Fréttablaðið - 24.08.2006, Blaðsíða 2
2 24. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR
Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val
á réttri dýnu alla fimmtudaga á milli kl. 16 og 18.
Opið virka daga: 10-18
Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500
FJARSKIPTI Ríkislögreglustjóri og
Neyðarlínan hafa sent dómsmála-
og samgönguráðuneytinu bréf þar
sem gerð er grein fyrir þeirri
skoðun, að réttast væri að kveða
„skýrt á um það í lögum að fjar-
skiptafyrirtækjum sé skylt að
veita upplýsingar um rekjanleika
símtala og tryggja að upplýsingar
um staðsetningu séu aðgengileg-
ar,“ eins og segir orðrétt í bréfinu
til ráðuneytanna. Undir bréfið rita
héraðsdómslögmennirninr Arnar
Þór Jónsson og Tómas Árnason, en
þeir vinna að framgangi málsins
fyrir hönd Ríkislögreglustjóra og
Neyðarlínunnar.
Í samtali við Fréttablaðið sagð-
ist Arnar Þór vonast til þess að
tekið yrði tillit til sjónarmiða lög-
reglu og Neyðarlínu þegar endan-
legar ákvarðanir um fjarskipta-
mál yrðu tengdar.
Í bréfinu lýsa forsvarsmenn
Neyðarlínunnar sig reiðubúna til
samstarfs við „gagnaöflun og
annað sem getur horft til fram-
gangs þessa máls“.
Eins og greint var frá í Frétta-
blaðinu fyrr í sumar vísaði
úrskurðarnefnd fjarskipta- og
póstmála frá kæru Ríkislögreglu-
stjóra og Neyðarlínunnar vegna
bráðabirgðaákvörðunar Póst- og
fjarskiptastofnunar frá 8. maí.
Með henni var Síminn hf. skyldað-
ur til þess að flytja símanúmer í
almennri talsímaþjónustu yfir í
netsímaþjónu Atlassíma ehf., ef
eftir því er óskað.
Í kærunni sagði meðal annars
að „mjög yrði höggvið í þann
árangur sem náðst hefur við upp-
byggingu fjarskiptamiðstöðvar
lögreglu“, þar sem það væri vand-
kvæðum bundið að staðsetja sím-
töl í netsímaþjónustu.
Bréfin hafa verið send til ráðu-
neytanna til þess að fylgja eftir
áhersluatriðum sem fram koma í
kærunni, en er bent á mikilvægi
þess að koma á lögum sem auð-
velda Neyðarlínunni að fylgja
eftir „lögbundnu hlutverki sínu“.
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra sagði bréfið hafa borist til
ráðuneytisins en það væri sam-
gönguráðuneytisins að svara fyrir
um efnisatriði þess þar sem fjar-
skiptalöggjöfin fellur undir sam-
gönguráðuneytið.
Haft var eftir Birni í Frétta-
blaðinu að hann undraðist frávís-
unina á kæru Ríkislögreglustjóra
og Neyðarlínunnar, þar sem „það
kæmi sér á óvart, að ekki mætti
gera þær kröfur sem eru nauðsyn-
legar til að tryggja sem best
öryggi borgaranna, þrátt fyrir að
þeir nýti sér nýja símatækni“.
Ekki náðist í Sturlu Böðvarsson
samgönguráðhera þegar leitað var
eftir viðtali við hann í gær, eða
Bergþór Ólason aðstoðarmann
hans. magnush@frettabladid.is
Vilja lagabreytingar
til að auðvelda störf
Send hafa verið bréf til dómsmála- og samgönguráðuneyta þar sem óskað er
eftir lagabreytingum til auðvelda störf lögreglu og Neyðarlínunnar. Mikilvægt
að breyta lögum svo að hægt sé að sinna lögbundnu hlutverki, segir í bréfinu.
NEYÐARLÍNAN Talsmenn Neyðarlínunnar og Ríkislögreglustjóra vilja vinna að framgangi
lagabreytinga sem miða að því að tryggja sem best öryggi almennings.FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
BJÖRN BJARNASON Undraðist frávísun
á stjórnsýslukæru Ríkislögreglustjóra og
Neyðarlínunnar.FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
SPURNING DAGSINS
Eggert, verða Danirnir ekki
látnir sitja í biluðu sætunum
á Laugardalsvellinum?
„Danirnir verða vonandi látnir lúta í
gras á Laugardalsvellinum.“
Þúsund sæti hafa verið tekin frá fyrir danska
áhorfendur vegna landsleiks Íslands og
Danmerkur á Laugardalsvellinum þann 6.
september næstkomandi. Einungis 4.500
miðar fóru í almenna sölu fyrir leikinn. Ein-
hver sæti reyndust gölluð á síðasta landsleik
Íslands.
ÍRAN, AP Íransstjórn hvatti ráða-
menn í Evrópu til að veita athygli
þeim „jákvæðu og skýru skilaboð-
um“ sem hún bjóði upp á í skrif-
legu svari sínu við tilboði sex stór-
velda um ýmsan ávinning fyrir
Írana gegn því að þeir fallist á að
skilvirkt eftirlit verði haft með
kjarnorkuáætlun þeirra.
Aftur á móti lýstu talsmenn
Bandaríkjastjórnar því yfir í gær
að tilboð Íransstjórnar uppfyllti
ekki skilyrði ályktunar öryggis-
ráðs Sameinuðu þjóðanna um
málið. Það yrði þó skoðað ítarlega.
Stjórnvöld í Kína og Rússlandi
gáfu til kynna vilja til að semja við
Írana á þeim forsendum sem þeir
kynna í svari sínu, en ráðamenn í
Frakklandi og Þýskalandi ítrek-
uðu að stöðvun tilrauna með auðg-
un úrans væri forsenda viðræðna.
Í höfuðborgum stórveldanna –
Rússlands, Kína, Frakklands,
Bretlands, Þýskalands og Banda-
ríkjanna – voru ráðamenn enn að
yfirfara svar Íransstjórnar frá því
í fyrradag. Engin einstök atriði
svarsins hafa komið fram opin-
berlega enn sem komið er. Af því
sem vitað er virðist ljóst að Íranar
bjóði upp á nýjar viðræður, án
þess að stöðva auðgun úrans, sem
þó er lykilkrafan í ályktun örygg-
isráðs Sameinuðu þjóðanna um
málið. Í ályktuninni segir afdrátt-
arlaust að stöðvi Íranar ekki auðg-
un úrans fyrir ágústlok eigi þeir
yfir höfði sér alþjóðlegar þving-
unaraðgerðir.
Hvað sem því líður reyndu tals-
menn Íransstjórnar í gær að lýsa
gagntilboðinu sem stóru skrefi í
átt til lausnar deilunni, svo stóru
að taka ætti hótunina um refsiað-
gerðir út af borðinu.
Frýjunarorð Írana til ráða-
manna Evrópuveldanna virtust
til þess hugsuð að fá þá, ásamt
Kínverjum og Rússum, til að fall-
ast á að ákvörðun um refsiaðgerð-
ir verði frestað um óákveðinn
tíma á meðan ný atlaga yrði gerð
að því að leysa málið með samn-
ingum. Vitað er að Bandaríkja-
stjórn vill ekki heyra á slíkt
minnst nema Íranar uppfylli fyrst
í einu og öllu ákvæði ályktunar
öryggisráðsins. - aa
DEILT UM EFTIRLIT Ný gervihnattamynd af
Natanz-kjarnorkutilraunastöð Írana.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Íransstjórn hvetur stórveldin til að taka gagntilboði hennar vel:
Reyna að rjúfa samstöðuna
AFGANISTAN, AP Að minnsta kosti 36
skæruliðar talibana féllu í skærum
og loftárásum NATO í suðurhluta
Afganistans í gær. Einn NATO-her-
maður féll og fimm aðrir særðust í
árásum skæruliða, að því er tals-
menn NATO-liðsins greindu frá.
Sprengjur í vegkanti bönuðu
einnig þremur óbreyttum Afgönum
í Daman-sýslu við Kandahar. Upp-
reisnarmenn talibana hafa haldið
úti stöðugum árásum gegn afgönsk-
um stjórnarhermönnum og NATO-
herliðinu allan ágústmánuð. - aa
Átökin í Afganistan:
Loftárásir og
bardagar í suðri
VÍGREIFIR TALIBANAR Skæruliðar talibana
biðjast fyrir í Herat í A-Afganistan í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÖGREGLUMÁL Ferðalangar sem
reyndu að smygla inn umtalsverðu
magni af örvandi efnum á mánu-
dag sitja nú í gæsluvarðhaldi,
samkvæmt upplýsingum Frétta-
blaðsins. Þeir voru stöðvaðir á
Keflavíkurflugvelli við komuna til
landsins þar sem efnin fundust í
fórum þeirra.
Lögreglan verst allra frétta þar
sem rannsókn sé á frumstigi og
vill hvorki tjá sig um tegund né
magn efnanna né fjölda þeirra ein-
staklinga sem sitja inni.
Auk þessara nýteknu sitja nú
ellefu manns í gæsluvarðhaldi
vegna tilrauna til stórfellds
smygls í þremur málum. - jss
Keflavíkurflugvöllur:
Tveir teknir
með fíkniefni
FANGELSI Haldið var upp á afmæli
tveggja ára gamallar stúlku í fang-
elsinu í Kópavogi fyrir skemmstu.
Stúlkan hefur dvalið hjá móður
sinni í fangelsinu frá fæðingu.
Guðmundur Gíslason, forstöðu-
maður fangelsanna á höfuðborg-
arsvæðinu, segir að börnum hafi
nokkrum sinnum verið leyft að
vera hjá móður sinni í fangelsinu.
„Börn geta dvalið hjá mæðrum
sínum í fangelsinu ef þannig
stendur á og ef barnaverndaryfir-
völd heimila það.“ Miðað er við að
börnin séu mjög ung, ekki eldri en
tveggja og hálfs árs, þegar þau
búa í fangelsinu, til að vistin hafi
ekki óæskileg áhrif á þau. „Að
vísu er nú ekki margt í Kópavogs-
fangelsi sem minnir á að það sé
fangelsi og í þessu tilviki þá fer
barnið til dæmis á hverjum degi á
barnaheimili,“ segir Guðmundur.
Guðmundur segir afmælis-
veisluna hafa verið mjög gleði-
lega. „Fangaverðir komu og fang-
arnir tóku þátt. Það var bara reynt
að gleðja barnið eins og hægt var
við þessar aðstæður. Við bökuðum
köku og reyndum að hafa þetta
sem líkast eðlilegu afmæli. En
eins og gefur að skilja voru nú
ekki mörg börn á staðnum.“
Konan, sem er frá Sierra Leone,
var ófrísk þegar hún var handtek-
in og fæddi barnið á meðan á
fangavistinni stóð. Hún mun ljúka
afplánun innan skamms og verður
dóttirin hjá henni þangað til. - sh
Tveggja ára gömul stúlka hefur búið í fangelsi hjá móður sinni frá fæðingu:
Barnaafmæli fagnað í fangelsi
FANGELSIÐ Í KÓPAVOGI Börn geta dvalið
hjá mæðrum sínum í fangelsinu.
LÖGREGLUMÁL Lögreglan í Reykja-
vík stöðvaði í gær ökumann á 73
kílómetra hraða skammt frá
grunnskóla í Reykjavík en
hámarkshraði á götunni er 30 kíló-
metra hraði á klukkustund.
Pilturinn fékk ökuréttindi í síð-
asta mánuði en hefur á þeim
skamma tíma verið tekinn þrisvar
fyrir hraðakstur. Þetta síðasta
skipti gerir það að verkum að hann
verður sviptur ökuréttindum. - mh
Hraðakstur í Reykjavík:
Á 73 þar sem
hámarkið er 30
Rán í Kringlunni Starfsmaður veit-
ingastaðarins Dominos á Stjörnutorgi
Kringlunnar var rændur síðdegis í gær
er hann var á leið í banka í Kringlunni
með peninga í tösku. Þjófurinn hrifsaði
töskuna af starfsmanninum og komst
undan á hlaupum.
LÖGREGLUMÁL
Eldur á Grundartanga Eldur kom
upp í álverinu á Grundartanga í gær
þegar ál flæddi út úr keri og þaðan
niður í kjallara þar undir. Álið flæddi út
úr kerskálanum og niður í rafmagns-
stokka. Slökkvilið Akraness fór á staðinn
en óskaði eftir aðstoð slökkviliðsins í
Reykjavík til að aðstoða við reykræst-
ingu en töluverðar skemmdir urðu.
SLÖKKVILIÐ
ÍBÚÐAVERÐ Vísitala íbúðaverðs á
höfuðborgarsvæðinu var 303,6 stig
í júlí og lækkaði um 1,7 prósent frá
fyrra mánuði. Samkvæmt upplýs-
ingum Fasteignamats ríkisins lækk-
aði vísitalan um 1,3 prósent síðast-
liðna þrjá mánuði en síðastliðna sex
mánuði hefur hún hækkað um 3,5
prósent. Hækkun vísitölunnar síð-
astliðna tólf mánuði var 7,5 pró-
sent.
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborg-
arsvæðinu sýnir breytingar á vegnu
meðaltali fermetraverðs. - hs
Vísitala íbúðaverðs lækkar:
Lækkun um
1,7 prósent
LUNDÚNUM, AP Íranar hafa meiri
áhrif í Írak en Bandaríkjamenn og
ráðamenn í Teheran hafa fest sig í
sessi sem aðalkeppinautar banda-
rískra stjórnvalda um ítök í Mið-
austurlöndum. Þetta er fullyrt í
nýrri skýrslu virtrar rannsóknar-
stofnunar í Lundúnum, Chatham
House.
Í skýrslunni er því lýst hvernig
áhrif og ítök Írana hafa farið vax-
andi í Miðausturlöndum og Afgan-
istan. Þessi þróun er helst rakin til
árangursríkrar utanríkisstefnu og
til brotthvarfs tveggja helstu
keppinauta Írana um völd og áhrif
í heimshlutanum, stjórnar Sadd-
ams Hussein í Írak og talibana í
Afganistan. - aa
Ný bresk rannsóknarskýrsla:
Ítök Írana sögð
fara vaxandi