Fréttablaðið - 24.08.2006, Blaðsíða 76
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
Wine for my Weakness er fyrsta
sólóplata Péturs Ben sem fram að
þessu hefur aðallega verið þekkt-
ur fyrir að vera vinur og sam-
starfsfélagi Mugisons, gaurinn
sem samdi Murr Murr með honum.
Það er óhætt að segja það strax.
Wine for my Weakness er þrusu-
plata og ef hún fær þær viðtökur
sem hún á skilið þá gleymast
tengslin við Mugison fljótt og
Pétur Ben verður bara þekktur
fyrir að vera Pétur Ben.
Platan byrjar á rúmlega sjö
mínútna löngu lagi, Look in the
Fire. Það hefst ofurrólega og blíð-
lega, en stigmagnast og rís með
hávaða og látum áður en það róast
niður aftur. Byrjar órafmagnað,
en svo kikka rafmagnsgítararnir
inn þegar lagið er ríflega hálfnað.
Það mætti kalla tónlistina ný-þjóð-
laga-indí-progg. Eða eitthvað.
Næsta lag, Pack your Bags, er svo
rólegt og melódísk gæðapopp.
Gæti verið úr smiðju Belle &
Sebastian. Frábært lag eins og það
fyrsta.
Það sem vekur athygli og aðdá-
un við að hlusta á þessa fyrstu
plötu Péturs Ben er hvað hún er
fjölbreytt og hvað hann virðist
hafa mikið vald á öllum stílbrögð-
unum sem hann bregður fyrir sig.
Það er þjóðlagakeimur þarna,
áhrif frá amerísku indí-rokki,
prog-rokki, píanóballöðum að
hætti Nicks Cave, tilfinninga-
þrungnu jaðarrokki í anda Radio-
head og David Bowie eins og hann
hljómaði á Hunky Dory ... Og list-
inn er rétt að byrja. Útsetningarn-
ar eru líka mjög fjölbreyttar. Við
fyrstu hlustun virkar platan svo-
lítið sundurlaus, en við nánari
kynni fær hún á sig sterkari heild-
armynd. Það sem heldur henni
saman er söngurinn og einhver
óskilgreindur þáttur í samsetning-
unni sem kemur beint frá Pétri
Ben.
Wine for my Weakness er ekki
fullkomin. Mér finnst gæði henn-
ar t.d. aðeins minnka í síðustu lög-
unum. Sem fyrsta plata listamanns
er hún hins vegar ótrúlega sterk.
Sannkallað stórvirki.
Trausti Júlíusson
Firnasterk frumsmíð
PÉTUR BEN
WINE FOR MY WEAKNESS
Niðurstaða: Wine for my Weakness er
ótrúlega sterk frumsmíð sem skýtur Pétri Ben
beint í fremstu röð íslenskra popptónlistar-
manna.
Rokkarinn og söngvari hljóm-
sveitarinnar Rolling Stones, Mick
Jagger, hefur nú beðið fyrirsæt-
unnar L´Wren Scott. Sást til henn-
ar í búðarrölti með leikkonunni
Nicole Kidman með risastóran
demantshring á fingri og grein-
lega hamingjusöm á svipinn sam-
kvæmt Daily Express. Skötuhjúin
hafa nú þegar keypt sér risastórt
einbýlishús í Chelsea saman.
Þetta hjónaband Jaggers er
númer þrjú í röðinni en hann var
giftur fyrirsætunni Jerry Hall í 23
ár og Biöncu Jagger í 9 ár. Jerry
Hall er ekki alltof ánægð með
ráðahaginn og segir L´Wren Scott
bara vera eina af mörgum konum
í lífi rokksöngvarans knáa. Jagger
hefur verið iðinn við kolann í
kvennamálum í gegnum tíðina og
verið kenndur við margar frægar
konur á borð við Umu Thurman,
Marianne Faithfull og Carly Sim-
ons. Hann á sjö börn með fjórum
konum og eru tvær dætur hans,
Jade og Elizabeth, vinsælar fyrir-
sætur.
Jagger í hnappelduna
BRÚÐKAUP Í VÆNDUM Mick Jagger er
búinn að biðja fyrirsætunnar L´Wren Scott
og eru þau búin að kaupa sér einbýlishús
saman. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
Hugarsmið Jims Davis, Garfield,
er mættur aftur til leiks og sem
fyrr er það Bill Murray sem talar
fyrir þennan latasta kött allra
tíma. Garfield, Odie, John og Liz
eru mætt til London þar sem John
hyggst biðja kærustu sinnar. Gar-
field er auðvitað samur við sig og
fer sínar eigin leiðir. Garfield
lendir í þeim misskilningi að hann
sé Prince, nauðalíkur köttur, sem
nýlega hefur erft kastala. Að sjálf-
sögðu er Garfield ekkert í mun að
leiðrétta þessi mistök enda er
honum þjónað kvölds og morgna.
Eina vandamálið er að Lord
Dargis, sem á að erfa auðæfin
næst, hyggst koma þessum Garfi-
eld fyrir kattarnef og þarf því
ráðagóði kötturinn að taka á öllu
sínu til að halda lífi.
Sem fyrr er það Breckin Meyer
sem leikur hinn seinheppna John
og Jennifer Love Hewitt fer með
hlutverk Liz auk þess sem breski
gamanleikarinn Bill Connolly leik-
ur Lord Dargis. Myndinni er leik-
stýrt af Tim Hill en hann hefur
skrifað fyrir hina vinsælu barna-
þætti SpongeBob SquarePants.
Grettir snýr aftur
GARFIELD Kemst í hann krappan þegar
hann verður óvænt erfingi glæsilegs kast-
ala á Bretlandi.
Söngkonan Madonna segir
að eiginmaður sinn, Guy
Ritchie, þoli ekki tónlistina
sína. Þetta kemur m.a. fram
í nýlegu viðtali hennar við
franskt tímarit.
Madonna segir að börnin sín tvö,
hin níu ára Lourdes og Rocco
sem er sex ára, séu einu fjöl-
skyldumeðlimirnir sem virki-
lega kunni að meta tónlistina
hennar. „Börnin mín dýrka allt
sem ég geri, þau elska danstón-
list. Maðurinn minn er ekki mik-
ill aðdáandi minn,“ sagði Mad-
onna.
Í viðtalinu viðurkennir hún
jafnframt að fjölskyldulífið og
frægðin hafi sína galla. „Vita-
skuld er leiðinlegt að hafa ekki
lengur frelsi til að fara ein á
skemmtistað og dansa alein á
dimmu dansgólfi án þess að
nokkur komi til að trufla mig,“
sagði hún. „Það er leiðinlegt að
geta ekki lengur hagað sér á
þennan hátt.“
Madonna bætti við: „Í síðustu
viku fór ég á klúbb þar sem ég
dansaði við marga vini mína.
Það var mjög gaman. Stundum
fer ég líka út að dansa með
nokkrum af dönsurunum
mínum. Að sjálfsögðu
ekki á hverju kvöldi,
enda á ég fjölskyldu
sem ég þarf að sinna.“
Aðspurð hvort hún
vilji frekar fara út að
skemmta sér í miklu
stuði heldur en að vera
heima segir Madonna
að valið sé auðvelt.
„Þeim litla frítíma sem
ég á eyði ég með börn-
unum mínum. Við
horfum á DVD,
pöntum pitsu og
stundum fer ég á
hestbak með dóttur
minni. Kannski hljómar þetta
leiðinlega en svona er lífið hjá
mér. Tímarnir hafa breyst,“
sagði hún.
Madonna, sem er 48 ára, seg-
ist líta á sig sem kamelljón. „Ég
get verið eins og ensk sveitafrú
en á sekúndubroti get ég breytt
mér í Oliviu Newton John eða
Farrah Fawcett.“
Eiginmaðurinn þolir ekki
tónlist Madonnu
UPPI Á SVIÐI Madonna gaf á síðasta ári út plötuna Confessions of a
Dancefloor sem hefur notið mikilla vinsælda.
MEÐ EIGINMANNINUM
Guy Ritchie hefur lítinn
áhuga á tónlist eiginkonu
sinnar.
SNAKES ON A PLANE kl. 8 og 10.20 B.I. 16 ÁRA
MIAMI VICE kl. 5, 8 og 10.50 B.I. 16 ÁRA
SÝND Í LÚXUS kl. 5, 8 og 10.50
THE SENTINEL kl. 10.20 B.I. 14 ÁRA
ÁSTRÍKUR OG VÍKINGARNIR ÍSL. TAL kl. 4 og 6
SILENT HILL kl. 10.20 B.I. 16 ÁRA
OVER THE HEDGE ÍSL. TAL kl. 4 og 6
OVER THE HEDGE ENSKT TAL kl. 4
STICK IT kl. 8
50.000
MANNS
BYGGÐ Á VINSÆLUSTU BÓK Í HEIMI!
SNAKES ON A PLANE kl. 5.40, 8 og 10.20 B.I. 16 ÁRA
A PRAIRIE HOME COMPANION kl. 5.45, 8 og 10.15
ÁSTRÍKUR OG VÍKINGARNIR ÍSL. TAL kl. 6
SILENT HILL kl. 8 og 10.40 B.I. 16 ÁRA
CLICK kl. 5.50 og 8 B.I. 10 ÁRA
DA VINCI CODE SÍÐ. SÝNINGAR kl. 10.10 B.I. 14 ÁRA
SNAKES ON A PLANE kl. 8 og 10 B.I. 16 ÁRA
MIAMI VICE * kl. 8 og 10.20 B.I. 16 ÁRA
THE SENTINEL * kl. 6 B.I. 14 ÁRA
ÁSTRÍKUR OG VÍKINGARNIR ÍSL. TAL kl. 6
* SÍÐUSTU SÝNINGAR
!óíbí.rk004
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
SÍÐUSTU SÝNING
AR
Samuel L. Jackson fer á kostum í einum umtalaðasta spennutrylli ársins.
Á ÍSLANDI
HEIMSFRUMSÝND