Fréttablaðið - 06.05.2006, Blaðsíða 72
6. maí 2006 LAUGARDAGUR40
�
��
��
���
�
��
��
��
��
��
��
�
�
�
��
��
��
���
�
�����������������������������������������������
Þ að er sama hvernig viðrar, svo lengi sem ekki er hált bregður Friðgeir Axfjörð,
tæknistjóri á RÚV, sér á bak á hjól-
inu sínu, Honda Shadow 1100. „Ég
er með hjólið á heilsárstryggingu
og er lítið fyrir að standa í ein-
hverri bónkeppni eins og sumir og
vil frekar nota hjólið eins mikið og
ég get,“ segir Friðgeir, sem segir
það afar hressandi að bruna frá
heimili sínu í Hafnarfirði og upp á
RÚV á morgnana. „Maður kemur
ferskur, frjór og stundum blautur
til vinnu.“ Friðgeir, sem er 47 ára,
fékk mótorhjóladelluna sem ungl-
ingur á Húsavík og man vel þá tíð
þegar menn voru í skíðagöllum á
hjólunum. „Fram á áttunda áratug-
inn var ekkert framboð af mótor-
hjólafatnaði á landinu enda var
manni alltaf skítkalt,“ segir Frið-
geir, sem hefur ekki átt mörg hjól
um dagana. Hans fyrsta hjól var
Kawasaki 350 en síðan þá hefur
hann átt um tíu hjól. „Hjólið er
vinur manns og það er kannski
þess vegna sem maður skiptir
sjaldan. Það má líka líkja hjólum
við konur, núverandi er alltaf
draumakonan,“ segir Friðgeir, sem
er sáttur við hinn kolsvarta og
krómaða fák sinn. Í sumar hyggur
hann á sína fyrstu hringferð í
kringum landið á hjólinu.
Að sögn Friðgeirs hefur ímynd
mótorhjólamanna verið að breyt-
ast á undanförnum árum og hún er
að verða mýkri og vingjarnlegri.
„Það er vegna þess að meira af
fullorðnu fólki er komið í sportið.
Þetta er fólk sem á allt, hús, jeppa
og fjölskyldu, en kaupir sér svo
mótorhjól til að bóna og keyra um
á sunnudögum þegar sólin skín.
Þetta eru náttúrlega ekki raun-
verulegir mótorhjólamenn en það
er þó betra að fá þá í sportið held-
ur en enga. Ég vil auðvitað bara
sjá sem flesta á mótorhjólum.“
Með alvöru mótorhjóladellu
Arnar Snær Rafnsson, bakari hjá
Café Konditori Copenhagen, hefur
verið með dellu fyrir öllu sem
lyktar af bensíni síðan hann var
smápolli. „Ætli ég hafi ekki fyrst
tekið í hjá bróður mínum þegar ég
var átta ára en þá bjó ég á Dalvík,“
segir Arnar Snær. Ekki minnkaði
mótorhjólaáhuginn við það að
flytja til Danmerkur en þar tók
hann mótorhjólaprófið átján ára
gamall. Hans fyrsta hjól var
enduro-hjól, Yamaha Dt 175, en í
dag keyrir hann um göturnar á Mv
Agusta 1000. „Þetta er ítölsk fram-
Vorboðinn hrjúfi
Þegar mótorhjólin vakna af vetrardvala og fara að sjást á götum borgarinn-
ar er það augljóst merki þess að sumar sé í nánd. Drunurnar þeirra eru eins
ómissandi og suðið í húsflugunni, kvakið í lóunni og lambakjötslykt úr grillun-
um. Snæfríður Ingadóttir ræddi við nokkra riddara götunnar sem taka hækk-
andi sól fagnandi á háværum fákum.
HRESSANDI RÚNTUR Friðgeir
kemur ferskur, frjór og stund-
um blautur til vinnu á RÚV en
hann keyrir hjólið sama hvernig
viðrar. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
GAMALL DRAUMUR ,,Ég held að innst inni langi alla í mótorhjól,“ segir Ari, sem gaf sjálfum sér mótorhjólaprófið í þrítugsafmælisgjöf. Hann
segir að ef bensínlítrinn fari upp í 150 kr. setjist hann glaður á hjólið, sem eyðir miklu minna en bíll. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
leiðsla og það eru einungis þrjú
hjól af þessarri tegund á landinu
en engin þeirra eru þó eins. Hjólið
er kraftmesta 1000 kúbika götu-
hjólið á markaðnum í dag en það
er einungs framleitt í 300 eintök-
um. Ef við líkjum þessu við bíl þá
er þetta eins og að keyra á Ferr-
ari,“ segir Arnar Snær, sem á
reyndar þrjú önnur hjól. „Já ég er
með alvöru dellu,“ viðurkennir
Arnar Snær, sem er 26 ára gamall.
Plön sumarsins fela ekki í sér
lengri ferðalög á fáknum enda
segir Arnar Snær að það sé alltaf
rigning og rok á Íslandi og ekki
spennandi veður til ferðalaga,
hann ætli hins vegar að einbeita
sér að mótorkrossinu í sumar.
Þegar Arnar bjó í Danmörku fór
hann hins vegar oft í lengri ferðir,
til dæmis niður til Þýskalands,
enda gaman að gefa í á þýskum
hraðbrautum. „Hér heima finnst
mér gaman að keyra Hvalfjörðinn.
Þar er lítil umferð og nóg af beygj-
um, hæðum og hólum.“
Þrítugsafmælisgjöf á tveimur
hjólum
„Ég verð þrítugur í sumar og gaf
mér mótorhjólaprófið í afmælis-
gjöf,“ segir Ari Steinarsson,
trommuleikari í hljómsveitinni
Kung Fu, sem lét gamlan draum
um mótorhjólapróf rætast fyrir
tæpu ári síðan. Konan hans bætti
um betur og gaf honum Yamaha
Virago 525 hjól í vetur og á því
hefur Ari undanfarið þeyst um