Fréttablaðið - 06.05.2006, Síða 73

Fréttablaðið - 06.05.2006, Síða 73
KÚBUÆVINTÝRI TINNA ÞÓRUDÓTTIR ÞORVALDSDÓTTIR SKRIFAR FRÁ HAVANA Rússneska rullan Hér á heimilinu er fornfáleg rússnesk rulla sem á að heita þvottavél. Hennar helsta mark- mið í lífinu virðist ekki vera að þvo, heldur að flækja fötin manns rækilega saman og teygja þau vel í leiðinni. Hér á Kúbu er mögnuð búrókrasía. Kerfið hér virðist vera til þess hannað að gera mann geðveikan. Nú er ég nýverið búin að fá kúbönsku skil- ríkin mín aftur. Það tók mig ekki nema tvo mánuði að endurnýja þau í þetta skiptið. Fyrst er að fara með háskólapappírana og láta undirita þá hér og þar og síðan uppí útlendingastofnun þar sem maður bíður klukkutímum saman til að láta taka af sér fingrafar. Eftir mánaðarbið og engin svör er mér tilkynnt að það vanti passamynd. Það er mér hulin ráðgáta hvað þau gerðu við hinar þrjár sem ég lét þau hafa. Núna átti þetta hinsvegar ekki að taka nema örfáa daga, það eina sem þurfti að gera var að plasta kortið. Kemur þá ekki í ljós að plöstunarvélin var biluð! Eftir tæpa tvo mánuði var ég orðin svo örvæntingarfull að ég tók ráði kúbanskra vina minna og ákvað að reyna að múta konunni sem sér um málið. Ég æfði mig heima, verandi óreyndur íslenskur kjáni, en engu að síður klúðraði ég mál- unum. Hvenær hefur maður nokkurn tímann reynt að múta einhverjum? Þegar ég var komin inná skrifstofuna með romm- flöskuna í töskunni byrjaði ég á að roðna öll og svitna. Þvínæst tafsaði ég einsog bjáni hvort þetta væri nokkuð tilbúið og hrökklaðist síðan öfug út án þess svo mikið að taka flöskuna upp. Það eina jákvæða sem útúr þessu mútunarmáli kom var að ég gat þó drekkt skilríkjasorgum mínum það kvöldið með rommflöskunni góðu. Þegar ég fékk loksins skil- ríkin í hendurnar bjóst ég allteins við að þau yrðu útþvæld, blaut og teygð. Því á endanum virkar kerf- ið hérna einsog rússneska rullan, það gerir ekkert nema flækja málin og teygja lopann. RÚSSNESKA ÞVOTTAVÉLIN Hönnuð til að flækja saman fötum. LAUGARDAGUR 6. maí 2006 41 www.mpm.is Nýr og spennandi kostur fyrir þá sem hafa áhuga á mjög hagnýtu stjórnunarnámi. TVEGGJA ÁRA NÁM SAMHLIÐA STARFI MEÐAL NÁMSEFNIS Á 1. ÁRI • BA/BS/B.ed. eða sambærilegt. • Minnst þriggja ára reynsla úr atvinnulífinu. • Reynsla við verkefnavinnu æskileg. Þ Á T T T Ö K U S K I L Y R Ð I : Alþjóðleg vottun í verkefnastjórnun í umboði alþjóðasamtaka verkefnastjórnunarfélaga (IPMA). MEÐAL NÁMSEFNIS Á 2. ÁRI • Ferli og ferlisvæðing • Hópurinn og hópdýnamík • Stjórnandinn og skipulag • Fjármál verkefna • Fjölþjóðleg verkefni • Stefnumótun • Áætlanagerð • Leiðtoginn og sjálfið • Samningar og deilur • Upplýsingatækni UMSÓKNARFRESTUR Rennur út 15. maí götur borgarinnar. „Tíðin er orðin svo góð að það hefur vel verið hægt að vera á því í vetur.“ Ari segist alltaf hafa verið mikill bíla- kall, hann hafi verið að skellinaðr- ast sem unglingur og þegar vél- sleðinn bræddi úr sér í vetur hafi legið beint við að fara á hjólið. „Mótorhjól eru mjög spennandi fyrirbæri og fólk horfir mikið á þau í umferðinni. Ég held að innst inni langi alla í mótorhjól en ég held að margir setji samasem- merki á milli mótorhjóla og bíl- slysa og hræðist þau þar af leið- andi,“ segir Ari, sem býst við að fá sér kraftmeira hjól næsta sumar. Þegar hann er beðinn um að skýra út hvað sé eiginlega svona frábært við það að vera á hjóli stendur ekki á svari. „Að keyra um á hjól- inu veitir hugarró því hjólið er einn af fáum stöðum sem maður getur verið algjörlega einn með sjálfum sér en þeim stöðum fer stöðugt fækkandi. Það kemst eng- inn annar inn í hjálminn, þar er maður algjörlega einn með sjálf- um sér.“ ■ EINS OG FERRARI Arnar Snær keyrir um á Mv Agusta 1000 sem hann segir að sé kraftmesta 1000 kúbika götuhjólið á mark- aðnum í dag. Hann á þrjú önnur hjól og segist vera með algjöra mótorhjóladellu. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.