Fréttablaðið - 31.05.2006, Page 35
MARKAÐURINN 31. MAÍ 2006 MIÐVIKUDAGUR8
NÝJASTA TÆKNI OG VÍSINDI
Í dag eru liðin 122 ár síðan
bandaríski læknirinn John
Harvey Kellog fékk einkaleyfi
fyrir morgunkorn sitt, Granose.
Kellogg, sem fæddist 26. febrú-
ar árið 1852, fluttist átta ára
gamall með foreldrum sínum
til Battle Creek í Michigan-ríki
í Bandaríkjunum en þar setti
faðir hans á laggirnar verk-
smiðju sem framleiddi strák-
ústa. Skólaganga Kelloggs var
hefðbundin en hann útskrifaðist
með gráðu í læknisfræði árið
1875, þá 23 ára gamall.
Kellogg var aðventisti allt
sitt líf og skráði nafn sitt á
spjöld sögunnar þegar hann rak
hressingarhæli í Battle Creek
eftir hugmyndum aðventista.
Hugmyndirnar gengu út á neyslu
grænmetisfæðis í stað kjöts og
engrar neyslu á víni, tóbaki og
kaffi. Þá var reglubundin hreyf-
ing í hávegum höfð.
Kellogg giftist Ellu Ervillu
Eaton árið 1879. Þeim hjónum
varð engra barna auðið en ólu
þess í stað upp rúmlega fjöru-
tíu börn og ættleiddu sjö þeirra.
Ekki liggur fyrir hver ástæða
barnaleysisins var en Kellogg
var mjög í nöp við kynlíf af
hvaða tagi sem það nefndist og
skrifaði harðorðar bækur og
greinar um gildi þess að leggja
það á hilluna. Þá mælti hann
fyrir því að umskurður drengja
yrði tekinn upp án deyfingar.
Drengirnir myndu þannig leggja
sársauka og kynlíf að jöfnu og
myndi það forða þeim frá því að
stunda kynlíf það sem eftir væri
ævinnar, að mati Kelloggs.
Það var á hressingarhælinu
sem morgunkornið leit fyrst
dagsins ljós, að því virðist fyrir
mistök. John Kellogg hafði ásamt
bróður sínum Will Keith Kellogg
verið að sjóða hveitiflögur þegar
þeir þurftu skyndlega að sinna
aðkallandi málum á hressingar-
hælinu. Þegar þeir komu til baka
var hveitið orðið staðnað og að
því er virtist óhæft til neyslu. En
vegna fjárskorts gátu þeir ekki
hugsað sér að henda því. Þeir
brugðu því á það ráð að pressa
hveitið og rista. Þeim til mikill-
ar furðu brögðuðust flögurnar
ágætlega og báru þeir þær fyrir
sjúklinga sína.
Árið 1897 var nokkuð afdrifa-
ríkt í lífi Kellogg-bræðra en þá
stofnuðu þeir matvælafyrirtækið
Sanitas Food Company utan um
framleiðslu á kornflögum með
viðbættum sykri og vítamínum.
Þetta þótti umtalsverð bylting í
fæðuvali Bandaríkjamanna en
á þessum tíma skiptist morg-
unverður landsmanna í tvennt
eftir efnahag. Þeir ríku snæddu
egg og kjöt í morgunmat en þeir
efnaminni hafragraut og soðið
kornmeti. Bræðurnir deildu
hins vegar hart um hversu mik-
ill sykur ætti að vera á flög-
unum og varð úr að þeir slitu
samstarfinu. Will Keith stofnaði
fyrirtækið Battle Creek Toasted
Corn Flake Company, sem
myndar grunninn að Kellogg
Company og framleiðir morgun-
kornið víðfræga, sem í dag er
blandað saman við maískorn.
John Kellogg stofnaði hins vegar
matvælafyrirtækið Battle Creek
Food Company, sem einbeitti sér
að framleiðslu matvara úr soja-
afurðum. Skemmst er frá því að
segja að þeir bræðust ræddust
aldrei aftur við.
KORNFLÖGUR Bandaríski læknirinn John
Harvey Kellogg fann morgunkornið upp, að
því virðist fyrir mistök, fyrir 122 árum.
Steve Ballmer, forstjóri banda-
ríska hugbúnaðarrisans Micro-
soft, greindi frá því á blaðamanna-
fundi í Tókýó í Japan í síðustu
viku að svo gæti farið að útgáfa á
Windows Vista-stýrikerfinu fyrir
einkatölvur drægist enn frekar frá
áætluðum útgáfudegi. Stýrikerfið
átti upphaflega að koma út í haust.
Fyrir skömmu var útgáfunni
frestað fram í janúar á næsta ári
en nú eru líkur á að hún geti dreg-
ist um nokkrar vikur til viðbótar.
Meðal ástæðna fyrir þessu eru
endurbætur á stýrikerfinu sem
notendur beta-útgáfunnar kvört-
uðu yfir.
Að sögn alþjóðlega markaðs-
rannsóknarfyrirtækisins Gartners
mátti búast við þessu enda hafa
útgáfudagsetningar Microsoft
sjaldnast staðist.
Áætluð útgáfa á Windows Vista
fyrir fyrirtæki stendur hins vegar
enn og munu fyrirtæki sem hafa
hugbúnaðarleyfissamning við
Microsoft uppfært stýrikerfi sitt í
Windows Vista í nóvember á þessu
ári. - jab
STEVE BALLMER Framkvæmdastjóri
Microsoft segir að útgáfa á Windows
Vista fyrir einkatölvur geti dregist fram yfir
janúar. MYND/AFP
Útgáfa Windows
Vista gæti dregist
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
skrifar
Tim Berners-Lee, sem fann
upp HTTP-samskiptamátann og
nefndur hefur verið einn af feðr-
um netsins, lagði ríka áherslu á
það á ráðstefnu um framtíð nets-
ins í Edinborg í Skotlandi í síð-
ustu viku að engar hömlur yrðu
settar á það. Sérstaklega varaði
hann við því að netið yrði brotið
upp í einingar líkt og stjórnvöld í
Bandaríkjunum hafa lagt til.
Tillögur stjórnvalda vestra
eru viðbrögð við ákalli síma-
fyrirtækja um skiptingu nets-
ins í hluta. Kveða þær á um
að gagnaveitur og stofnanir fái
meiri möguleika á nýtingu nets-
ins umfram lítil fyrirtæki og
hinn almenna netverja. Á meðal
þess sem gagnaveiturnar myndu
fá umfram aðra eru meðal ann-
ars auknir auglýsingakostir.
Netverjar eru almennt mót-
fallnir þessum tillögum en þeir
segja að verði tillögurnar að
veruleika geti gagnaveiturnar
ráðið hvaða efni verði á netinu.
Þá segja þeir að háskólar og
góðgerðasamtök verði undir á
netinu enda hafi þau ekki úr
miklu að moða.
Tillögurnar eru mótsögn við
frelsið á netinu, líkt og lagt var
upp með á upphafsdögum þess,
að sögn Tim Berners-Lee. Hann
óttast að verði tillögurnar að
veruleika muni jafnræði á net-
inu verða úr sögunni og dökk-
ir dagar fyrir netverja ganga í
garð.
TIM BERNERS-LEE Einn af svokölluðum
feðrum netsins vill ekki að því verði skipt í
hluta og segir tillögur þess efnis geta ógnað
jafnræði netverja. MYND/AFP
Vill óbreytt net
Einn af svokölluðum feðrum netsins er
mótfallinn því að netinu verði skipt upp.
Bandaríski íþróttavöruframleið-
andinn Nike og tölvuframleið-
andinn Apple hafa tekið hönd-
um saman um að tæknivæða líf
skokkara.
Tæknivæðingin felst bæði í
nýjum skóm frá Nike og sendi-
tæki og móttakara frá Apple sem
tengist iPod Nano-spilaranum.
Munu skokkarar framtíðarinn-
ar sem nýta sér tækjabúnaðinn
framvegis geta hlustað á tónlist á
meðan þeir hlaupa, jafnframt því
að fylgjast bæði með því hversu
langt og lengi þeir hlaupa. Þá
geta skokkararnir enn fremur
séð á skjá spilarans hversu mörg-
um hitaeiningum þeir brenna á
sprettinum auk þess sem hægt
er að hlusta á upplýsingarnar í
heyrnartólunum. Þegar skokkar-
inn er kominn á leiðarenda getur
hann sett upplýsingarnar á vefs-
væði sitt hjá Nike.
Fyrirtækið hefur áður reynt
að tengja saman skokkara og
tækni í samvinnu við hollenska
tæknifyrirtækið Phillips. Sú til-
raun fór út um þúfur en tilraun-
in vakti hins vegar athygli for-
svarsmanna Apple, sem leituðu
til Nike með enn betri lausnir.
Fyrsti skórinn í nýrri fatalínu
Nike kallast Nike‘s Air+Zoom
More og kemur á markað innan
tveggja mánaða.
Senditækið og móttakarinn
kosta um 29 dali út úr búð í
Bandaríkjunum en skórnir slétta
100 dali. Með virðisaukaskatti og
gjöldum má gera ráð fyrir að
saman muni tækin og skórnir
kosta rúmar 18.000 krónur hér á
landi. - jab
SKÓR FRÁ NIKE OG IPOD Lítið sendi-
tæki verður í nýju hlaupaskónum frá Nike
og sendir það upplýsingar um sprettinn í
iPod-spilarann. MYND/AP
Nike og Apple taka sprettinn
Forsvarsmenn bandaríska tölvu-
fyrirtækisins Dell greindu frá
því á fimmtudag í síðustu
viku að tölvur fyrirtækis-
ins yrðu framvegis seldar
einstaklingum og litlum
fyrirtækjum með hugbún-
aði frá bandaríska fyrirtæk-
inu Google.
Á meðal þess sem verður í
tölvum frá Dell er tólastika með
leitarforritinu Google Desktop,
sem gerir tölvunotendum kleift
að leita að skjölum og gögnum
í tölvum sínum með svipuðum
hætti og netverjar geta leit-
að upplýsinga með leit-
arforriti Google. Þá er
sömuleiðis hægt að nýta
tólastikuna til að fylgjast
með veðurspám og sjá þegar
ný tölvuskeyti koma í pósthólfið.
Gengi bréfa í bæði Dell og
Google hækkuðu í kjölfar til-
kynningar um samvinnu fyrir-
tækjanna. - jab
Google-tól hjá Dell
S Ö G U H O R N I Ð
Kellogg fær
einkaleyfi fyrir
morgunkorn
Dagur án tóbaks - 31. maí!
Viltu aðstoð við að hætta að reykja?
Reyksíminn býður upp á faglega aðstoð
við að hætta að reykja eða nota tóbak.
Láttu drauminn rætast
og losnaðu úr klóm tóbaksins.
Það er rétt að þetta er að mjög miklu leyti spurning um hugarfar. Mikilvægt er að þú gerir
þér grein fyrir því. Þú verður að byggja upp það hugarfar með sjálfum / sjálfri þér að þér
muni takast þetta. Stappaðu í þig stálinu og segðu við sjálfan þig: Ég veit að ég get þetta!
Mér mun takast þetta! Þú skalt líka þiggja allan þann stuðning sem þér býðst.
Í tilefni dagsins höfum við opið frá kl. 10 - 22.
Ertu tilbúinn að hefja nýtt líf án tóbaks?
Bendum einnig á heimasíðu okkar www.8006030.is