Fréttablaðið - 24.08.2006, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 24.08.2006, Blaðsíða 33
 Heimild: Almanak Háskólans Smáauglýsingasími 550 5000 Auglýsingasími Allt 550 5880 Þú getur pantað smáauglýsingar á visir.is FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL. Auður Þórhildur Ingólfsdóttir keypti íbúð fyrir þremur árum og með henni fylgdi eldgömul en forláta eldavél. „Ég er ekki með árgerðina á hreinu en hún er að minnsta kosti sextíu ára gömul, svo mikið er víst. Það ótrúlega er að það virkar allt í henni og hún virðist ekkert vera á leiðinni að gefa upp öndina,“ segir Auður en eldavélin hefur vakið mikla athygli hjá gestum hennar enda gefur hún eldhúsinu skemmtilegan blæ. „Hún er náttúrulega risastór þannig að hún fer ekki fram hjá neinum. Samt sem áður passar hún vel inn í eldhúsið og er síður en svo fyrir. Þegar fólk kemur inn í nýja íbúð fær gólfið, skáp- arnir eða annað gullhamrana. Hér tala allir um eldavél- ina enda er hún alveg einstök. Konan sem átti íbúðina á undan mér sá greinilega svolítið eftir henni og bað mig um að hafa samband ef ég ætlaði að losa mig við hana.“ Eldavélin er af tegundinni „General Electric“ og sómir sér vel sem amerískt ferlíki með öllu tilheyrandi. „Allar hellur eru virkar og það eru tveir ofnar sem eru svo stórir að maður gæti næstum því eldað 100 kg búr- hval í þeim. Hægt er að nota báða ofnana í einu þannig að það er lítið mál að henda í tuttugu sortir um jólin. Svo fylgja salt- og piparstaukar með og inni í ofnunum eru litlar skúffur undir hellunum þar sem er að finna alls kyns ráðleggingar í matreiðslu. Ein vinkona mín sagði að það vantaði bara stýri á eldavélina svo maður gæti keyrt í burtu á henni – maður fær þannig tilfinningu fyrir henni. Annars er voða gaman að elda á henni og það myndast skemmtileg stemning í kringum það. Hér er alltaf verið að elda eitthvað þannig að hún hentar mér mjög vel,“ segir Auður að lokum. erlabjorg@frettabladid.is Ferlíki með sjarma Auður Þórhildur við risastóru eldavélina sína. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA GYLLT LEÐUR OG LITAÐ RÚSKINN Ökklaskór og leðurstígvél eru einkennandi fyrir skótískuna í haust TÍSKA 2 GÓÐAN DAG! Í dag er fimmtudagurinn 24. ágúst, 236. dagur ársins 2006. Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík 5.45 13.30 21.13 Akureyri 5.22 13.15 21.05 MADDÖMUR MEÐ SÁL Mæðgurnar Jósefína og Helga selja gamla muni með sál á Selfossi HEIMILI 8 Karen Walker tilkynnti í fyrradag að hún myndi kynna vor- og sumarlínu sína fyrir árið 2007 á tískuvikunni í New York. Þetta þykja stórar fréttir þar sem Karen, sem er frá Nýja-Sjálandi, hefur verið ein af aðalhönnuðunum á tískuvikunni í London. Tóbaksvarnalög voru væntanlega brotin á dögunum þegar útvarpsstöðin XFM gaf boðsmiða á bíómynd ásamt sígarettu þar sem skilyrði fyrir því að fá miðann var að reykja sígarettuna. Innköllun á hugbúnaði stafrænna myndavéla af gerðinni HP Photosmart R707 frá Hewlett Packard fer nú fram á vegum Opinna kerfa ehf. og Hewlett Packard. Óhapp getur átt sér stað ef notendur myndavélanna reyna að stinga myndavélinni í samband við rafmagn því rafhlöðurnar í myndavélinni eru ekki hleðslurafhlöður. ALLT HITT TÍSKA HEILSA HEIMILI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.