Fréttablaðið - 17.02.2006, Blaðsíða 12
17. febrúar 2006 FÖSTUDAGUR12
BÆJARMÁL „Við höfum orðið varir
við mikinn áhuga bæði félagasam-
taka og einstaklinga sem lýst hafa
áhuga á kaupum á eigninni og það
viljum við skoða,“ segir Gunnar I.
Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs.
Samþykkt hefur verið í bæjar-
stjórn að auglýsa Kópavogshæli til
sölu þrátt fyrir mótbárur minni-
hlutans. Er mat þeirra að eignin
sé menningarlegur arfur og bund-
in sögu bæjarins en Gunnar ítrek-
ar að ekki sé verið að selja eignina
heldur eingöngu kanna hversu
mikill áhugi sé fyrir kaupum og að
það verði haft að leiðarljósi hvaða
hlutverki eignin eigi að gegna hjá
áhugasömum kaupendum.
„Það er úr
vöndu að ráða
vegna þess að
gera þarf eign-
ina upp og það
kostar töluverða
fjármuni og
eignin er bænum
dýr. En ég ítreka
að ekkert verð-
ur aðhafst hvað
sölu varðar og
hún verður ekki seld nema að
vel athuguðu máli. Persónulega
treysti ég einkaaðilum nógu vel
til að fara með og reka slíkt mann-
virki eins og bænum.“
- aöe
GUNNAR BIRGISSON
Ákveðið að auglýsa Kópavogshæli til sölu:
Mikill áhugi á hælinu
Nú getur fjölskyldan flogið saman fyrir ódýrara
fargjald á manninn en nokkru sinni fyrr.
Tilvalið til að bregða sér af bæ, heimsækja afa og
ömmu eða gera eitthvað annað skemmtilegt.
Aðeins 1 króna
fyrir börnin!
1 kr. aðra leiðina
+ 739 kr.
(flugvallarskattur og tryggingargjald)
Þetta einstaka tilboðsfargjald
• gildir til allra áfangastaða
Flugfélags Íslands innanlands
• er fyrir börn 11 ára og yngri í fylgd
með fullorðnum og í sömu bókun
• gildir 17. febrúar – 17. mars
• býðst eingöngu þegar bókað er
á netinu – www.flugfelag.is
www.flugfelag.is | 570 3030
Í S
L E
N
S K
A
A
U
G
L Ý
S I
N
G
A S
T O
F A
N
E H
F .
/ S
I A
. I
S
- F
L U
2 9
7 9
8
1 0
/ 2
0 0
5
GENF, ÍRAK, AP Bandaríkjunum
ber að færa alla fanga í Guant-
anamo-fangabúðunum fyrir rétt
eða sleppa þeim ella, og ætti að
banna alla þá meðferð á föngum
sem flokkast sem pyntingar, segir
í skýrslu Mannréttindanefndar
Sameinuðu þjóðanna sem birt var
í gær. Ennfremur ætti Banda-
ríkjastjórn að láta loka fangabúð-
unum tafarlaust.
Fastafulltrúi Bandaríkjanna
hjá stofnunum SÞ í Genf svaraði
því til að nefndarmenn hefðu lítið
kannað þau gögn sem Bandaríkja-
stjórn lagði fram, og hefðu þar
að auki ekki heimsótt fangelsið.
Síðan rannsóknin hófst árið 2002,
fóru sérfræðingarnir ítrekað
fram á heimsókn og var loks boðið
í fyrra, en afþökkuðu þegar ljóst
varð að þeim yrði ekki heimilaður
aðgangur að föngunum.
Um 490 manns dúsa nú í fang-
elsinu í herstöð Bandaríkjahers
við Guantanamoflóa á Kúbu, þó
einungis um tugur þeirra hafi
verið formlega ákærður síðan
fangelsið var tekið í notkun árið
2001. Mennirnir eru grunaðir
um að vera liðsmenn al-Kaída-
hryðjuverkasamtakanna eða tali-
banastjórnarinnar fyrrverandi í
Afganistan. Bandaríska varnar-
málaráðuneytið hefur viðurkennt
misþyrmingar á föngum í fangels-
inu í 10 tilvikum.
Skýrslan var gerð opinber degi
eftir að SBS-sjónvarpsstöðin í
Ástralíu sýndi myndir sem sagð-
ar eru vera úr Abu Ghraib-fang-
elsinu sem Bandaríkjaher rekur í
Írak. Myndirnar eru sagðar vera
frá árinu 2003 og eru öllu hrotta-
fengnari en þær sem áður hafa
verið birtar úr því fangelsi og sem
urðu til þess að níu lágt settir her-
menn voru gerðir brottrækir úr
hernum eða fangelsaðir í allt að 10
ár fyrir illa meðferð á föngum.
Forsætisráðherra Íraks og
pakistanska ríkisstjórnin hafa
fordæmt myndirnar, en talsmenn
Bandaríkjastjórnar hafa sagt það
ábyrgðarlaust af hendi forráða-
manna sjónvarpsstöðvarinnar
að birta þær þegar meintum ger-
endum hefur þegar verið hegnt.
Jafnframt hafa þeir viðurkennt
að myndirnar hafi verið hluti af
sönnunargögnum í málsmeðferð
gegn nokkrum bandarískum her-
mönnum.
Stjórnendur sjónvarpsstöðv-
arinnar ásaka Bandaríkjastjórn
hins vegar um að hafa reynt að
hylma yfir hversu hrottafengin
meðferðin á föngunum var og
segja myndirnar nauðsynlegar
svo heimurinn átti sig á því sem
raunverulega gerðist í fangels-
inu. Jafnframt bæri bandarískum
yfirvöldum að opna málið á ný.
smk@frettabladid.is
Ber að loka
fangelsinu
Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna segir að
loka eigi tafarlaust fangabúðunum í Guantanamo
á Kúbu. Hart er nú deilt á Bandaríkjaher vegna
meintra pyntinga þar og í Abu Ghraib í Írak.
FANGI BANDARÍKJAHERS Fangi í fangelsinu við Guantanamoflóa á Kúbu í fylgd bandarískra
varða. Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna segir að loka beri fangelsinu þegar í stað
og að færa alla fanga þess fyrir dómstóla, ellegar sleppa þeim úr haldi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI