Fréttablaðið - 06.05.2006, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 06.05.2006, Blaðsíða 18
 6. maí 2006 LAUGARDAGUR ������������� �� ���� ��������� ��������� ����� ��� ���� � ��� ���� � ���� ���� �� ��������������������� ������������������������������������������������������������������������� ������������������������������� ��������������������������������������� ����������������������������� ��������� ����������������������������������� ������������������������������������������������������������������������� ������������������������������������������������������������������������ ����������������������������������������������������������������� ������������������� ������������������������������������������������������� ������������ ��������������� � ������������� ������� ���� ������ �������� Logi Geirsson varð á dögunum Evrópumeistari félagsliða með þýska liðinu Lemgo. Logi er lykil- maður í liðinu sem ýmist horna- maður eða skytta og er feikilega vinsæll með meðal áhangenda liðsins. Logi er uppalinn í FH og lék með öllum yngri flokkunum ásamt meistara- flokki áður en hann hélt í atvinnumennsku. Logi þykir mjög góður liðsfélagi og hikar ekki við að hrósa mönn- um þegar þeir gera eitthvað gott. Hann er sagður klókur handknattleiks- maður þrátt fyrir ungan aldur og góður í því sem hann tekur sér fyrir hendur enda ákaflega metnaðarfullur. Þá er hann bæði jákvæður og skemmtilegur náungi. Logi er Hafn- firðingur og handknattleikur- inn er honum í blóð borinn. Faðir hans er Geir Hallsteins- son, sem af mörg- um er talinn vera einn besti hand- knattleiksmaður Íslands, og afi Loga er Halls- teinn Hinriksson, sem er ósjaldan kallaður faðir handknattleiks- ins hérlendis. Logi byrjaði ungur að kasta bolta, aðeins fimm ára að aldri. Í fyrstu var það faðir hans sem kenndi honum undirstöðuatriðin í íþróttinni og fylgdi honum úr hlaði. Logi er næstyngstur fjögurra systkina og hefur jafnan komið vel saman við þau auk þess sem samband hans við foreldranna var alltaf gott. Prakkarinn var þó aldrei langt undan og Logi var grallarinn í norðurbænum. Íþróttir leika stórt hlutverk í lífi fjölskyldunnar en Logi lét áhuga sinn á þeim ekki bitna á náminu. Hann gekk í Engidals- skóla fram að unglingadeildinni en síðan í Víðistaðaskóla þaðan sem hann lauk grunnskólaprófi. Þeir sem til þekkja segja Loga skipulagðan, agaðan og reglusam- an. Hann ætlaði sér snemma að verða afreksmaður í íþróttum og segir sagan að Logi hafi verið tólf ára þegar hann ákvað að ganga til liðs við Lemgo. Þá hafði hann fylgst með miðjumanninum Dani- el Stephan og ákveðið að senda honum tölvupóst. Þegar leikmað- urinn svaraði honum ekki sagði Logi við systkini sín að hann skyldi fara til liðsins og slá þenn- an Stephan út úr lið- inu. Logi beitti mörg- um óhefðbundnum aðferðum við að ná þessu takmarki sínu. Hann æfði yfirleitt á kvöldin og á nóttunni en innan fjölskyld- unnar er sagan af einu aðfangadags- kvöldi sennilega hvað frægust. Eftir mat- inn ákvað Logi að fara og lyfta í æfinga- sal FH-inga í Kapla- krika enda mátti hann engan tíma missa. Skortur á sjálfs- trausti hefur aldrei háð Loga en mörgum kann að þykja hann montinn í fyrstu. Þegar fólk kemst í betri kynni við hann kemur þó annað á daginn. Logi er mik- ill vinur vina sinna og hefur stórt hjarta. Gestir hans til Þýska- lands fara til að mynda aldrei í heim- sókn til hans án þess að koma heim með fulla ferðatösku af hlutum til að gefa en sjálfur á Logi mjög erfitt með að þiggja. Logi hefur alltaf verið mikill snyrti- pinni og hárið hefur alltaf skipt hann miklu máli og tók hann sér því góðan tíma í að finna rétta rakarann í Þýska- landi. Logi er að sögn þeirra sem til þekkja svolítið sérvitur drengur sem vill öllum vel. Logi slær oft á létta strengi þótt ekki þyki öllum það skemmtilegt. Hann segir skemmtilegar sögur, þykir hálfklikkaður náungi sem hægt er að hafa gaman af en allir eru sammála um að Logi er umfram allt mikið gæðablóð. MAÐUR VIKUNNAR Sérviturt gæðablóð LOGI GEIRSSON HANDKNATTLEIKSMAÐUR Það er brostinn á flótti meðal blaðamanna Blaðsins enda munu þeir ósáttir við slakt gengi í lestr- arkönnunum. Þá mun stjarna blaðsins, Kolbrún Bergþórsdóttir, hugsa sig tvisvar um áður en hún mætir til vinnu á morgnana. Og Andrés ekkert ferlega hress held- ur. Þar á bæ segja menn þess ekki lengi að bíða að blaðið verði lagt niður. Hefur dagsetningin 15. ágúst verið nefnd í því samhengi. Ekkert af ofangreindu hef ég reyndar fengið staðfest en heyrt það flest. Nema þetta með 15. ágúst. Það las ég í Blaðinu í vik- unni að væri hugsanlegt dánar- dægur NFS. Og finnst þetta orðið ágætt. 67% áhorf Tilefni þessara skrifa Blaðsins er nýleg áhorfskönnun Gallup sem nú mældi áhorf NFS í fyrsta sinn. Í Blaðinu sagði að niðurstaðan væri fyrir neðan allar hellur fyrir frétta- stöðina. Á föstudag sagði Blaðið hana hraksmánarlega. Samt erum við á NFS mjög ánægð með þessa könnun. Það eru bara nokkrar vikur í að næsta skref í dreifingu stöðvarinnar verði tekið og með því verður öll dagskrá NFS opin öllum almenningi á suðvesturhorni landsins án afruglara. Með því munu 85% heimila á landinu ná útsendingu NFS. Hún bara birtist í sjónvarpinu, si svona. Könnunin sýndi að það munar sex prósentum á áhorfi fólks á aldrinum 12 til 80 ára á kvöldfrétt- ir NFS og RÚV. Þessi munur var 12 prósent í janúar. Hún sýndi enn fremur að aðeins 3 prósent skilja að áhorf fólks undir fimmtugu á kvöldfréttir NFS og RÚV. Könnun- in sýnir að 67% Íslendinga horfa á NFS í viku hverri. Hvernig getur það verið ósigur fyrir sjónvarps- stöð sem hefur verið starfrækt í hálft ár? Neitar að birta dagskrá NFS Blaðið var að vísu ekki eitt fjöl- miðla til að kynna niðurstöður Gallup með þessum hætti. Aðrir fjölmiðlar hafa ekki reiknað heildaráhorf á fréttir og frétta- tengda þætti NFS heldur einungis þá áhorfendur sem horfa á útsend- ingar á Stöð 2. Þeir reikna ekki með áhorfendum sem horfa á kvöldfréttir á rás NFS eða Sirkus. Kvöldfréttirnar eru sendar út á þremur sjónvarpsrásum samtím- is, frá sama myndverinu. Könnun Gallup sýnir svo ekki verður um villst að NFS er, þvert á fullyrð- ingu Blaðins, í stórsókn. Það er eitthvað mjög undar- legt í gangi á Blaðinu þegar NFS er annars vegar. Þar hefur því verið haldið blákalt fram að lykil- fólk væri á leiðinni frá stöðinni; að fólksflótti sé brostinn á á NFS. Samt hafa fleiri starfsmenn Blaðsins sótt um vinnu á NFS en „flúið“ hafa NFS. Blaðið rangtúlk- ar áhorfskannanir og neitar að birta dagskrá NFS. Slúðrar bara þegar kemur að NFS. Hverslags blað er það? Slúður af Blaðinu UMRÆÐAN NFS OG BLAÐIÐ RÓBERT MARSHALL FORSTÖÐUMAÐUR NFS Það er eitthvað mjög undarlegt í gangi á Blaðinu þegar NFS er annars vegar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.