Fréttablaðið - 24.08.2006, Blaðsíða 86
24. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR62
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
www.sturta.is
allan sólarhringinn!
Sími: 565-5566R
e
yk
ja
ví
ku
rv
e
g
u
r
6
4
,
H
af
n
ar
fj
ö
rð
u
r.
Ó
tr
ú
le
g
ve
rð
!!
!!
LÁRÉTT
2 hæfileiki 6 bogi 8 reitur 9 lærdómur 11
guð 12 yfirstéttar 14 flandur 16 í röð 17
klettasprunga 18 örn 20 frá 21 flokka.
LÓÐRÉTT
1 rannsaka 3 í röð 4 ávöxtur 5 skel 7
ráðgast 10 mas 13 tækifæri 15 þukla 16
þangað 19 hreyfing.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 gáfa, 6 ýr, 8 beð, 9 nám, 11 ra,
12 aðals, 14 flakk, 16 þæ, 17 gjá, 18 ari, 20
af, 21 raða.
LÓÐRÉTT: 1 rýna, 3 áb, 4 ferskja, 5 aða, 7
ráðfæra, 10 mal, 13 lag, 15 káfa, 16 þar, 19
ið.
Jón Ólafsson píanóleikari mun
stjórna nýjum spjallþætti á laugar-
dagskvöldum í Sjónvarpinu. Jón
fetar þar með í fótspor ekki ómerk-
ari manna en Hemma Gunn og
Gísla Marteins Baldurssonar sem
stýrðu feikivinsælum spjallþáttum
um árabil.
„Það er bara einn Hemmi Gunn
og bara einn Gísli Marteinn og það
sem ég ætla að gera er á allt öðrum
nótum,“ segir Jón. „Megininntak
þáttarins verður músík enda er ég
á heimavelli þar, en ég ætla ekkert
endilega að fókusera á tónlistar-
menn sem slíka. Ég ætla að hafa
þáttinn upplýsandi án þess að hann
verði of fræðilegur.“
Jón stýrði áður þættinum Af
fingrum fram sem naut töluverðra
vinsælda og hlaut Edduverðlaun
strax eftir fyrsta veturinn. Þar
ræddi hann við tónlistarmenn á
öllum aldri. „Þættirnir verða frek-
ar í anda þess sem ég gerði áður,
svona kumpánlegt spjall í bland
við tónlist. Ég tók mér meðvitað frí
frá Af fingrum fram en nú er ég
kominn í ágætis stuð til að halda
áfram og gera eitthvað sem mér
finnst skemmtilegt,“ segir Jón.
„Ég ætla að nýta það sem ég veit
mest um, sem er múskin, og svo
hef ég líka gaman af því að spjalla
við fólk.“
Jón segist ekki vera búinn að
fullmóta þáttinn en hann vinnur nú
að þróun hans. „Ég er með fullt af
hugmyndum á blaði og ætla að
reyna koma þeim þannig fyrir að
það verði eitthvað vit í þessu. Ég
reikna fastlega með því að píanóið
leiki eitthvert hlutverk – að ég nýti
mér margra ára píanónám úr
æsku,“ segir tónlistarmaðurinn.
Þátturinn hefur ekki enn fengið
nafn en hann verður frumsýndur
um miðjan september.
Aðspurður segir Jón það fylgja
því ákveðið áreiti að stjórna þætti í
Sjónvarpinu en eins og kunnugt er
var hann valinn kynþokkafyllsti
maður landsins af hlustendum
Rásar 2 þegar hann stjórnaði Af
fingrum fram. „Jú, það fylgja því
vafasamir titlar að vinna í Sjón-
varpinu. Megintilgangurinn er að
ná þessum titli aftur. Ég er rosa-
lega tapsár og það var einhver
bankamaður sem hirti titilinn af
mér í krafti bankaveldisins og öfl-
ugs starfsmannafélags,“ segir Jón
hlæjandi. „Annars verða engir fyr-
irfram skrifaðir brandarar eða
þess háttar í þættinum. Það hentar
mér langbest að fá að vera eins og
ég er dags daglega nema bara örlít-
ið fínni í tauinu. En bara örlítið!“
kristjan@frettabladid.is
JÓN ÓLAFSSON: STJÓRNAR NÝJUM ÞÆTTI Í SJÓNVARPINU
Kyntröllið aftur á skjáinn
JÓN ÓLAFSSON Píanóleikarinn knái mun stýra nýjum spjallþætti í sjónvarpinu á laugardagskvöldum. Hann verður væntanlega á góðum
nótum eins og fyrirrennarar hans, Gísli Marteinn og Hemmi Gunn.
Svör við spurningum á síðu 8:
1. Danmörku
2. Um eina og hálfa milljón króna
3. Um tvö þúsund og fimm
hundruð laxar
[ VEISTU SVARIÐ ]
Kosning á Ljósalaginu 2006 stend-
ur nú yfir á heimasíðunum ljosa-
nott.is og ruv.is/poppland.is. Kosn-
ingin hefur staðið yfir frá því á
mánudag en henni lýkur á
morgun. Alls bárust 85 lög í
keppnina um Ljósalagið
og hefur þátttakan aldrei
verið meiri. Þriggja
manna dómnefnd sá um
að velja tíu bestu lögin
að hennar mati og verða
þau gefin út á geisladisk
í lok vikunnar.
Meðal þeirra sem eiga lag í
úrslitum í ár eru fjórir valinkunn-
ir tónlistarmenn, þeir Jóhann G.
Jóhannsson, Magnús Þór
Sigmundsson, Bragi
Valdimar Skúla-
son úr
Baggalúti
og Védís
Hervör
Árna-
dóttir.
Tilkynnt verður um sigurveg-
ara keppninnar í Kastljósinu
þriðjudaginn 29. ágúst. Sigurveg-
ari keppninnar fær að launum
400.000 kr, annað sætið 150.000
kr. og það þriðja 100.000 kr.
Hægt er að hlusta á
lögin í heild sinni á ofan-
greindum heimasíðum.
Hátíðin Ljósanótt verð-
ur haldin í sjöunda
sinn dagana 31. ágúst
- 3. september.
Hörð barátta um Ljósanæturlagið
VÉDÍS HERVÖR
Hún er dóttir Árna
Sigfússonar, bæj-
arstjóra í Reykja-
nesbæ, og meðal
þátttakenda í
Ljósanæturlaginu.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Það virðist alltaf vera nóg að frétta af alheimsfegurðardrottningunni Unni
Birnu Vilhjálmsdóttur. Ekki alls fyrir
löngu þurfti hún að loka bloggsíðunni
sinni til að hreinsa út óviðurkvæmileg
ummæli. Nú greinir drottningin frá
því að hún sé hætt með
kærasta sínum til nokkurra
mánaða, Sigurði Straum-
fjörð hestamanni og nema.
„Það var bara eitthvað sem
gekk ekki upp og þannig er
það víst stundum,” skrifar
Unnur Birna. Hún er þó
jákvæð sem endranær
og segir að innan tíðar
renni ár hennar sem
Alheimsfegurðardrottning
á enda. Þá geti hún farið
að svara fjölda tilboða
sem bíði hennar í formi
auglýsingasaminga, í
Bandaríkjunum, Evrópu
og á Indlandi.
Tónlistarparið Urður Hákonardóttir úr Gus Gus og Ragnar Páll
Steinsson, bassaleikari
Botnleðju, fjölgaði mann-
kyninu fyrir skemmstu
og ríkir mikil gleði á
heimili tónlistarpars-
ins. Víst má telja að
dóttir þeirra hafi erft
eitthvað af tónlistar-
hæfileikum foreldr-
anna og eigi eftir að
láta að sér kveða á
þeim vettvangi í fram-
tíðinni. Dóttirin hefur
nýlega fengið nafn, Kría
Ragnarsdóttir.
Indverska prinsessan Leoncie hefur í nógu að snúast á Bretlandseyjum.
Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær
tók hún þátt í prufum fyrir X-Faktor í
Bretlandi og vakti talsverða athygli. Til
að anna eftirspurn aðdáenda sinna
og fjölmiðla hefur hún nú ráðið sér
aðstoðarkonu. Sú varð fyrir svörum
þegar Fréttablaðið falaðist eftir viðtali
við Leoncie: „Leoncie hefur engan tíma
til að svara símtölum, því hún er afar
upptekin í hljóðverum og
gerð tónlistarmyndbanda
næstu vikurnar. Að ráði
lögfræðinga hennar
verða engin ókeypis við-
töl veitt, vegna þess
að fólk hneigist
til að brengla
hlutina til að
græða sjálft á því.”
Undir þetta kvittar
Michelle, tónlistar-
aðstoðarkona.
- hdm
Fasteignafélagið Kirkjuhvoll, sem
er í eigu Karls J. Steingrímssonar,
sem er oftast kenndur við Pelsinn,
stendur fyrir byggingu lúxus-
íbúðahúss á Tryggvagötu fyrir
aftan Naustið. „Það verða 24 íbúðir
í húsinu og fjórir stigagangar
með lyftum,“ segir Karl en
að hans sögn felst lúxusinn í
því að allur frágangur húss-
ins verði eins og best verður
á kosið, auk þess sem mikið sé
lagt upp úr sameigninni og
aðkomu að húsinu.
„Aðkoman og stiga-
gangarnir eru þreföld
að stærð miðað við
það sem gengur og
gerist í fjölbýlishús-
um. Á efstu hæðinni
verður stór þakíbúð, 350 fermetr-
ar að stærð. + Arkitektar teiknuðu
bygginguna en Ístak er verktakinn
sem byggir og er alverktaki. Þá er
það verkfræðifyrirtækið Strend-
ingur sem sá um burðarþol og
lagnir.“
Karl segist einnig vera að
skoða möguleikana á að nýta
jarðhæð hússins fyrir ein-
hvers konar starfsemi sem
nýtist íbúunum, t.d. fyrir hár-
greiðslustofu eða versl-
anir. „Það er búið að
grafa fyrir kjallaranum þar sem
verða geymslur fyrir íbúana en
reiknað er með að húsið verði til-
búið á seinni fardögum á næsta
ári, 15. september 2007. Byggingin
er í flóknara lagi þannig að vanda
þarf verulega til verka og hefur
verkið tafist af þeim sökum,“ segir
framkvæmdamaðurinn, Karl J.
Steingrímsson. - sig
Reisir lúxusíbúðir við Tryggvagötu
KALLI Í PELSINUM
Byggir lúxusíbúðahús
á Tryggvagötu.
HRÓSIÐ
... fær Jóhanna Jóhannesdóttir
sem rekur fataverslun í Kaup-
mannahöfn þar sem hún selur
eigin hönnun.
MAGNÚS ÞÓR SIG-
MUNDSSON
LÚXUSÍBÚÐIR 24 íbúðir verða í þessu glæsilega húsi við Tryggvagötu, sú stærsta 350
fermetrar.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A