Fréttablaðið - 16.08.2006, Síða 23
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Aðalheiður Halldórsdóttir dansari
eyddi nokkrum dögum uppi á Snæfelli,
þar sem Íslandsvinir voru með
friðsamleg mótmæli gegn stóriðjustefnu
stjórnvalda.
Að sögn Aðalheiðar voru samtökin með
tjaldbúðir sem hægt var að gista í, matast
og hlýða á tónlist eða fyrirlestra manna eins
og Andra Snæs Magnússonar rithöfundar
og Gríms Björnssonar jarðfræðings. Þátt-
takendur nýttu síðan veðurblíðuna til þess
að fara í 10-12 tíma göngu einn daginn sem
lauk með tíu mínútna langri friðsamlegri
mótmælastöðu.
„Það var stöðugt rennsli af fólki þessa
daga, bæði Íslendingar og útlendingar, sem
vildu annað hvort kynna sér málstaðinn eða
styðja hann,“ bætir Aðalheiður við, sem
gekk sjálf til liðs við Íslandsvini til að upp-
fræða almenning betur um þær hliðar virkj-
anaframkvæmda sem hún segir haldið
leyndum. „Ef fólk vissi allan sannleikann,
þá væru allir á móti þessari stóriðjustefnu,“
segir hún.
Aðalheiði finnst að Íslendingar eigi að
varðveita betur einstaka ósnortna náttúr-
una en tekist hefur í nágrannalöndunum.
„Ég vil ekki að það fari eins fyrir Íslandi og
Holllandi þar sem ég bjó um tíma og fannst
vera hálf sálarlaust af því að svo mikið
hefur verið átt við umhverfið, eins undar-
lega og það kann að hljóma,“ segir hún með
hryllingi.
„Kosturinn við að búa á Íslandi er hins
vegar hversu stutt er í ósnortna náttúruna,
sem er full af orku,“ segir Aðalheiður. „Það
er góðu lagi að virkja svo hér sé hægt að
búa, en þar við á að láta sitja. Eins og staðan
er nú eru 80 prósent af raforku á Íslandi
hins vegar framleidd fyrir stóriðju, sem
nær engri átt.“ roald@frettabladid.is
Heilluð af ósnortinni
náttúru Íslands
Aðalheiður segir náttúrufegurðina á Snæfelli ótrúlega og finnst skömm að því hvernig farið er með svæðið. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 5.21 13.32 21.41
Akureyri 4.55 13.17 21.36
Bágt í kladdann
Camry og Caliber viðkvæmir fyrir
aftanákeyrslum.
Í niðurstöðum árekstraprófana Insurance Institute for
Highway Safety í Bandaríkjunum kemur fram að tveir
vinsælir bílar stóðust ekki væntingar hvað varðar
öryggi farþega.
2007 árgerðin af Toyota Camry fékk góða einkunn
fyrir árekstur á framenda og skipaði sér í fremstu röð
þegar kom að hliðarárekstri. Þegar kom að árekstri á
afturenda var einkunninn hinsvegar „á mörkunum“.
Sömu sögu var að segja af 2007 árgerðinni af Dodge
Caliber, sem fékk líka einkunnina „á mörkunum“ fyrir
hliðarárekstur. Stofnunin
bendir þó á að Caliber
sé engu að síður
öruggari
en Neon,
sem
hann
tekur
við af.
Toyota Camry kom vel út í prófunum IIHS, þar til kom
að aftanákeyrslum.
Kvennarúntur Fornbílaklúbbs
Íslands verður farinn í kvöld frá
Árbæjarsafni. Sérstök áhersla
verður lögð á að konur aki fornbíl-
unum, eða í versta falli mæti með
sinn eiginmann, kærasta, föður
eða bróður sem bílstjóra. Farinn
verður rúntur um bæinn, sem
hefst kl. 21.
Ferðaþjónusta bænda stendur
fyrir ferð til St. Pétursborgar
dagana 27. september - 4. okt-
óber. Um er að ræða spennandi
vikuferð til borgarinnar sem var
höfuðborg Rússlands á árunum
1712-1918 og hét síðar um tíma
Leníngrad. Fararstjóri ferðarinnar er
maður með reynslu, en Pétur Óli
hefur búið árum saman í borginni
og þekkir því hvern krók og kima.
Skólaföt eru einhver ánægjuleg-
asta vísun í haustið sem um getur.
Á útsölunum núna má gera góð
kaup svo hægt sé að vera fínn í
tauinu þegar skólinn byrjar. Málið
er að finna það flottasta frá því í
sumar í bland við sígilda strauma.
80‘s ökklastrigaskór, þröngar
gallabuxur, skyrtur
og hnepptar
afapeysur handa
strákunum og
víðar buxur
með stroffi,
teygjugalla-
buxur, leggings
og kjólar sem
passa við fyrir
ALLT HITT
[ BÍLAR FERÐIR TÍSKA ]
GÓÐAN DAG!
Í dag er miðvikudagurinn
16. ágúst, 228. dagur
ársins 2006.
MARGT BÝR Í
MYRKRINU
Jónas Þorsteinsson stendur
fyrir skipulögðum ferðum
um Reykjavík þar sem
draugar eru í aðalhlutverki.
FERÐIR 2
VEGUR AÐEINS
23 KÍLÓ
Mini-moto hjólin eru nýjasta
mótorsportið á Íslandi.
BÍLAR 4