Fréttablaðið - 24.08.2006, Blaðsíða 60
24. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR36
STEVE GUTTENBERG FÆDDIST
ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1958
„Ég elska frægðina,
peningana og völdin en
maður verður að leggja á
sig vinnu til þess að öðlast
þetta.“
Leikarinn Steve Guttenberg gerði
garðinn frægan í gamanmyndunum
um Lögregluskólann á níunda áratug
síðustu aldar.
13.30 Sigrún Sigurjónsdóttir,
Strandgötu 45, Akureyri,
verður jarðsungin frá Akur-
eyrarkirkju.
15.00 Guðrún Sigurðardóttir,
menntaskólakennari, verður
jarðsungin frá Bústaða-
kirkju.
15.00 Halldór K. Karlsson, Esju-
grund 5, Kjalarnesi, verður
jarðsunginn frá kapellunni í
Fossvogi.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim
sem sýndu okkur hlýhug og samúð við
andlát og útför elskulegs eiginmanns míns,
föður, tengdaföður, afa og langafa,
Sæbjörns Jónssonar
Laugarnesvegi 89, Reykjavík.
Sérstakar þakkir fá læknar og hjúkrunarfólk á
krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut,
Líknardeild Landspítalans í Kópavogi og séra Hans
Markús Hafsteinsson. Guð blessi ykkur öll.
Valgerður Valtýsdóttir
Jón Aðalsteinn Sæbjörnsson Jóhanna Guðrún Jónasdóttir
Valbjörn Sæbjörnsson Erna Dahl
Alma Sæbjörnsdóttir
Smári Valtýr Sæbjörnsson Selma Hrönn Maríudóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
Önnu Þórarinsdóttur
sjúkraþjálfara, Hraunvangi 1, Hafnarfirði.
Þórarinn Stefánsson Ragnheiður Karlsdóttir
Guðni Stefánsson Ewa Sunneborn
Tryggvi Stefánsson Unnur Sigursveinsdóttir
Valgerður Stefánsdóttir Sigurður Valgeirsson
Ástríður Stefánsdóttir Jón Ásgeir Kalmansson
Barnabörn og barnabarnabörn.
Halldór Björnsson
hjá Malbikun HG verður
sextugur föstudaginn 25. ágúst
næstkomandi og ætlar hann og
fjölskylda að taka á móti gestum
í tilefni þessara tímamóta í
Félagsheimili Kópavogs á
afmælisdaginn milli kl . 18 og 21.
Halldór vonast til að sjá sem flesta ættingja og vini,
núverandi og fyrrum starfsmenn Halldórs og Guðmundar
og Malbikunar HG, og aðra samferðamenn fyrr og nú.
60 ára afmæli
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Ólöf Jónasdóttir
frá Magnússkógum,
lést á dvalarheimilinu Silfurtúni, Búðardal, aðfaranótt
laugardagsins 19. ágúst. Útförin fer fram frá
Hvammskirkju í Dölum laugardaginn 26. ágúst kl. 14.
Ingibjörg Guðmundsdóttir Magnús Pálsson
Jónas Guðmundsson Sigurbjörg Jónsdóttir
Guðbjörn Guðmundsson Jóhanna B. Jóhannsdóttir
Jensína Guðmundsdóttir Andrés P. Jónsson
Guðrún Guðmundsdóttir
Helgi Þorvaldsson
barnabörn og fjölskyldur.
Dóttir okkar og systir,
Linda Björg Rafnsdóttir
verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju föstudaginn
25. ágúst kl. 13.00.
Anna Margrét Eiríksdóttir Hafsteinn Helgi Grétarsson
Rafn Harðarson Monika Anna Zdun
og systkini.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengda-
móðir, amma, langamma, dóttir og systir,
Halldóra Guðrún Björnsdóttir
Tunguheiði 12,
lést á heimili sínu mánudaginn 21. ágúst síðastliðinn.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Páll Kristjánsson
Aðalbjörg Pálsdóttir Steindór Jón Pétursson
Björn Pálsson Berglind Lúðvíksdóttir
Sigurlaug Pálsdóttir Guðni Þór Þorvaldsson
Anna Lilja Pálsdóttir Ívar Guðmundsson
Soffía Björnsdóttir
Grímur S. Björnsson
Þorsteinn Kr. Björnsson
Björn A. Björnsson
Barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Hallfríður Jónsdóttir
frá Bæjum á Snæfjallaströnd,
lést á Hrafnistu 23. ágúst síðastliðinn. Jarðsett verður
frá Fossvogskapellu 30. ágúst kl. 15.00.
Fyrir hönd ástvina og ættingja,
Margrét Dóra Elíasdóttir
Elías Halldór Elíasson.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
John S. Magnusson
Upper Montclair, New Jersey, USA,
andaðist mánudaginn 21. ágúst á hjúkrunarheimili
í New Jersey, USA.
Edda S. Magnusson
John S. Magnusson Jana Magnusson
Stefan G. Magnusson Ellen Morris
og afabörn.
LEGSTEINAR
OG FYLGIHLUTIR
Í MIKLU ÚRVALI
Í dag fagnar Guðrún Edda Gunnars-
dóttir, tónlistarkona og tölvunarfræð-
ingur, fertugsafmælinu sínu. Hún
hefur haft í nógu að snúast í sumar og
unnið hörðum höndum að endurbótum
á húsinu sínu svo allt verði klappað og
klárt fyrir afmælisveislurnar.
„Ég held veislu fyrir nánustu fjöl-
skylduna á sunnudaginn og svo held ég
svona kvennaboð. Ég skipti þessu
svona niður,“ segir Guðrún Edda um
fyrirhuguð hátíðahöld í tilefni af
afmælinu. Aðspurð segist hún ekki
vera vön að halda stórar veislur á
afmælisdögunum sínum og ekki fund-
ist tímabært að halda upp á fertugsaf-
mælið með fjaðrafoki. „Ég gifti mig
fyrir tveimur árum og fékk þá alveg
nóg af stórum boðum, að minnsta kosti
í bili,“ bætir hún við.
Guðrún Edda segist muna sérstak-
lega vel eftir tvítugsafmælinu sínu
sem hún hélt upp á í Bandaríkjunum.
Þá var hún nýkomin til Boston og við
það að hefja nám í nýjum skóla. „Þetta
var svolítið sérstakt því ég var bara
búin að vera úti í tvo daga og með hópi
af útlendingum í svona kynningarviku.
Tvö úr hópnum komu með gjöf handa
mér á afmælisdaginn, þau voru bæði
frá Indlandi og komu með indverskan
fíl að mig minnir og kort,“ segir Guð-
rún Edda og hlær við tilhugsunina.
„Þetta var voðalega sætt því ég var svo
ein þarna á afmælisdeginum mínum,“
bætir hún hlæjandi við.
Börnin streyma um þessar mundir í
skólann og fer Guðrún Edda ekki var-
hluta af því þar sem dóttir hennar er að
byrja í leikskóla. Hún segir að skóla-
byrjunin hafi þó ekki skarast við afmæl-
ið á hennar yngri árum enda hafi fyrir-
komulagið þá verið annað. „Þegar ég
var lítil byrjuðum við náttúrulega ekki í
skólanum fyrr en seinna svo afmælið
var alltaf síðsumars. Þessi tími ársins
hefur yfirleitt verið góður fyrir afmæli
enda fólkið komið heim úr sumarfríun-
um svo það hefur aldrei verið neitt mál
að halda upp á það, ef maður hafði
áhuga á því.“
Annars hefur Guðrún Edda í nógu
að snúast um þessar mundir þar sem
hún er að ljúka við fæðingarorlofið sitt
og að byrja að vinna aftur á fullu. „Kór-
inn minn, Schola Cantorum, er líka að
byrja æfingar og við erum að syngja
með Sinfóníuhljómsveitinni núna í okt-
óber, svo ýmislegt liggur þar fyrir,“
segir hún. Sumarið hefur verið annríkt
hjá Guðrúnu og fjölskyldu. „Við erum
nýbúin að kaupa hús sem við erum að
klára að gera svolítið upp fyrir afmæl-
isboðið,“ segir Guðrún Edda Gunnars-
dóttir, tónlistarkona og tölvunarfræð-
ingur.
annat@frettabladid.is
GUÐRÚN EDDA GUNNARSDÓTTIR: FERTUG Í DAG
Fékk fíl í tvítugsafmælisgjöf
FERTUG MEÐ LITLA DRENGINN Tónlistarkonan og tölvunarfræðingurinn Guðrún Edda Gunnarsdóttir
fagnar fertugsafmælinu sínu í dag en hún heldur senn aftur í fulla vinnu eftir að hafa verið í fæðingar-
orlofi. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
timamot@frettabladid.is
Leikarinn Clark
Gable féllst með
semingi á að leika
suðurríkjasjarmör-
inn Rhett Butler í
stórmyndinni Gone
With the Wind á
þessum degi árið
1938. Framleið-
andinn David O.
Selznick hafði áður
náð samkomulagi
við MGM-kvik-
myndaverið um að
það tæki þátt í fjármögnun þessa
stórverkefnis. Samningurinn fól
einnig í sér að MGM myndi lána
Selznick Gable í hlutverk Butlers.
Sjálfum leist Gable ekkert of vel
á hugmyndina og
hann óttaðist að
áhugi almenn-
ings á verkefninu
og mikil athygli
fjölmiðla myndi
byggja upp svo
miklar væntingar
til persónunnar
að enginn leikari
gæti staðið undir
þeim. Áhyggjur
hans reyndust þó
ástæðulausar þar
sem hann þótti skila Butler með
miklum sóma og samleikur hans
og Vivien Leigh í hlutverki Scarlett
O´Hara gerði þau að einu ástsæl-
asta kvikmyndapari sögunnar.
ÞETTA GERÐIST 24. ÁGÚST 1938
Gable á hverfanda hveli
JARÐARFARIR