Fréttablaðið - 06.05.2006, Blaðsíða 52
Sennilega hefur það ekki farið
framhjá þeim sem átt hafa leið um
Holtagarðana að sumarvörurnar
eru komnar í IKEA. Mest ber þar
á sumarhúsgögnun, enda virð-
ist úrvalið af þeim fara vaxandi
með hverju árinu. Viðarhúsgögn
af öllum stærðum og gerðum eru
þar í broddi fylkingar. Mikið er til
af stólum, bekkjum, sólbekkjum og
borðum sem henta vel í garðinn eða
á svalirnar. Húsgögnin eru meðal
annars smíðuð úr akasíuviði, sem er
harður og endingargóður viður og
hentar mjög vel til notkunar utan-
húss. Auk húsgagnanna er heilmik-
ið af skemmtilegri smávöru eins og
flugnaspöðum, óróum, kertastjök-
um, luktum og fleiru. Sérstaklega
ber að minnast á hengirúmin sem
eru hluti af sumarvörunum í ár,
en þau eru framleidd í nokkrum
litum og ættu aldeilis að hressa
upp á garðinn, eða jafnvel leti-
herbergi heimilis-
ins.
Sumarið er komið
Sumarvörurnar eru komnar í IKEA og er þar mikið af
húsgögnum og ýmiss konar smávöru.
STORÖN-stóll úr elri.
Hægt er að stilla
bakið á fimm vegu
eftir þörf-
um. Verð kr.
9.900.
TULLERÖ-sett úr gegnheilum akasíuviði,
olíuborið. Verð 16.900 kr.
VÄSMAN-stóll sem er til
í fjórum litum og er eftir
hönnuðinn Niels
Gammelgaard,
1.990 kr.
ÄPPLARÖ-sólbeddi úr gegnheilum akasíuviði
á 9.900 kr, með BRÄMÖN á 2.490 kr. og GRENÖ,
keilulaga púða á 1.490 kr.
ÄPPLARÖ-borð úr
gegnheilum akas-
íuviði. Stækkan-
legt með tveimur
fellanlegum
plötum á hvorri
hlið. Sæti fyrir 4-10
við borðið. Verð 13.900 kr.
Hönnuðir: K. Hagberg/M.
Hagberg.
LAXÖN-
bekkur úr gegn-
heilli furu, 200x39
cm, á 8.990 kr.
Ólafur Egill Egilsson leikari hefur í
nógu að snúast þessa dagana. Hann
er að leika í Pétri Gaut í leikstjórn
Baltasars Kormáks í Þjóðleikshús-
inu, sem fengið hefur frábærar við-
tökur, og í Hundrað ára húsi eftir
Jón Atla Jónasson í leikstjórn Haf-
liða Arngrímssonar, sem sýnt er í
Nauthólsvíkinni. Svo æfir hann af
fullum krafti í Þjóðleikhúsinu fyrir
Fagnað eftir Harold Pinter í leik-
stjórn Stefáns Jónssonar.
Þegar mikið er að gera í vinn-
unni er nauðsynlegt að hafa gott
athvarf þar sem maður getur slakað
á. Heima hjá Ólafi eru nokkur slík
athvörf, þar sem leikarinn lætur
þreytuna líða úr sér og sækir inn-
blástur fyrir þau ólíku verkefni sem
hann tekur sér fyrir hendur.
Góð athvörf eru nauðsynleg
fyrir vinnuþjarka
Innlit hjá Ólafi Agli Egilssyni leikara
Þegar mikið er að gera er gott að eiga
góðan stól. Ólafi finnst þægilegt að halla
sér út af í Lazy Boy stól, sem hann fékk í
gjöf frá ömmu sinni Herdísi Þorvaldsdóttur
leikkonu. Gjöfina fékk hann með þeim
mögnuðu orðum að í stólnum myndi hann
hugsa upp og vítt og komast í tengsl við
himinhvolfin.
Ísskápurinn á heimilinu er í miklu uppá-
haldi hjá Ólafi, en hann leitar gjarnan í
hann á næturna. Ólafur segir að afi hans
hafi haft svipaðan hátt á og gjarnan
vaknað á nóttinni til að fá sér undanrennu,
matarkex og sykur. Ólafur segir þetta sýna
að næturbröltið gangi augljóslega í erfðir.
FRETTABLAÐIÐ/GVA