Fréttablaðið - 31.05.2006, Blaðsíða 37
MARKAÐURINN 31. MAÍ 2006 MIÐVIKUDAGUR10
F R É T T A S K Ý R I N G
Enron-hneykslið er það sem vakið hefur mesta
athygli í runu hneykslismála sem riðið hafa
yfir bandarískt viðskiptalíf á liðnum árum.
Teflt var um hærri fjárhæðir í WorldCom-
málinu þar sem Bernhard Ebbers, sem var
forstjóri fjarskiptarisans, var dæmdur til
25 ára fangelsisvistar. Þá vakti sakfelling
sjónvarpsstjörnunnar Mörthu Stewart fyrir
innherjasvik gríðarlega athygli.
Enron-málið þykir hins vegar táknrænt
fyrir átakalínur í bandarísku þjóðlífi; breikk-
andi bil milli hinna ríku og voldugu og þeirra
sem vart eiga fyrir salti í grautinn. Lay og
Skilling falla í fyrrnefnda hópinn og voru af
mörgum taldir ósnertanlegir.
Lay gegndi starfi forstjóra Enron frá 1985
til 2001 og voru auðæfi hans metin á tæpa
þrjátíu milljarða króna. Hann var golffélagi
George Bush eldri og kom til álita sem orku-
málaráðherra í fyrstu ríkisstjórn þess yngri.
Bush forseti hefur síðan snúið baki við Lay
og kallar hann „fyrrum vin sinn“.
Skilling var talinn maðurinn á bak við vel-
gengni Enron. Hann hóf störf hjá fyrirtækinu
árið 1990 og tók við starfi forstjóra af Lay
árið 2001. Skilling varð hins vegar ekki lang-
lífur í því starfi, hætti eftir einungis sex mán-
uði. Skilling seldi hlutabréf í Enron fyrir 1,6
milljarða skömmu fyrir hrun fyrirtækisins.
ÞÉTTOFINN BLEKKINGARVEFUR
Höfuðstöðvar Enron voru í Texas og var
fyrirtækið á sínum tíma það sjöunda stærsta
í Bandaríkjunum, metið á 5.110 milljarða
króna. Enron var margverðlaunað fyrir
framsækni og góðan árangur. Lay og Skilling
var hampað sem viðskiptasnillingum sem
ávallt virtust finna nýjar leiðir til að ávaxta
fé hluthafa. Í fjármálahverfinu Wall Street í
New York var litið á Enron sem fyrirmynd-
arfyrirtæki.
Flestir hluthafa í Enron voru lágt settir
starfsmenn fyrirtækisins; verkamenn sem
unnu í rafveitum, vatnsvirkjunum eða við
gasvinnslu. Starfsmönnum voru greidd góð
laun og kaupréttur á hlutabréfum í fyrir-
tækinu gerði mörgum kleift að efnast vel á
skömmum tíma.
Hvergi var að sjá vísbendingar um að
Enron ætti í vandræðum. Á ársreikningum
félagsins fyrir árið 2000 var hagnaður sagð-
ur tæpir 26 milljarðar króna og skuldir 730
milljarðar. Þessi 26 milljarða hagnaður var
hins vegar hvergi til nema í bókum félagsins
og raunverulegar skuldir rúmir tvö þúsund
milljarðar íslenskra króna.
Með bókhaldsbrellum tókst forsvars-
mönnum Enron að fela raunverulega stöðu
fyrirtækisins. Margvíslegum hliðarverk-
efnum, þar sem taprekstur var gríðarlegur,
voru gefin undarleg nöfn á borð við Jedi og
Chewco og aðskilin rekstri Enron. Hagnaður
fyrirtækisins virtist sífellt aukast og vel-
gengnin engan endi ætla að taka, þótt bak við
tjöldin hrikti í stoðum.
Svo flókinn vefur hafði verið spunninn að
fjármálastjóri Enron, Andrew Fastow, gat
dregið sér rúma þrjá milljarða króna úr
sjóðum fyrirtækisins án þess að nokkurn
grunaði.
Það var fyrst þegar Skilling sagði for-
stjórastarfinu lausu, að því er virtist fyr-
irvaralaust, og seldi í kjölfarið hlutabréf
sín að athygli yfirvalda beindist að Enron.
Lögreglan komst fljótlega á snoðir um verkn-
að Fastows, sem síðan var rekinn frá fyrir-
tækinu.
Fjandinn var laus. Fjárfestar misstu alla
trú á Enron og hlutabréf í fyrirtækinu hríð-
féllu. Forsvarsmenn Enron sóttu um greiðslu-
stöðvun. 21 þúsund starfsmenn fyrirtækisins
misstu vinnuna, lífeyrisréttindi og lífsviður-
væri og urðu að öreigum á augnabliki. Svo
fór að lokum að Enron var lýst gjaldþrota.
MINNISMIÐINN RÉÐI ÚRSLITUM
Lay og Skilling eru þó ekki þeir einu sem þurft
hafa að sæta ábyrgð vegna Enron-hneykslis-
ins. Fjölmargir lægra settir starfsmenn hafa
verið ákærðir. Átta þeirra játuðu brot sín
og samþykktu að vitna gegn Lay og Skilling
gegn vægari dómi. Meðal þeirra er sjálfur
fjármálastjórinn, Andrew Fastow, sem var
eitt höfuðvitna ákæruvaldsins. Fastow hlýt-
ur í staðinn tíu ára fangelsisdóm. Einungis
einn fyrrum starfsmanna Enron hefur hafið
afplánun; Ben Glisan gjaldkeri.
Endurskoðunarfyrirtækið sem annaðist
reikninga Enron, Arthur Andersen, leystist
upp í kjölfar hneykslisins. Ekki þótti sann-
að að starfsmenn fyrirtækisins hefðu haft
rangt við. Hins vegar var fyrirtækið rúið
trausti. Viðskiptavinir tóku til fótanna og erf-
itt reyndist að lokka nýja að í staðinn.
Orðspor manna sem tengdust Enron á
einn eða annan hátt hefur orðið fyrir óbæt-
anlegum skaða. Fyrrum orkumálaráðherra
breska Íhaldsflokksins og stjórnarmaður í
Enron, Wakeham lávarður, hætti afskiptum
af stjórnmálum í kjölfar hneykslisins og á
vart afturkvæmt.
Jeffrey Skilling var fundinn sekur í nítján
af 28 ákæruatriðum og gæti átt yfir höfði sér
allt að 185 ára fangelsisdóm. Kenneth Lay var
fundinn sekur af öllum ákærum og gæti verið
dæmdur til 45 ára fangelsisvistar. Líklegt
þykir að hvor um sig þurfi að sitja
inni í tuttugu til þrjátíu ár.
Lítið var um sönnunargögn sem
bendluðu Skilling eða Lay beint við
málið.
Framburður millistjórnandans
Sherron Watkins réði að lokum úrslit-
um, en hún kvaðst hafa sent Lay
minnismiða þar sem honum var gerð
grein fyrir raunverulegu ástandi
fyrirtækisins. Lay hafi þá sett af
stað innanhússrannsókn á fjármál-
um fyrirtækisins til málamynda en
ekkert aðhafst. Þannig þótti sannað
að bæði Lay og Skilling hefðu verið
grandsamir.
Báðir sögðust þeir félagar saklaus-
ir af öllum ákærum. Enron hefði ein-
ungis hrunið vegna óðagots fjárfesta.
Lay tók þó sakfellingunni öllu betur
en Skilling, enda sannkristinn sonur
predikara frá Texas. „Ég er saklaus
af öllum ákærum. Þeir sem elska guð
þurfa ekki að kvíða örlögum sínum.
Ég þarf einungis að svara fyrir guði.“
Enron-hneykslið hefur þó líklega
hvergi haft meiri áhrif en á banda-
ríska viðskiptalöggjöf. Reglur um
endurskoðun hafa verið hertar og
ábyrgð stjórnenda um leið. Afleiðingin
er sú að kostnaður við skráningu á
hlutabréfamarkaði í Bandaríkjunum
hefur aukist gríðarlega og er nú vart
á færi smærri fyrirtækja. Margir
hafa enda lýst áhyggjum af því að
fyrirtæki gefist brátt upp á reglugerðar-
farganinu og flýi annað; til Lundúna eða
jafnvel Reykjavíkur, eins og sýndi sig á dög-
unum þegar bandaríska líftæknifyrirtækið
Cyntellect varð fyrst félaga til að skrá sig á
hinn nýja iSEC-markað Kauphallar Íslands.
Heimildir; The Guardian,
The Independent, www.bbc.com
Stórveldið sem byggt var á sandi
Kenneth Lay og Jeffrey Skilling, æðstu stjórnendur hins fallna bandaríska orkurisa Enron, hafa verið
fundnir sekir um margvísleg brot gegn bandarískri fyrirtækjalöggjöf. Dómur yfir félögunum verður
kveðinn upp hinn 11. september næstkomandi. Þangað til ganga þeir lausir gegn 365 milljóna króna
tryggingu. Jón Skaftason skrifar um fall óskabarnanna sem spiluðu golf við Bandaríkjaforseta.
BAK VIÐ LÁS OG SLÁ Jeffrey Skilling er heldur niður-
lútur bak við rimlana. Hann gæti átt von á allt að 185 ára
fangelsisdómi fyrir þátt sinn í Enron-svikamyllunni.
Í HANDJÁRNUM Kenneth Lay stofnaði Enron árið 1985 og
gegndi lengi starfi forstjóra fyrirtækisins. Lay var af mörgum
talinn ósnertanlegur. Hann var góður vinur Bush yngri
Bandaríkjaforseta og spilaði golf með þeim eldri.
KÓNGUR Í RÍKI SÍNU Jeffrey Skilling fyrir framan höfuðstöðvar
Enron í Houston. Skilling var af flestum talinn maðurinn á bak við
velgengni Enron. Síðar kom í ljós að sú velgengni var byggð á sandi.
Skilling seldi hlutabréf fyrir 1,6 milljarða króna skömmu fyrir hrun
fyrirtækisins.
Á ársreikning-
um félagsins
fyrir árið 2000
var hagnaður
sagður tæpir
26 milljarð-
ar króna og
skuldir 730
milljarðar.
Þessi 26 millj-
arða hagnaður
var hins vegar
hvergi til
nema í bókum
félagsins og
raunverulegar
skuldir rúmir
tvö þúsund
milljarðar
íslenskra
króna.