Fréttablaðið - 16.08.2006, Page 70
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
Loksins virðist eitthvað nýtt vera
að gerast í bresku popp/rokki.
Bylgjan sem Chris Martin og
félagar komu af stað fyrir of
mörgum árum er orðin frekar
þreytt og því hlaut að koma að
breytingu. Hér er þó ekki um
neina byltingu að ræða. Hljóm-
sveitin Guillemots hefur ekki
verið starfandi lengi en aðalmað-
urinn á bak við hana, Fyfe Dang-
erfield, ásamt félögum í hljóm-
sveitinni hefur tekist að skapast
einhverja aláhugaverðustu popp-
plötu sem komið hefur út í Bret-
landi í nokkuð langan tíma. Stór
orð en engu að síður sönn.
Platan Through the Window-
pane þarf reyndar smá tíma í spil-
aranum áður en hún almennilega
nær til hlustandans. Melódíurnar
eru einfaldar og áreynslulausar
og þrátt fyrir að mörg laganna séu
skreytt með ýmiss konar auka-
hljóðum, hefðbundnum og óhefð-
bundnum, falla þau vel að laglín-
unum þannig að úr verður
skemmtileg heild, ómmikil en
samt yfirveguð. Guillemots fara
ekki ótroðnar slóðir en þó skynjar
maður samt að hér er eitthvað nýtt
á sveimi. Þú þarft ekki annað en
að hlusta á kontrabassaleik Arist-
azabals Hawkes til að fá þá tilfinn-
ingu. Tala nú ekki um ef lokalagi
plötunnar, hinu rúmlega ellefu
mínútu langa São Paulo, er gefinn
gaumur.
Aðalmaðurinn, Dangerfield,
hljómar reyndar á tímum hættu-
lega líkt David Gray en í laginu
Blue Would Still Be Blue heldur
rödd Dangerfields laginu algjör-
lega uppi við lágt og minimalískt
undirspil og sannar þar sönghæfi-
leika sína. Þannig er með margt
annað á plötunni, margt sem við
fyrstu sýn er öðruvísi en það reyn-
ist vera. Platan er þannig aðgengi-
leg en samt framsækin. Popp-
slagarnir Made Up Lovesong #43
og Annie, Let‘s Not Wait grípa
hlustandann um leið og titillag
plötunnar er án efa eitt af lögum
ársins. Inn á milli má þó heyra
tóna sem mér finnst að eigi ekki
að vera þar en þeir eru sem betur
fer fáir.
Guillemots eru ekki nýir Radio-
head, Oasis eða Coldplay og hún er
svo sannarlega ekki að finna upp
hjólið en Guillemots tekst hins
vegar að senda frá sér plötu þar
sem heildarsvipurinn er frábrugð-
inn flestu öðru sem komið hefur
frá Bretlandi á undanförnum
misserum. Einfaldlega hin fínasta
plata.
Steinþór Helgi Arnsteinsson
Framsækið en hlýlegt
popp frá Guillemots
GUILLEMOTS
THROUGH THE WINDOWPANE
Niðurstaða: Ein áhugaverðasta plata sem
komið hefur frá Bretlandseyjum í dágóðan
tíma. Virðist vera einföld og jafnvel einhæf við
fyrstu hlustun en er í raun framsækin og frum-
leg og jafnframt aðgengileg og þægileg.
Kevin Federline, sem þekktastur
er fyrir að vera eiginmaður söng-
konunnar Britney Spears, hefur
neyðst til að stofna eigið plötuút-
gáfufyrirtæki. Drengurinn þráir
ekkert heitara en að vera rappari
en eftir að öll stóru útgáfufyrir-
tækin höfnuðu tilraunalagi hans
„PopoZao“ ákvað hann að fara þá
leið að gefa út nýjustu plötuna
sína á eigin vegum. Útgáfufyrir-
tækið hefur fengið nafnið Feder-
ation Records og er í eigu Fed-
erlines og umboðsmanns hans,
Dans Dymtrow.
Undirbúningur fyrir útgáfu
nýju plötunnar er kominn á fulla
ferð, en búist er við að hún komi út
í október. Er Federline meðal ann-
ars búinn að taka upp myndband
við lagið „Lose Control“ sem hann
kynnir á Teen Choice verðlaunun-
um í næstu viku.
Segja heimildarmenn sem
þekkja til parsins að Kevin Fed-
erline sé sannfærður um að efni
hans nái stórkostlegum vinsæld-
um, enda sé hann staðráðinn í að
verða vinsælli en eiginkonan.
Kevin stofnar plötuútgáfu
KEVIN FEDERLINE ÁSAMT FRÚNNI Federline
er farinn að rappa og þráir að verða frægari
en eiginkonan, Britney Spears.
Colin Farrell hefur ekki útilokað
að hann muni taka að sér hlutverk
í sjónvarpsþáttunum Ballykiss-
angel sem skutu leikaranum írska
upp á stjörnuhimininn fyrir nokkr-
um árum en í undirbúningi eru nú
framhaldsþætttir af þessari vin-
sælu þáttaröð. Farrell er á fullu
við að kynna kvikmyndina Miami
Vice sem fengið hefur frábæra
dóma en það breytir víst ekki
þeirri staðreynd að Farrell virðist
tilbúinn að leggja framleiðendum
þáttanna lið ef þeir óska eftir nær-
veru hans. „Ef hlutverkið er rétt
myndi ég slá til. Ég byrjaði í
Ballykissangel og naut þess að
leika í þáttunum,“ sagði Farrell.
Farrell aftur á skjáinn
COLIN FARRELL Leikur aðalhlutverkið í
Miami Vice en útilokar ekki endurkomu í
sjónvarpið.
Fyrirsætubransinn er með
þeim allra hörðustu því
daglega þurfa stúlkurnar að
leggja ýmislegt á sig til að
ná augum þeirra sem öllu
ráða. Þegar fyrirsæturnar
hafa komið ár sinni vel fyrir
borð bíður þeirra frægð og
frami þar sem tískuhönn-
uðirnir leggja sig í líma við
að fá þær til sín. Enginn
vill hins vegar verða á milli
þegar slær í brýnu með
fallegustu konum heims.
Nú eru tvær af frægustu og
„bestu“ fyrirsætum heims komn-
ar í hár saman og ágreiningsefnið:
Jú, hver þeirra er „Líkaminn“.
Fréttavefur Sky News er með
fréttaúttekt á þeirri stððu sem
komin er upp. Hingað
til hefur „Íslandsvin-
konan“ Elle Mac-
pherson borið nafnið
„The Body“ eða
„Líkaminn“ vegna
nánast fullkomins
vaxtar. Macpher-
son hefur náð langt
með þessu atvinnu-
heiti sínu síðast-
liðin tuttugu ár en
nú virðist sem
arftaki hennar sé
fundinn, þýska
ofurfyrirsætan
Heidi Klum. Í
auglýsingu fyrir nýjasta brjósta-
haldara Victoria‘s Secret, The
Body Bra, segir Heidi. „Ég er köll-
uð „Líkaminn“ og nú er kominn
með brjóstahaldari nefndan í höf-
uðið á mér.“
Þessi setning hefur farið held-
ur betur fyrir brjóstið á undirfata-
línu Elle Macpherson og talsmað-
ur fyrirtækisins segir að þegar
þau hafi séð umrædda auglýsingu
hafi allir sopið hveljur. „Við erum
með heilan helling af auglýsingum
sem tengja Elle við nafnið „The
Body“,“ sagði talsmaðurinn við
fjölmiðla. „Tískutímarit og versl-
anir tengja Elle McPherson við
nafnið The Body,“ bætti talsmað-
urinn við.
Fulltrúi Victoria‘s Secret gaf
hins vegar lítið fyrir ásakanir um
stuld og sagði að Heidi hefði borið
þetta starfsheiti í tíu ár í auglýs-
ingum fyrirtækisins. „Það hafa
alltaf verið til fyrirsætur sem hafa
borið þennan titil og nægir þar að
nefna Brigitte Bardot og Ursulu
Andress og einhverjar fyrirsætur
framtíðarinnar koma til með
verða þessa heiðurs aðnjótandi.“
Fyrirsætustríð í uppsiglingu
BRIGETTE BARDOT Var oft nefnd The Body
á árum áður. FRÉTTABLAÐIÐ / GETTY IMAGES
NÝJA HERFERÐIN
Mikið er gert út á
nafnið The Body í
auglýsingaherferð
Victoria‘s Secret sem
skartar sjálfri Heidi
Klum.
HVOR ER LÍKAMINN? Heidi Klum og Elle Macpherson eru komnar í hár saman vegna starfs-
titilsins The Body en þær segjast báðar geta borið nafnið með stolti.
MIAMI VICE kl. 5, 8 og 10.50 B.I. 16 ÁRA
SÝND Í LÚXUS kl. 5, 8 og 10.50
THE SENTINEL kl. 5.40, 8 og 10.20 B.I. 14 ÁRA
ÁSTRÍKUR OG VÍKINGARNIR ÍSL. TAL kl. 4 og 6
SILENT HILL kl. 10 B.I. 16 ÁRA
OVER THE HEDGE ÍSL. TAL kl. 4 og 6
OVER THE HEDGE ENSKT TAL kl. 4 og 8
STICK IT kl. 8 og 10.20
50.000
MANNS
BYGGÐ Á VINSÆLUSTU BÓK Í HEIMI!
A PRAIRIE HOME COMPANION kl. 5.45, 8 og 10.15
ÁSTRÍKUR OG VÍKINGARNIR ÍSL. TAL kl. 6 og 8
SILENT HILL kl. 8 og 10.40 B.I. 16 ÁRA
CLICK kl. 5.50, 8 og 10.10 B.I. 10 ÁRA
DA VINCI CODE SÍÐ. SÝNINGAR kl. 5 og 10 B.I. 14 ÁRA
MIAMI VICE kl. 8 og 10.40 B.I. 16 ÁRA
THE SENTINEL kl. 8 og 10 B.I. 14 ÁRA
ÁSTRÍKUR OG VÍKINGARNIR ÍSL. TAL kl. 6
STORMBREAKER kl. 6
!óíbí.rk004
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
SÍÐUSTU SÝNING
AR
H.J.MBL Ó.T. Rás 2