Fréttablaðið - 24.08.2006, Blaðsíða 6
6 24. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR
STJÓRNMÁL Birkir Jón Jónsson,
þingmaður Framsóknarflokks, er
nýr formaður fjárlaganefndar
Alþingis. Hann tekur við starfinu
af Magnúsi Stefánssyni sem varð
félagsmálaráðherra í sumar.
Framsóknarmenn gengu frá nýrri
skipan í nefndir þingsins á þriðju-
dagskvöld vegna breytinganna
sem urðu á þingliði flokksins í
júní.
„Ég hef átt sæti í nefndinni allt
þetta kjörtímabil og er því orðinn
nokkuð kunnugur störfum henn-
ar,“ sagði Birkir Jón í samtali við
Fréttablaðið í gær. Hann
sagði stefnubreytingu á
störfum nefndarinnar
ekki liggja fyrir, nefnd-
armenn eigi eftir að setj-
ast niður og ræða hvern-
ig vinnunni verði háttað í
haust.
Guðjón Ólafur Jóns-
son, sem tók sæti Árna
Magnússonar á þingi,
tekur við formennsku í
heilbrigðis- og trygginga-
nefnd af Jónínu Bjartmarz
umhverfisráðherra. Guðjón verð-
ur einnig varaformaður
allsherjarnefndar auk
þess að setjast í fjárlaga-
nefnd og sjávarútvegs-
nefnd. Sæunn Stefáns-
dóttir tekur sæti í fjórum
fastanefndum þingsins,
þar á meðal efnhags- og
viðskiptanefnd og utan-
ríkismálanefnd. Jón
Kristjánsson, fyrrverandi
ráðherra, verður varafor-
maður utanríkismála-
nefndar en sest einnig í samgöngu-
nefnd auk forsætisnefndar. - bþs
Framsóknarmenn skipa í nefndir Alþingis eftir breytingar í þingflokknum:
Birkir Jón stýrir fjárlaganefnd
BIRKIR JÓN JÓNSSON
Nýr formaður fjárlaga-
nefndar Alþingis.
STJÓRNMÁL „Það liggur fyrir ákveð-
ið samkomulag um hlutina sem ég
tel að eigi eftir að klára,“ sagði
Kristinn H. Gunnarsson, þingmað-
ur Framsóknarflokksins, í samtali
við Fréttablaðið þegar ljóst varð
hvernig þingflokkur framsóknar-
manna hagar skipan í nefndir
Alþingis í vetur. Kristni er ekki
ætluð nefndaformennska en er
varaformaður þriggja nefnda.
Hjálmar Árnason, formaður
þingflokksins, segist ekki skilja
hvað vaki fyrir Kristni. „Ég botna
ekkert í honum því hann veit
betur. Þegar hann fullyrðir að
hann hafi átt að fá formennsku þá
fer hann ekki með rétt mál,“ sagði
Hjálmar í samtali við Fréttablaðið
í gær.
Þingflokkurinn vék Kristni úr
nefndum þingsins árið 2004 en í
febrúar 2005 náðust sættir á sögu-
legum kvöldverðarfundi þing-
flokksins á veitingastaðnum Við
tjörnina. Kristinn fullyrðir að í
samkomulaginu hafi falist að
hann yrði nefndarformaður á ný
en hann fór áður með formennsku
í iðnaðarnefnd. „Það var ekkert
víst að ég færi í sömu nefndir,
bara að ég hefði sams konar stöðu,
það er að segja færi með for-
mennsku í nefnd,“ sagði Kristinn
í gær.
Hjálmar segir nefndasetum
Kristins fjölgað, hann sé í þremur
nefndum og gegni varaformennsku
í þeim öllum. „Í því felast ákveðin
skilaboð,“ segir Hjálmar.
Eftir sáttafundinn 2005 settist
Kristinn í tvær þingnefndir og
bjóst þá við að breytingar yrðu
gerðar á nefndaskipan um haust-
ið. Af því varð ekki. Á þriðjudags-
kvöld var svo gengið frá nefnda-
skipan vetrarins í kjölfar nýlegra
breytinga í þingliði flokksins.
Kristinn segist vilja hafa það fyrir
sjálfan sig hvort niðurstaða þing-
flokksins komi sér á óvart, en
hann sat ekki fundinn. Hins vegar
segir hann menn hafa gengið frá
flokksþingi um helgina með það
að markmiði að jafna ágreining.
Hjálmar vísar einnig til sáttatóns
flokksþingsins. „Ég hélt að hann,
eins og allir aðrir framsóknar-
menn, ætlaði að sitja á friðar-
stóli.“ bjorn@frettabladid.is
Kristinn H. segir
samkomulag brotið
Kristinn H. Gunnarsson segist hafa gert samkomulag við Hjálmar Árnason um
að verða aftur formaður í einni af nefndum þingsins. Það hafi ekki verið efnt.
Hjálmar segir Kristin ekki fara rétt með og skilur ekki hvað vakir fyrir honum.
KÓLOMBÓ, AP Alþjóðlegi Rauði
krossinn ætlar að senda ferju frá
Jaffna á norðurhluta Srí Lanka til
þess að flytja á brott þá útlend-
inga sem enn eru á svæðinu. Far-
þegar verða erlendir hjálpar-
starfsmenn og annað fólk með
erlend vegabréf, en þeirra á meðal
eru Bretar, Kanadamenn og tamíl-
ar með norsk vegabréf. Ferjan
tekur hundrað og fimmtíu far-
þega, en vitað er af fleiri útlend-
ingum sem sendiráð ýmissa landa
vilja koma á brott.
Morð og mannrán eru nú dag-
legt brauð á Jaffna-skaga, þrátt
fyrir tuttugu og tveggja tíma dag-
legt útgöngubann og varðstöðu
þúsunda hermanna á götum borga
og við þjóðvegi.
Ákvörðun Rauða krossins var
tilkynnt í kjölfar þess að kaþólsk-
ur prestur týndist. Sá varð vitni að
því er fimmtán manns létust þegar
stjórnarherinn lét skotum rigna
yfir kirkju eina á Kyats-eyju fyrr
í mánuðinum. Presturinn hafði
krafist opinberrar rannsóknar á
atvikinu, þegar hann hvarf skyndi-
lega.
Mannréttindasamtök óttast um
afdrif hans, en talsmaður lögregl-
unnar sagði rannsókn á hvarfi
prestsins í undirbúningi. Síðast
sást til hans við eftirlitsstöð stjórn-
arhersins. - kóþ
Rauði krossinn herðir öryggiskröfur á Srí Lanka:
Allir útlendingar fluttir burt
EINSKISMANNSLAND Biðröð Srí Lanka-
manna sem voru strandaglópar á land-
svæði tamíla. Stjórnarherinn og Tígrarnir
lokuðu helsta þjóðveginum frá Jaffna-skag-
anum fyrr í mánuðinum.FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Á FLOKKSÞINGI FRAMSÓKNARFLOKKSINS Kristni H. Gunnarssyni, þingmanni Framsóknarflokks, er ekki ætluð nefndarformennska á vegum
Alþingis í vetur. Hann telur sig hafa gert samkomulag þess efnis við Hjálmar Árnason, formann þingflokksins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
LÖGREGLA Lögregla útilokar ekki
að maðurinn sem virðist hafa
verið ráðist á á Kárahnjúkum
aðfaranótt sunnudags hafi veitt
sér áverkana sjálfur. Þetta kom
fram í kvöldfréttum NFS í gær-
kvöldi.
Áverkarnir reyndust ekki eins
alvarlegir og í fyrstu var talið og
er talið að hurðin að herbergi
mannsins hafi verið læst innan
frá. Sjálfur heldur hann því fram
að grímuklæddir menn hafi ráð-
ist á hann.
Kínverjinn var yfirheyrður í
gær en til stendur að hann fari í
skýrslutöku hjá lögreglunni á
Egilstöðum fljótlega. - shá
Líkamsárásin á Kárahnjúkum:
Hugsanlega
sjálfsáverkar
KJÖRKASSINN
Á Menningarnótt að vera á
sunnudegi?
Já 40%
Nei 60%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Eru íslenskir háskólar nægilega
góðir?
Segðu skoðun þína á vísir.is