, sem
er fyrirframgreitt kort. Kortið
veitir þriggja króna afslátt af
hverjum dældum lítra og dregst
afslátturinn frá lágu bensínverði
sem jafnan er í boði hjá ÓB.
GÓÐAN DAG!
Í dag er föstudagurinn
17. febrúar, 48. dagur
ársins 2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 9.17 13.42 18.08
Akureyri 9.09 13.26 17.45
ALLT HITT
TILBOÐ, MATUR OG TÍSKA
SÓFAVEISLA
Í Húsgagnahöllinni eru
tilboð á öllum gerðum
af sófum. TILBOÐ 6
Ásgeir Sandholt bakara-
meistari er uppspretta vís-
dóms um kökugerðarlistina.
Þegar eftir því er leitað
er hann fús til að miðla af
honum til þeirra sem vilja
koma elskunni sinni veru-
lega á óvart með heima-
gerðri hnallþóru. Sjálfur er
hann þekktur fyrir að fram-
leiða ljúffengar kökur fyrir
konudaginn og alltaf með
nýju og nýju sniði á hverju
ári. Hann er einmitt að setja
konudagsköku ársins 2006
saman þegar Fréttablað-
ið ber að garði. „Við látum
hugann hvarfla til karabísku
eyjanna í ár og því er keim-
urinn af köku ársins mild
blanda af pinacolada, anan-
as, kókos, lime, hindberj-
um og ástaraldinum,“ segir
hann og munnvatnskirtlar
kvenkyns blaðamannsins
taka viðbragð bara við að
heyra upptalninguna.
Ásgeir býr kökuna til
úr hvítum botnum sem
hann segir hvern sem er
geta bakað eða keypt til-
búna. Sjálfur býr hann svo
til ástaraldinsmarens og
ástaraldinshlaup á svo dul-
arfullan hátt að það ekki
er á hvers manns færi.
Hvorttveggja setur hann
ofan á kökuna en segir þá
sem geri hana í heimahús-
um geta skreytt hana með
rjóma og ávöxtum að vild.
En þótt hann haldi vissum
leyndardómum fyrir sig þá
gefur hann okkur uppskrift
að hinni ljúffengu fyllingu
kökunnar sem er auðveld
við að eiga og birtist hún á
næstu opnu ásamt aðferð
við að setja kökuna saman.
gun@frettabladid.is
Ljúffeng kaka
á konudegi
Hinn séríslenski konudagur er á sunnudaginn og nú
eru góð ráð dýr fyrir eiginmenn og aðra herramenn.
Ásgeir nostrar við skreytinguna. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
HÁLSFESTAR
Stjörnurnar í Holly-
wood eru með stórar
og áberandi hálsfestar.
TÍSKA 8
MS HÓF NÝLEGA FRAMLEIÐSLU Á NÝJUM SKYR.IS DRYKK SEM ER
MEÐ BLÁBERJABRAGÐI ÁN VIÐBÆTTS SYKURS.
Skyr.is vörurnar hafa heldur betur slegið í gegn hjá íslensku
þjóðinni. Sérstaklega hafa skyr.is drykkirnir verið vinsælir og nú
hefur enn einn drykkurinn bæst í fjölskylduna. Að þessu sinni er
það skyr.is drykkur með bláberjabragði sem MS ákvað að setja á
markað. ,,Neytendur hafa verið að biðja um fjölbreyttari tegundir
auk þess sem við höfum verið að auka hlutfall skyr.is drykkja
sem eru án viðbætts
sykurs. Við erum að
koma til móts við
óskir neytenda um
minni sykur,“ segir
Einar Matthíasson,
framkvæmdastjóri
markaðs- og
þróunarsviðs MS.
Einar segir að fastlega
megi búast við fleiri
bragðtegundum í
framtíðinni þó að
hann vilji ekki lofa
nýrri bragðtegund á
þessu ári. Á meðan
geta neytendur hins
vegar smakkað á nýja
bláberjadrykknum
sem er án viðbætts
sykurs.
Nýr skyr.is drykkur