Fréttablaðið - 06.05.2006, Blaðsíða 74
6. may 2006 SATURDAY42
Staða samkynhneigðra í hóp-íþróttum hefur talsvert verið í umræðunni í sænskum fjöl-
miðlum síðustu vikurnar. Upphaf-
ið má rekja til úrslitaviðureignar
Färjestad og Frölunda í sænsku
íshokkídeildinni. Stuðningsmenn
Frölunda kölluðu þá leikmanninn
Per Ledin kærasta Emils Kåberg,
samherja hans hjá Färjestad.
Leikmennirnir brugðust við með
því að láta birta heilsíðumynd af
sér í Aftonbladet, daginn eftir að
þeir unnu sænska meistaratitil-
inn. Á myndinni sjást þeir þaktir
gylltum lit og Ledin smellir kossi
á kinn Kåbergs sem heldur á stórri
kampavínsflösku. Á milli þeirra
er svo sjálfur bikarinn.
Myrtur vegna kynhneigðar
Myndin og köll stuðningsmanna
Frölunda hafa á ný vakið upp
umræðuna um stöðu samkyn-
hneigðra í hópíþróttum. Fyrir ell-
efu árum var íshokkíleikmaðurinn
Peter Karlsson stunginn til bana
eftir að hann kom út úr skápnum
og fyrir fjórum árum var hand-
boltadómarinn Peter Mattias Jans-
son barinn til óbóta en skömmu
áður hafði hann stofnað samtökin
Samkynhneigðir íþróttamenn.
Daginn eftir að Jansson var
misþyrmt birtist stuðningsyfir-
lýsing við hann og samtökin frá
öllum helstu íþróttamönnum Sví-
þjóðar í dagblöðum þar í landi. Í
kjölfarið töluðu forystumenn
hinna ýmsu íþróttahreyfinga um
að þeir myndu berjast með kjafti
og klóm gegn fordómum. Mörgum
finnst þó lítið hafa unnist á þeim
fjórum árum sem liðin eru.
Lítið aðhafst
„Mikið er rætt um að berjast gegn
fordómunum hjá íþróttahreyfing-
unni en enginn tekur þetta alvar-
lega,“ segir Sören Andersson, for-
maður RFSL samtakanna, sem
barist hafa fyrir því að má burt öll
tabú í kringum samkynhneigð.
„Að sjálfsögðu finnast samkyn-
hneigðir í íþróttum eins og annars
staðar. Við höfum rætt við for-
svarsmenn íþróttahreyfingarinn-
ar um hvaða ráðum þeir beiti til
að létta undir með samkynhneigð-
um en það er fátt um svör. Íþrótta-
hreyfingar fá opinbera styrki og
þess vegna hefðum við talið að
allir væru velkomnir. En því
miður er það ekki svo.“
Einangraður heimur
Magnus Hedman, fyrrverandi
atvinnumaður í knattspyrnu,
hellti sér af fullum krafti í umræð-
una fyrir skömmu. „Þú lifir ekki
af sem hommi í hópíþróttum,“
sagði Hedman í viðtali við sjón-
varpsstöðina TV4, þar sem hann
vinnur jafnframt sem fótbolta-
þulur. Hedman telur að íþrótta-
heimurinn sé einangraður og í
engu sambandi við raunveruleik-
ann. „Það er ekki til neitt sem
heitir umburðarlyndi í íþróttaklef-
anum og það er ógnvekjandi. Það
er fyrst núna, eftir að ég hætti,
sem ég átta mig á því hvað það er
lítill og einangraður heimur sem
íþróttamennirnir lifa í. Í sann-
leika sagt hef ég ekki enn náð að
jafna mig,“ sagði Hedman.
Barnalegur heimur
Hedman þekkir íþróttaheiminn
að eigin raun en hann var um tíma
atvinnumaður með Coventry á
Englandi og Celtic í Skotlandi.
„Þetta er svo ótrúlega barnalegur
heimur. Það eina sem má ræða
um í búningsherberginu eru bílar,
stelpur, bíómyndir og fótbolti.
Það er allt og sumt. Menn í
hópíþróttum eru ekki í neinu sam-
bandi við raunveruleikann.“
Hedman segir samkynhneigða
ekki þá einu sem þjást. „Við
eigum allir okkar leyndarmál en
það má ekki ræða þau. Það má í
raun ekki ræða um neitt annað en
það sem flokkast sem normið í
búningsklefanum.“
Hedman segir að ef hann hefði
verið samkynhneigður hefði hann
aldrei þorað að segja frá því í
búningsklefanum. „Að vita til
þess að það gæti verið notað gegn
manni seinna meir hefði orðið til
þess að ég hefði aldrei sagt frá
því.“
Hvar eru þeir samkynhneigðu?
Hedman segist aldrei hafa vitað
af samkynhneigðum manni í bún-
ingsklefanum. „Ef við miðum við
hvernig samfélagið er samsett þá
finnst mér þetta mjög ógnvekj-
andi staðreynd. Hvað varð um
alla samkynhneigðu mennina?
Hættu þeir allir í íþróttinni eða
þora þeir ekki að tala um hana?“
Hedman telur að það sé kom-
inn tími til að íþróttahreyfingin
opni nú augun og líti út fyrir hinn
einangraða heim. „Ef enginn
bregst við heldur þetta áfram á
sömu nótum. Fótboltamenn gera
bara eins og þeir hafa alltaf gert
– kynslóð eftir kynslóð. Heimur-
inn fyrir utan finnst ekki.“ ■
Hommar ekki velkomnir í hópíþróttum
KÆRUSTUPARIÐ Íshokkíleikmennirnir Per Ledin og Emil Kåberg brugðu á leik eftir að stuðningsmenn andstæðinganna kölluðu þá kærustupar. Mynd þessi birtist í Aftonbladet daginn eftir
að þeir unnu meistaratitilinn. Þeir eiga báðir unnustur. MYND/AFTONBLADID
ÉG ER EKKI HOMMI
Fredrik Ljungberg, sænski lands-
liðsmaðurinn í knattspyrnu og
leikmaður Arsenal, hefur oft verið
kallaður hommi af stuðnings-
mönnum annarra liða. Ástæð-
an? Ljungberg er mikið tískufrík
og þykir oft fara ótroðnar slóðir
þegar tískan er annars vegar.
Þar að auki er Ljungberg aðal
nærfatamódel Calvin Klein. „Ég
er ekki hommi en væri ég það
myndi ég alveg þora að segja
frá því. Ég á fjöldann allan af
vinum sem eru hommar,“ sagði
Ljungberg í viðtali við tímaritið
Attitude sem stílar inn á samkyn-
hneigða lesendur. Ljungberg var
fyrir skömmu valinn kynþokka-
fyllsti maður heims af lesendum
Attitude.
Fordómar eða jafnvel
hatur í garð samkyn-
hneigðra hefur lengi
verið viðloðandi hóp-
íþróttir. Heit umræða
hefur átt sér stað í
Svíþjóð um þessi mál.
Fyrrverandi atvinnu-
maður í fótbolta segir
heim íþróttanna vera
barnalegan og ekki í
takt við raunveruleik-
ann. Kristján Hjálmars-
son kynnti sér málið.
Það eina sem má ræða um í búningsherberginu eru
bílar, stelpur, bíómyndir og fótbolti. Það er allt og
sumt. Menn í hópíþróttum eru ekki í neinu sambandi
við raunveruleikann.
Réttu tækin í þrifin
Nilfisk-ALTO háþrýstidælur á tilboðsverði
Bjarnþór Þorláksson
bílstjóri RV
Tilboðið gildir út maí 2006
eða meðan birgðir endast.
R
V
62
06
A
Nilfisk-ALTO C 100
Þrýstingur: 100 bör
Vatnsmagn: 440 l/klst.
6.888 kr.
Nilfisk-ALTO E 140 X-TRA
Þrýstingur: 140 bör
Vatnsmagn: 500 l/klst.
26.888 kr.
Nilfisk-ALTO P 150 X-TRA
Þrýstingur: 150 bör
Vatnsmagn: 610 l/klst.
48.888 kr.
Vort
ilboð
RV
Nilfis
k-AL
TO h
áþrýs
tidæ
lur