Fréttablaðið - 31.05.2006, Page 51
5,07% 1.337 3,7hlutur í French Connection sem FL Group hefur keypt. milljóna króna tap HB Granda á fyrsta ársfjórðungi. milljarða króna kaupverð sænska verð-bréfafyrirtækisins Fischer Partners sem Glitnir keypti.
SÍMANÚMER MARKAÐARINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@markadurinn.is Veffang: visir.is
B A N K A H Ó L F I Ð
Nafngiftir eignarhaldsfélaga
kalla oft á lestur í merkingu
nafnanna og af því eru svo dregn-
ar ályktanir. Björgólfsfeðgar
stofnuðu eitt slíkt og nefndu það
Óperu. Þegar tilkynning kom um
kaup félagsins á hlut í Gretti, þá
voru menn á því að enginn stofn-
aði óperu nema til að syngja. Í
ljós kom svo að kaupin í Gretti
voru hluti af stærri fléttu þeirra
feðga til að taka af tvímæli um
tökin sem þeir ætla að hafa á
Straumi Burðarási. Þessar hreyf-
ingar vekja litla kátínu í her-
búðum Magnúsar Kristinssonar,
en grunnt er á því góða milli
hans og feðganna í hluthafahópi
Straums. Fram undan eru því
sennilega frekari hræringar
í hluthafahópnum og ekki séð
fyrir endann á togstreitunni.
Eins og sagt var til útskýringar
í annarri óperu: „It ain‘t over till
the fat lady sings.“
Söngur feitu
konunnar
Í málarabransanum forðast
menn helgidagana og þeir þykja
til marks um slaka frammistöðu
í greininni. Allar stéttir þurfa
að glíma við sína „helgidaga“ og
blaðamenn ekki síður en aðrir.
Þannig féll mbl.is í smá pytt á
mánudaginn. Þar var um tíma
uppi frétt þar sem greint var frá
hækkun bandarískra hlutabréfa
og hækkunin höfð til marks, að
mati sérfræðinga, um hugsan-
legan aukinn styrk eftir óróa
undanfarinna vikna. Vandinn var
bara sá að markaðir voru lokaðir
á mánudag og því var fréttin
væntanlega um það sem gerðist
á föstudaginn. Í Bandaríkjunum
heiðruðu menn minningu fall-
inna hermanna á mánudag
og almennur frídagur var í
Bretlandi. Mistökin uppgötvuð-
ust greinilega, því að morgni sást
hvorki tangur né tetur af þessari
frétt. Þetta er jú kostur þess að
vera ekki alltaf þrykktur með
prentsvertu á pappír.
Helgidagar
varasamir
Tekjur danskra lögfræðinga
námu á síðasta ári tæpum
hundrað milljörðum íslenskra
króna og hafa aukist um sex-
tán prósent síðustu þrjú ár,
samkvæmt tölum dönsku
Hagstofunnar. Danskir lögfræð-
ingar hafa gegnum árin helst
sótt tekjur til prívatráðgjafar
einstaklinga en nú er svo komið
að um sjötíu prósent allra tekna
koma af fyrirtækjaráðgjöf,
tuttugu prósent frá einstakling-
um og einungis tíu prósent frá
ríkinu. Þykir þetta bera þéttofnu
regluverki Evrópusambandsins
fagurt vitni, enda eru það alþekkt
sannindi innan lögfræðistéttar-
innar að einungis lögfræðingar
geta rekið fyrirtæki svo vel sé.
Þéttofið regluverk
„Ég hef alltaf veri› keppnisma›ur“
fiess vegna hef ég a›gang a› E*TRADE. Me› flátttöku í E*TRADE í gegnum Landsbankann b‡›st
einstaklingum möguleiki á a› n‡ta sér beint og millili›alaust áhugaver› fjárfestingartækifæri. Á
E*TRADE getur flú keypt og selt hlutabréf í Danmörku, Noregi, Svífljó›, Finnlandi og Bandaríkjunum.
E*TRADE er einfalt í notkun, í bo›i eru ókeypis námskei› og allt vi›mót er á íslensku.
Ert flú á ?
Kynntu flér máli› á landsbanki.is
e›a hringdu síma 410 4000.