Fréttablaðið - 16.08.2006, Síða 4
4 16. ágúst 2006 MIÐVIKUDAGUR
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 15.8.2006
Bandaríkjadalur 70,9 71,24
Sterlingspund 133,77 134,43
Evra 90,13 90,63
Dönsk króna 12,08 12,15
Norsk króna 11,229 11,295
Sænsk króna 9,781 9,839
Japanskt jen 0,6079 0,6115
SDR 104,99 105,61
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
124,8114
Gengisvísitala krónunnar
����������������������������������������� ������������
�������������
������������
��������������������
�����������������������������������������������������������������
����
�����
�����
��
VEIÐI Fiskurinn flundra er orðinn
algengur í ám og árósum á Suður-
og Vesturlandi. Að sögn Magnúsar
Jóhannssonar, fiskifræðings og
deildarstjóra á Suðurlandsdeild
Veiðimálastofnunar, hefur flundr-
an veiðst á stöng, meðal annars í
Varmá, og er hún vel æt.
„Flundran er kolategund og
náskyld sandkola. Þetta er nýbúi
hér við land, flundran hefur verið
að nema land frá 1999, en var fyrst
í Ölfusá. Fiskurinn finnst við
strendur Evrópu og við Færeyjar
og líklegt er að hann hafi komið til
landsins þaðan,“ segir Magnús.
Flundran lifir í sjó við strendur en
gengur líka í ferskt vatn. -rsg
Flundran fjölgar sér:
Nytjafiskur
erlendis
FLUNDRA Flundra þekkist á útstæðum
beinkörtum eftir endilöngu bakinu.
LÖGREGLA Karlmaður á sextugs-
aldri, sem hefur verið kærður
fyrir kynferðisbrot gegn þremur
stúlkum á samkomu línudansara
um verslunarmannahelgina,
hefur ekki verið yfirheyrður
vegna málsins.
Gils Jóhannsson, varðstjóri
lögreglunnar á Hvolsvelli, sem
fer með rannsókn málsins, segist
vita hver maðurinn er og hann sé
ekki í felum. „Það eru ekki allir
handteknir eins og skot þegar
kæra kemur. Það fer bara eftir
eðli málsins. Þessi maður er ekk-
ert talinn stórhættulegur. Það er
fyrst og fremst horft til hags-
muna barnanna og að koma þeim
til hjálpar. Hitt kemur svo af
sjálfu sér.“
Maðurinn er grunaður um að
hafa berað kynfæri sín fyrir
framan þrjár 8 til 12 ára stúlkur
og leitað á að minnsta kosti eina
þeirra á samkomu á Heimalandi í
Rangárþingi eystra um verslun-
armannahelgina. Hann mun hafa
verið ölvaður þegar meint brot
átti sér stað. Hann flúði svo af
vettvangi þegar ein stúlkan hót-
aði að kalla í föður sinn.
Gils segir málið í rannsókn.
„Það er verið að rannsaka málið
á fullu og það er verið að viða að
þeim gögnum sem þarf að nota
við úrvinnsluna.“ - sh
Karlmaður grunaður um kynferðisbrot gegn þremur stúlkum:
Ekki búið að yfirheyra manninn
HJÁLPARSTARF Ríkisstjórn Íslands
hefur veitt 7,1 milljónar viðbótar-
framlag til hjálparstarfs Rauða
krossins í Líbanon. Hafði ríkis-
stjórnin áður sett tvær milljónir
króna í hjálparstarfið.
Kristján Sturluson, fram-
kvæmdastjóri Rauða kross
Íslands, segir Alþjóðaráð Rauða
krossins og líbanska Rauða kross-
inn hafa gegnt lykilhlutverki í
hjálparstarfi undanfarnar vikur.
Í tilkynningu frá Rauða krossin-
um segir að þrátt fyrir vopnahlé
haldi hafnarbann Ísraelshers áfram
og komið sé í veg fyrir flugsam-
göngur. Neyðarástand muni vara
áfram næstu mánuði. - öhö
Ríkisstjórn Íslands:
Styrkir hjálpar-
starf í Líbanon
BLAÐAÚTGÁFA Allt stefnir í harða
samkeppni á dönskum fríblaða-
markaði en fyrsta fríblaðið,
Centrum Aften, kom út í 65 þús-
und eintökum í Álaborg í vik-
unni.
Dato, fríblað Berlingske
Tidende, verður borið út í hús í
Árósum og Kaupmannahöfn í
dag en það er gefið út í hálfri
milljón eintaka. Hugmyndin að
baki Dato er að sögn aðstand-
enda þess sú að það taki lesendur
eina til tíu mínútur að lesa blað-
ið, eða jafnlangan tíma og það
taki fólk að borða morgunverð-
inn.
Þá mun 24timer, fríblað Jyll-
ands-Posten og Politiken, koma
út á morgun í jafnstóru upplagi.
Hafa forsvarsmenn fyrirtækj-
anna ekki farið leynt með að
kveikjan að þessari auknu útgáfu
sé væntanlegt fríblað 365 Media
Scandinavia.
Fleiri sækja á fríblaðamark-
aðinn því MetroXpress, sem síð-
astliðin fimm ár hefur gefið út
samnefnt fríblað, ætlar að gefa
út ókeypis síðdegisblað í hundr-
að þúsund eintökum í næstu viku.
Á föstudögum verða prentuð tíu
þúsund fleiri eintök en aðra daga
vikunnar.
Nyhedsavisen, fríblað 365
Media Scandinavia, kemur fyrst
út í september og verður prentað
í sjö hundruð þúsund eintökum.
Fríblaðastríðið harðnaði enn
frekar í vikunni þegar Berlingske
Tidende, Politiken og Jyllands-
Posten buðu auglýsingar á allt að
helmingi lægra verði en áður.
Karl Pétur Jónsson, fulltrúi
forstjóra Dagsbrúnar, segir að
stokka hafi þurft upp í danska
dagblaðamarkaðnum sem hafi
verið orðinn staðnaður. „Það er
greinilega rétt mat því blaðið
okkar er ekki komið út en er
þegar búið að stokka markaðinn
upp,“ segir Karl. Hann bendir á
að dönsku blöðin séu full af frétt-
um um fríblöðin og greinilegt að
menn séu taugastrekktir yfir
breytingum á markaðnum.
Aðspurður um harðnandi sam-
keppni á auglýsingamarkaði
segir Karl Pétur auglýsendur
leita til þess miðils sem skili
mestum árangri. „Menn leita
eftir því hversu mörg augu sjá
auglýsinguna en ekki hversu
ódýr síðan er,“ segir hann.
Karl Pétur segir í raun ekki
hægt að bera fríblöðin sem til-
kynnt hafi um útgáfu saman við
Nyhedsavisen. Bæði sé upplag
þeirra talsvert minna auk þess
sem dreifing þeirra fari fram að
degi til að hluta á ákveðnum
markaðssvæðum og nái ekki
augum allra lesenda. Dreifing
Nyhedsavisen fer hins vegar
fram yfir nóttina og á morgnana í
mun stærra upplagi og verður
blaðið í lúgunni á hverjum degi,
að sögn Karls Péturs.
jonab@frettabladid.is
kristjans@frettabladid.is
Samkeppnin hörð
um danska lesendur
Mikil harka er að færast í samkeppni á dönskum fríblaðamarkaði. Dagsbrún
segir markaðinn hafa verið staðnaðan og fríblað félagsins hafi þegar hrist upp í
honum, þótt útgáfa blaðsins hefjist ekki fyrr en á haustmánuðum.
HVOLSVÖLLUR Lögreglan rannsakar málið.
BRETLAND, AP Handteknum sak-
borningum í rannsókninni á hinu
meinta samsæri um að sprengja í
loft upp allt að tíu farþegaþotur á
leiðinni milli Bretlands og Banda-
ríkjanna fjölgaði í gær um einn.
Lögreglan í Lundúnum greindi frá
því að hún hefði um hádegisbil í
gær handtekið 24. manninn í tengsl-
um við rannsóknina. Handtakan
fór fram í Thames-dalnum, en ekk-
ert var nánar gefið upp um hana.
Breska rannsóknarlögreglan,
Scotland Yard, greindi frá því að í
tengslum við rannsóknina hefði
húsleit verið gerð í 46 íbúðum og
fyrirtækjum. - aa
Hryðjuverk í Bretlandi:
Einn handtek-
inn til viðbótar
ÓSK VILHJÁLMSDÓTTIR Ósk vill að ráð-
herrum gefist kostur á að sjá landið sem
hverfur vegna Kárahnjúkavirkjunar.
VIRKJANIR Ósk Vilhjálmsdóttir
myndlistarmaður og leiðsögukona
hjá Hálendisferðum bíður svara
frá ráðherrum sem hún bauð í
tveggja daga ferð um Kárahnjúka-
svæðið. Ósk sendi ráðherrunum
boðskort í pósti og rennur frestur
til að staðfesta þátttöku út í dag.
„Það er ekki nóg að skoða svæð-
ið rétt í kringum Kárahnjúka held-
ur verður fólk að meta þetta út frá
perlunum milli Kárahnjúka og
Brúarjökuls og skoða lónsbotninn
almennilega,“ segir Ósk. „Tilgang-
urinn er ekki endilega að snúa
mönnum, þetta er gert af góðum
hug.“
Hún vill ekki upplýsa um svör
ráðherranna fyrr en fresturinn
rennur út. - rsg
Ráðherraboð á Kárahnjúkum:
Frestur rennur
út í dag
Tilræði banar níu Sjálfsmorðs-
sprengjumaður banaði níu manns í
héraðshöfuðstöðvum stjórnmálaflokks
Íraksforseta í Kúrdahéruðunum í Norður-
Írak í gær. Götubardagar geisuðu einnig í
gær á milli írakskra hermanna og fylgis-
manna herskás sjía-klerks í Karbala, sem
er helg borg sjía.
ÍRAK
10 teknir fyrir hraðakstur
Lögreglan á Blönduósi stöðvaði tíu
ökumenn fyrir of hraðan akstur í
gær. Meirihluti þeirra voru erlendir
ferðamenn. Lögregla brýnir fyrir
vegfarendum að virða hraðatakmarkanir
þar sem framkvæmdir standa yfir.
LÖGREGLUFRÉTTIR
HÖRÐ SAMKEPPNI Danskir blaðaútgefendur keppast við að kynna nýju fríblöðin. Hér aug-
lýsir 24timer á strætisvagnaskýli, en blaðið er gefið út af Jyllands-Posten og Politiken.